Viktoria Rós, Christopher Einar & William Óðinn
Viktoria Rós, Christopher Einar & William Óðinn
 
 
 

Velkomin í heimsókn!


 



Við erum systkinin Viktoria Rós og Christopher Einar, og eins og auga gefur af myndinni hér að ofan erum við langflottust:)

Foreldrar okkar eru Sigrún Árdís Einarsdóttir (82) og Craig Douglas Clapcott (79). Þau eru frekar gjörn á að gera það sem að ætti að vera einfalt aðeins flóknara;) og þar af leiðandi fóru þau að eltast við hvort annað, þrátt fyrir að koma frá sitthvoru landinu:) Það gekk  samt allt á besta veg og eru þau núna búin að vera saman í næstum 8 ár!! Mamma er samt ennþá að bíða eftir að pabbi detti niður á annað hnéið, aldrei að vita nema það gerist einn daginn:):) Eftir að Viktoria fæddist ákváðu mamma og pabbi að prufa líka að búa í englandi og höfum við búið þar öll saman síðustu 4 árin.

Viktoria Rós var fædd þann 27. júlí 2002, á landspítalanum í rkv. Eftir 18 klst erfiði fyrir mömmuna, ákvað hún að koma og skoða heiminn:) Mamman var náttúrulega alsæl að sjá frumburðinn sinn en dauðþreytt, og átti því erfitt með að ímynda sér hvernig væri mögulega hægt að fara í gegnum svona erfiði aftur:S Stelpan vó 3606 gr og var 51 cm eða rúmar 14 merkur. Hún var með fallegt dökkbrúnt hár og gráblá augu, en í dag eru þau móbrún, suma daga meira græn og aðra meira brún.

Mamma litla skipti þó um skoðun innan skamms, enda litla skottan ekkert nema gleðigjafi. Það varð því svo að þann 20. nóvember, 2006, bættist hann Christopher Einar í hópinn, og líkt systur sinni ákvað hann að taka sinn tíma, og tók sú fæðing um 14 tíma. Litli kallinn einfaldaði þó ekki málin með því að snúa vitlaust, semsagt með andlitið upp en ekki niður, og hálffestist því á útleiðinni. Allt fór þó vel að lokum, og tveim dögum seinna, var litla fjölskyldan sameinuð á ný, heima í Wareham:) Christopher var 16 merkur, og með fallega dökkrúnt hár og brún augu eins og systir sín



Viktoria Rós, stækkar alveg á ógnarhraða, að foreldranna mati að minnsta kosti. Nú er hún búin að ganga í skóla í 2 ár, en hér í Englandi byrja krílin í skóla 4 ára. Hún stendur sig alveg rosalega vel, og getur nú skrifað, lesið og plúsað saman einföld dæmi. Langbest er hún þó í höndunum, og er alveg rosalega klár að teikna, og hefur fengið nokkur verðlaun fyrir það í skólanum:)

Uppáhaldsliturinn er bleikur, en frá því þarf náttúrulega ekki að segja, fyrir það fólk sem að þekkir hana Viktoriu:) Hún er nýbúin að fá bleikt herbergi, og er náttúrulega alveg alsæl með það:)

Viktoria stendur sig voðalega vel að tala 2 tungumál, þó svo að stundum sé maður soldið ryðgaður. Henni finnst alveg sjálfsagt að tala ensku við mömmu sína (mamma ekki alveg sammála þar) og segir mér að það sé bannað að tala íslensku við mig í skólanum af því að það skilji okkur enginn!

Við fæðingu litla bróður var mikil gleði hjá skottunni, og hleypur hún um á eftir honum og knúsar hann og kyssir. Stundum svolítið mikið fyrir Christopher litla en hún meinar vel:) og er alsæl  með litla strákinn, og voðalega dugleg að hjálpa mömmu sinni að passa hann:)

 

 



Visits today: 1
Total visits: 3867