Fyrstu árin
Fæðingin
Ég fæddist þann 11. júní 2006 klukkan 3:05.
Það var búið að setja mömmu á 24. júní og hún var heima í rólegheitum þann 10. júní en pabbi skrapp á bílasýningu kl. 16.
Um kl. 17 hringdi mamma í pabba sem var á leiðinni heim því hún var farin að fá hríðir.
Við fórum í skoðun á Kvennadeildinni kl. 18 og þá var vatnið farið og allt komið af stað.
Allt gekk svo voða vel og var ég kominn í heiminn þann 11. júní kl. 3:05. Ég var ég 3910 grömm eða tæpar 16 merkur og 52,5 cm að lengd.
Pabbi klippti á naflastrenginn en það voru ljósmæðurnar Erna og Laufey sem tóku á móti mér.
Ég og mamma fórum svo á sængurkvennadeildina um morguninn. Við vorum þar um daginn og sváfum við þar fyrstu nóttina.
Skírnin
Skírnin fór fram þann 20. október í Naustabryggjunni.
Séra Valgeir Ástráðsson skírði mig nafninu Daði Berg.
Skírnarvottar voru Ásdís, Svandís og Gússi.
Það var rosa gaman hjá okkur í Skírninni. Nánasta fjölskyldan var mætt og ég var alveg rosalega flottur.
Afmæli
Fyrsta afmælið mitt var þann 11. júní árið 2007. Ég var að vísu í New York þá þannig að ég hélt afmælið mitt á sjómannadaginn þann 3. júní.
Veislan var haldin heima í Naustabryggjunni.
Kakan mín var lítil kringlótt með broskalli á og með trúða kerti.
Það var rosa gaman og auðvitað var ég mjög stilltur eins og venjulega.
Jól
Fyrstu jólin mín voru heima hjá mér í Naustabryggju. Mamma og pabbi voru búin að ákveða að vera heima af því af núna erum við orðin svo fín fjölskylda.
Afi Gústi hjálpaði mömmu og pabba að elda matinn og svo komu þau amma Ragga í mat með Láru frænku.
Ég var í sjóarabúningnum sem mamma og pabbi keyptu í Ameríku og var alveg rosalega mikill töffari.
Mér fannst gaman að fá pakka til að leika með mér og hafi mest gaman af böndunum. Af sjálfsögðu fékk ég flesta pakkana á heimilinu sem voru allir rosa flottir.
Hæð og þyngd
12 mánaða var ég 79 cm og vó 9715 grömm.
10 mánaða var ég 77 cm og vó 9610 grömm.
8 mánaða var ég 74,3 cm og vóg 8975 grömm.
6 mánaða var ég 71,3 cm og vó 8325 grömm.
5 mánaða var ég 70,3 cm og vó 7980 grömm.
3ja mánaða var ég 65 cm og vó 6885 grömm.
2ja mánaða var ég 62,7 cm og vó 6165 grömm.
Eins mánaða vó ég 4620 grömm.
Við fæðingu var ég 52,5 cm og vó 3910 grömm.
Mataræði
1 árs er ég byrjaður að borða allan mat og er rosalega duglegur að borða.
10 mánaða var ég að hætta á brjósti og er rosalega duglegur að drekks stoðmjólk og borða mat.
8 mánaða er ég svona að byrja að fá að borða 2 sinnum á dag.
Núna þegar ég er 6 mánaða er ég enn á brjósti en mamma er að byrja að gefa mér smá graut.