

Elskurnar mínar allar fimm :):):):):)
Er að enda daginn og ákvað að kíkja á heimasíðuna og athuga hvort nýjar myndir væru komnar. Ég varð heldur betur ánægð. Fullt af nýjum myndum, hver annarri skemmtilegri. Lyftir manni svo sannarlega upp eftir strembinn dag.
Með ástarkveðju Kolla amma /mamma /t.mamma
Takk kærlega fyrir okkur um helgina - ótrúlega gaman að koma til ykkar loksins.
Endilega kíkið við á hilmarsdottir.weebly.com - við settum inn nokkrar myndir frá helginni.
Flottar myndir frá því í sumar.. mikið ertu nú rík elsku Alda mín.
Hlakka til að fá að hitta ykkur sem fyrst.
kv.
Stella
Vá, hvað er gaman að sjá allar myndirnar. Og hvað þú ert fljót að setja inn Svefneyjarnar Alda Leif mín. Greinilega ævintýraheimur þar. Hlakka til að sjá ykkur öll í vikunni. Með ástar- og saknaðarkveðjum Kolla amma/mamma/t.mamma
En æðislegar myndir! Dugleg ertu að vera búin að koma þeim inn Alda :D Heyrumst nú fljótlega og sjáumst ;)
Elskurnar okkar allar saman :):):):):)
Mikið er gaman að skoða myndirnar. Skemmtilega teknar líka. Maður getur alveg fylgt eftir sumarferðunum ykkar. Myndirnar á Bolafjalli eru ótrúlega flottar, bæði af fjölskyldunni og útsýninu. Söknum ykkar og vonumst til að sjá ykkur fljótlega. Hafið það sem allra best.
Með ástar- og saknaðarkveðjum frá Kollu ömmu og Jóni afa nýkomnum frá NY:):)
Æðislegt myndir af ykkur! Sakn sakn
Alveg yndislegar myndir. Þú ert ótrúlega duglega að drífa þær inn Alda mín. Ég skoða þær aftur og aftur. Hugsa til ykkar og vona að Elín Eygló verði fljót að jafna sig og að hin börnin sleppi við hitann. Með ástarkveðju Kolla amma
Ooohhh hvað þú ert dugleg að setja strax inn myndir Alda mín! Jeeiiiiiii svo gaman að skoða þær:D
Elsku Alda, Siggi, Dagný Kara, Elín Eygló og Jón Breki :D
Takk fyrir yndislegan skírnardag og skemmtilega helgi;) Allir eru svo ánægðir með nafnið á litla bróður - það er svo flott! Hlökkum til að sjá ykkur fljótlega aftur og svo styttist nú alltaf í sumarbústaðaferðina okkar á Arnarstapa:D
kv.Sigrún frænka
Elskurnar okkar fimm :):):):):)
Mikið er gaman að skoða myndirnar. Litli kúturinn okkar dafnar aldeilis vel. Gaman að sjá gylta hárið hans.Hafið það sem allra allra best.
Með ástarkveðjum frá ömmu og afa Espigerði
En hvað var yndislegt að knúsa litla hlunkinn í dag! Vona að mallinn angri hann ekki mikið. Kysstu stelpurnar frá mér :)
Elska að fá nýjar myndir!
Elsku Siggi og Alda Leif :):)
Ég samgleðst ykkur innilega. Þetta var ótrúlega sætur sigur. Ég tek undir orð Maju mömmu að Keflvíkingar áttu alls ekki skilið að vinna. Frábært og landsbyggðin öll fagnar. Snæfell eru verðugur sigurvegari.
K.L.
Til hamingju með húsbóndann á heimilinu! Hann verður nú á bleiku skýi langt fram á sumar... jafnvel lengur :D
Elsku fjölskylda!
Innilega til hamingju með Íslandsmeistartitilinn.
Hlökkum til að sjá ykkur í afmælinu á morgun:D
Sigrún og familí
Gullfalleg öll þrjú hjá ykkur! Innilega til hamingju aftur :-*
En yndislegt að sjá nýjar myndir og sjá litla bróður í vöggunni sinni. Systurnar eru alveg meiri háttar :):)
Sendi ykkur öllum hjartans kveðjur
Kolla amma/mamma/t.mamma
ekkert smá flottur strákur, til hamingju með hann :)
Elsku Alda mín! Innilega til hamingju með afmælið aftur:D Var að skoða myndirnar af börnunum ykkar, þau eru hvert öðru fallegra. Vonum að litli bróðir verði vær og góður og stóru systurnar taki honum vel. Afmælisknús!
Afmæliskveðjur frá Boston elsku Alda okkar!! Hafðu það gott í dag :)
Og nú eru elskurnar mínar í Hólminum orðnar fimm.:) :) :) :) :)
Yndislegt og við Jón sendum ykkur auðvitað okkar innilegustu hamingjuóskir. Litli prinsinn er nú kominn heim til systra sinna og ég hefði alveg getað hugsað mér að vera lítil fluga á veggnum til að fylgjast með heimkomunni. Gangi ykkur vel með öll börnin þrjú. Með ástarkveðju Kolla amma/mamma
Kæra fjölskylda!
Innilega til hamingju með litla prinsinn ykkar, gangi ykkur allt í haginn.
Kveðjur úr Hólminum Þórheiður og fjölskylda.
Til hamingju með litla prinsinn... gangi ykkur allt í haginn.
kveðja
Anna María , Davíð og fjölsk.
Elsku Alda, Siggi, Dagný Kara og Elín Eygló! Innilegustu hamingjuóskir með litla drenginn sem kominn er í fjölskylduna:D Mikið hlakkar okkur öllum til að sjá hann og ykkur líka;) Kossar og knús frá einni 5 manna fjölskyldu til annarrar;)
Elsku Alda, Siggi, Dagný Kara og Elín Eygló okkar, innilega til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn! Bara orðin 5 manna fjölskylda :D Svo gaman að fá loksins lítinn frænda! Risakoss til ykkar allra
Litla barnið kemur 14.apríl! ;) Hugsa mikið til þín Alda mín og ykkar allra! Verð svo glöð þegar barnið er mætt - koss
Þá er dagurinn sem litli frændi/litla frænka átti að koma í heiminn að kveldi kominn;) Börnin ykkar eru greinilega ekki að láta segja sér hvaða dag þau eiga að koma og velja bara þann dag sem þau vilja;) Er alltaf að hugsa til ykkar og fæ alveg sting við hverja hringingu og sms! Gangi ykkur rosalega vel - vona að þið fáið góða fæðingu með þriðja barnið eins og við:D Knús knús.
Elskurnar okkar fjórar og næstum fimm :):)
Mikið er gaman að sjá nýjar myndir. Systurnar svona góðar saman í litla stólnum. Hafið það sem best og vertu dugleg að hafa það rólegt Alda okkar. Með ástar- og saknaðarkveðju frá Kollu ömmu/mömmu og Jóni afa/pabba
Kvitt kvitt :) Æðisleg myndin sem DK teiknaði! Saknaðarkveðjur!