

Strax eftir að Brynjar fæddist kom í ljós að hann var með hjartagalla sem nefnist VSD (Ventricular septal defect) og útlegst á íslensku sem op milli slegla.
Hérna má sjá mynd af hjarta eins og það á að vera: Venjulegt hjarta
Og hér má sjá mynd af hjarta eins og Brynjar fæddist með: VSD hjarta
Hér má svo lesa allt um VSD á ensku: VSD á ensku
Um 1,7% allra barna sem fæðast á ári hérlendis eru með hjartagalla, og þar af greinist um helmingur þeirra barna með VSD. Sem betur fer eru langflest börnin aðeins með mjög lítið op á milli slegla og lagast það nær alltaf af sjálfum sér.
Talið er að 4 til 5 börn á ári séu með það stórt VSD að þau þurfa að fara í aðgerð. Slík aðgerð er aðeins framkvæmd erlendis, árið 2007 voru slíkar aðgerðir bara framkvæmdar í Boston á Children’s Hospital Boston en í dag 2011 er farið að gera þessar aðgerðir í Svíþjóð. Hjartagallinn hans Brynjars flokkaðist undir stórt VSD. Brynjar þurfti í aðgerð og fórum við út til Boston þann 5. júní 2007. Aðgerðin sjálf var 7.júní og gekk hún mjög vel.
Það sem skeður í hjartanu mínu er það að blátt blóð og rautt blóð blandast saman þannig að of mikið af súrefnisríku blóði streymir til lungnanna. Lungun mín verða því þung og það verður erfiðara að anda og ég verð voðalega fjótt móður, auk þess sem vökvi vill safnast saman í lungunum. Læknarnir eru samt bjartsýnir og segja að ég sé sterkur og hraustur strákur.