Viktoria Rós, Christopher Einar & William Óðinn
Viktoria Rós, Christopher Einar & William Óðinn
 
 
 

Guestbook

craig

Hello Siggy
Post some pictures keep me updated !!!

Posted August 4, 2009 at 12:30.

Jóhanna Karitas

Til hamingju með afmælið hennar Viktoriu :-) Verður gaman að hittast þegar þið komið til Íslands! Afmælisknús og kossar

Posted July 27, 2009 at 19:17.

amma og afi

Halló elskurnar!
Hjartanlega til hamingju með sjö ára afmælið elsku Viktoria okkar. Hlökkum rosalega til að sjá ykkur á fimmtudaginn. Kveðja til ykkar allra.
Afmælisknús
amma og afi

Posted July 27, 2009 at 17:27.

amma

Og by the way aldeilis alveg frábær sundbolur sem hún Viktoria á..... amma vildi gjarnan finna eitthvað svipað ;-) bara fyrir ömmur
knús, amma lamma

Posted July 1, 2009 at 22:46.

amma og afi

Elskurnar okkar! Gott að heyra að allir eru kátir og hafa greinilega nóg að gera. Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með og Craig fær fyrstu einkunn fyrir myndir! Heyrumst fljótlega.
knús og kram
amma og afi

Posted July 1, 2009 at 22:36.

Katrín

Hæhæ öll ;) ég ætlaði að vera löngu búin að hringja og þakka fyrir útskriftargjöfina, en maður kemur engu í verk. Allavega takk kærlega fyrir mig ;)*
Var að skoða myndirnar ykkar og herbergið hennar Viktoríu er æðislegt, algjört prinsessu herbergi :) Og ég sá um daginn hvað Viktoría er orðin duglega að hjóla, verður gaman fyrir hana að hjóla hér í sumar,,, það er ekki langt í það!! ;)
Hlakka til að sjá ykkur...
*Kossar og knús*

Posted June 26, 2009 at 17:59.

amma

Æi takk elskurnar fyrir þessa æðislegu Videomynd. Gaman að kíkja og sjá nýjar myndir.
Knús og kram
amma

Posted June 16, 2009 at 11:03.

Maggý og Ásbergur

Æðislegar myndir. Videoin voru adorable. Cute kids...knús frá okkur ;)

Posted June 15, 2009 at 22:01.

amma

Hæ elskurnar!
Frábært að þið eruð komin aftur !
Gaman að sjá myndir ....ósköp er prinsessan okkar eitthvað tannlaus :-). Og hvar voru þau að veiða Viktoria og Ryan .... ekkert smá fallegt! Knús Amma og afi

Posted June 7, 2009 at 23:04.

Ragnheiður

Hæ elsku Sigrún og co.
Takk fyrir spjallið!
Gott að heyra að allt gangi vel hjá ykkur og sjá að litlu geimsteinarnir þínir dafni svona vel!. Við heyrumst vonandi aftur fljótlega. Stórt knús til ykkar allra!

Posted April 16, 2009 at 14:45.

amma og afi

Æi ósköp eru að heyra þetta. Kannski ljótt að segja það en ég er glöð að það var Nikólína sem slapp, hún er svo mikill karakter, þið verðið að bæta í búið svo hún sé ekki alein. Ég sé á myndunum að það hefur verið gaman hjá vinkonunum þessa helgina. Bara vika þar til við komum!
Knús og kram
amma og afi

Posted March 28, 2009 at 22:06.

amma

Frábært!
Keep upp the good job Craig, við erum mjög ánægð með allar myndirnar.
Knús frá ömmu og afa sem telja dagana þangað til við komum :-)

Posted March 23, 2009 at 10:02.

Maggý og Ásbergur

Æðislegar myndirnar. Svo gaman að geta fylgst með ykkur.

Knús á línuna....

Posted March 23, 2009 at 00:28.

Kristjana Helga og stelpurnar :)

Æðislegar marsmyndirnar :)
Knús***

Posted March 14, 2009 at 22:56.

amma

Halló elskurnar!
Takk fyrir nýju myndirnar Craig, það er svo gaman að fá að fylgjast með ykkur.
knús og kram
amma

Posted March 13, 2009 at 10:08.

Magga frænka

Sæl elsku Sigrún og fjölskylda
Ég var að skoða myndirnar ykkar, þær eru yndislegar. Það er naumast að krakkarnir dafna vel. Þú átt falleg börn Sigrún mín.
Gangi ykkur vel.
Kær kveðja, Magga frænka

Posted March 10, 2009 at 20:20.

amma

Halló elskurnar!
Æðislegt að sjá nýjar myndir frá ykkur, eru sumir svolitlir vinnumenn að hjálpa mömmu og pabba.
Knús frá ömmu

Posted February 24, 2009 at 09:47.

Addý

Uss alltof langt síðan við kíktum í heimsókn á síðuna hjá ykkur. Þið voruð alltaf í barnalandsrútínunni, svo nú þarf að koma um barnanetsrútínu líka. Gaman að sjá myndirnar frá síðustu mánuðum. Skemmtilegar myndir af Viktoríu og Ingu í faðmlögum hérna í sumar.
Sendum kærar kveðjur
Addý og co

Posted February 20, 2009 at 01:21.

Maggý, Andri og Ásbergur.

Æðislegar myndirnar. Hafið það sem allra best í kuldanum í UK.

Knús

Posted January 25, 2009 at 19:08.

Kristjana Helga, Helgi Ragnar og dætur.

Hæ, hæ :) En gaman að skoða allr myndirnar af ykkur - loksins komnar nýjar myndir :)
Er ekki allt gott að frétta?
Nýja heimilið virkar voða kósý hjá ykkur :)
Biðjum að heilsa.
Knús****

Posted January 11, 2009 at 19:25.

Heiða Björk Rúnarsdóttir

sæl Sigrún og Co. við vorum að skoða jólin ykkar, yndislegt að sjá hvað börnin eru orðin stór og myndarleg, og þið hjón flott líka. kær kveðja og gleðilegt nýtt ár, Kveðja Heiða og Co. Kratrín og Co.

Posted January 11, 2009 at 00:07.

Katrín Þórhildur

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það liðna ;*
Rosalega eru þið öll sæt og fín á jólamyndunum ;) ..það hefur verið voða kósý hjá ykkur sé ég.
..og takk fyrir okkur, það var æðislegt að fá svona.. Býð þér í heita köku næst ;)

*Kossar & Knús*
kv.Katrín

Posted January 2, 2009 at 03:45.

amma lamma

Halló elskurnar mínar!
Gleðilegt nýár og takk fyrir allt gamalt og gott.
Guð geymi ykkur alltaf.
Knús og kram frá ömmu á Íslandi

Posted December 31, 2008 at 21:03.

Maggý

vá er svona geggjað flott kynding hjá ykkur? hehehe. Bara eins og þið séuð í sumarbústað? hehehe
Jólakveðjur frá okkur.

Knús

Posted December 21, 2008 at 14:32.

Amma

Halló elskurnar!
Æðislegt að fá myndir og fréttir af ykkur.
Gangi ykkur vel í jólaundirbúningnum.
Knús, amma

Posted December 17, 2008 at 10:08.

Polly

Hæ sæta vinkona.
Ég fylgist alltaf með í von um góð skrif :)
Verðið úti um jólin eða fariði heim til Íslands?
Knús frá Köben
Polly

Posted December 8, 2008 at 14:15.

Amma og Afi

Halló elskurnar!
Hjartanlegar hamingjuóskir til afmælisdrengsins. Bara orðinn tveggja ára ! Knús og kram frá Íslandi
XXX Amma og afi

Posted November 20, 2008 at 08:32.

Amma

Knús og kram
Amma

Posted November 14, 2008 at 14:06.

Margrét Sveinsdóttir

Sæl Sigrún og Craig og Viktoria og Cristopher.
Til hamingju með afmælið á mánudaginn, Sigrún, ég mundi ekki eftir því þá en man það núna - bestu heillaóskir.
Það er svo gaman að fylgjast með ykkur og sérstklega litlu gullmolunum ykkar.
Gangi þér vel í nýja náminu.

Kær kveðja, Magga frænka

Posted November 5, 2008 at 11:29.

amma

Halló elskurnar mínar!
Til hamingju með daginn elsku Sigrún okkar. Vonandi áttu ánægjulegan afmælisdag.Og megi allt ganga þér í haginn um ókomna tíð.
Ástar og saknaðarkveðjur frá mömmu og pabba

Posted November 3, 2008 at 11:49.

1 2 3 4 5