

Hei hei litli kall, takk fyrir síðast. Það var voða gaman að hitta þig loksins almennilega og þú bræddir mig sko alveg :)
Hæ hæ Brynjar Þór sem stækkar svo svakalega hratt og breytist með hverjum deginum! Alltaf að koma nýr svipur á þig...er bara alls ekki viss um hvort þú líkist pabba þínum eða mömmu meira! Þú ert allavega lang sætastur! Við sendum kveðjur frá okkur öllum...Gleðilegt sumar!!!!
Takk alveg æðislega fyrir lykilorðið og þú getur treyst mér Elísa mín yfir því sem þú baðst mig um :)
Sé að "litli" kútur er aldeilis búinn að braggast síðan hann fæddist.
Gangi ykkur rosalega vel :)
En hvað þú ert duglegur strákur Brynjar Þór! Þú ert líka voðalega sætur ;) Rosalega gaman að fá að fylgjast með þér hérna, vona að þið fjölskyldan hafið það gott.
Kv. Sirra Guðnadóttir
Þetta er nú barasta að verða stærðarinnar strákur, húsmóðirin á þessu heimili hamast við að losna við kvefið og húsbóndinn bíður rólegur eftir að taka spúsu sína með að skoða gripinn enda myndarlegur drengur ferlega flottur og fullorðinslegur í ömmustólnum..........sjáumst fljótt tölvuknús og kossar þangað til
Sæll litli frændi:-) ætlaði að segja að þú ert að verða alveg eins og pabbi en fleiri eru sammála mér með það:-) annars er ég viss um að þú eigir eitthvað í honum Elísa, er glöð að sjá hvað þú ert duglegur að stækka Brynjar, vonandi að allt gangi nú vel, þannig að maður geti farið að knúsa þig eftir einhvern tíma, var að knúsa Skarphéðinn um daginn held að þið verðir góðir saman:-) (auðvitað Sunna Hlín með ykkur;-) )
Þú ert roslega sætur á myndinni sem þú varst með spiladósina sem ég gaf þér. Mér hlakkar til þegar þú ert orðinn nógu stór þá get ég leikið við þig. Nú er að koma sumar og þá hittumst við kannski og þá getum við leikið okkur úti....í sandkassanum :)
Elísa ég kannast alveg við þetta eins og pabba sinn,,, :) Ég fæ ekki að eiga mikið í útliti Sunnu. En rosalega líturu vel út Brynjar þú stækkar greinilega á hverri mínútu og svo ertu bara eitthvað svo hraustur að sjá. Gæti alveg borðað þessar litlu táslu mýs vá hvað þær eru sætar
Hæ litla fjölskylda!
Ég er alltaf að bíða eftir að fá lykilorðið hjá þér í gegnum msn..en nú gefst ég upp. Ef þú vilt vera svo væn að láta mig fá það geturu þá sent mér það á johasmar@khi.is
Hafið það rosa gott :*
Já það er sko satt, þú ert flottur strákur og táslurnar þínar eru bara sætar. Vá þú ert sko líkur honum pabba þínum. Gaman að skoða flottu myndirnar af þér og sjá hvað þú stækkar og dafnar vel. Bestu kveðjur til litlu fjölskyldunnar Inga á Selfossi.
hæhæ, elsku Brynjar
hlakka til að sjá þig á sunnudaginn. og færa þér eitt fallegt ljóð sem að ég skrifaði upp fyrir þig.
þín frænka Sigurbjörg
Ætli þú verðir ekki kominn undir fermingu þegar við losnum við kvefið hérna megin, annars er þetta allt að koma, rosalega flottar myndirnar af þér eins og alltaf, hlökkum mikið til að hitta þig, hringjum er við hættum að snýta okkur og hósta, knús þangað til kveðja ástyrningar
Halló litli fallegi frændi! Loksins virkaði þetta hjá mér. Mikið ertu orðinn stór og duglegur. Gangi þér vel , bestu kveðjur til mömmu og pabba.
Halló Brynjar Þór. Voðalega ertu orðin duglegur, haltu þessu áfram að vera svona duglegur. Við biðjum að heils mömmu og pabba, en þanngað til næst gangi ykkur allt í haginn. kv. Ína og Sigurgeir frændi
hæhæ Brynjar, þú mátt gjarnan skrifa í gestabókina hjá mér og segja mér þegar ég má koma að heimsækja þig
þykir svakalega vænt um ykkur
þín frænka Sigurbjörg Helga
Jæja sæti vonandi borðaðirðu ekki of mikið af páskaeggjum og gafst ma og pa með þér.......kveðja úr tjörninni
HÆHÆ!
Vildum bara óska ykkur gleðilegra páska og vonandi gengur bara allt vel hjá ykkur.
Kveðja Bryndís og fjölskylda
Kondu sæll frændi, þú ert bara á leiðinni heim, það eru góðar fréttir. Ég ætlaði að skoða myndirnar af þér, en þá er sýðan læst,haltu áfram að vera svona duglegur kveðja úr sveitinni
Hæ hæ litli angi, sé að þú færð að kúra uppí mömmu og pabba rúmi alveg eins og sumar litlar skvísur hérna. Þú stækkar svo hratt að þú verður ekki lengi að ná Sunnu og verður farin að tæta allt heima hjá þér eftir nokkra mánuði (bara á meðan ég skrifa þetta þá náði Sunna í skrifblokk og byrjaði að borða nokkrar blaðsíður og svo fór hún og náði í síman og náði að hringja). þúsund kossar og knús til mömmu þinnar
Er búin að bíða eftir að barnanetið komist í lag og að fleiri myndir kæmu inn ;)
Drengurinn er bara hreint út sagt yndislegur!!! Algjör gullmoli :)
Halló Brynjar Þór. það er alltaf jafn gaman að koma hingað í heimsókn og skoða myndirnar af þér og sjá hvað þú ert duglegur að stækka og dafna svona vel. Biðjum að heilsa mömmu og pabba. Og haltu áfram að vera svona duglegur. kveðja Ína og Sigurgeir frændi.
Hæ Brynjar Þór!
Frábært að heyra að þú sért kominn heim til þín og dafnir svona vel, ekkert smá duglegur strákur þarna á ferð.
Gangi ykkur sem allra best
Til hamingju með að vera búin að fá Brynjar Þór heim. Gott hjá ykkur að takmarka heimsóknir, en heilsa barnsins er mikilvægari en að allir séu að ,,knúsa" hann. Þannig smitast börnin, sérstaklega fyrirburarnir! Dáist að ykkur fyrir vikið. Kveðja Magga ,,frænka"
Sæll Brynjar Þór og innilega til hamingju með að vera kominn heim í kotið til mömmu þinnar og pabba.
Gaman að sjá hvað það gengur vel með þig litla hetja.
Kv. Erna Karen
Hæ sæti, yndislegar myndir......gaman að kíkja við.
Knús frá okkur öllum hér á bæ,
kveðja, Ósk frænka
Halló Brynjar, til hamingju að vera kominn heim til mömmu og pabba, sæti strákur. Takk fyrir meilið Elísa og gangi ykkur allt í haginn kveðja frá Selfossi Inga.
Yndislegt að sjá ykkur heima. Þú ert nú meiri hetjustrákurinn ;)
Hlökkum til að hittast einvhern daginn.
Fylgjumst áfram með afrekum þínum hér á netinu litli karl
kveðja og knús
Agga og co
En gaman að sjá ykkur komin heim. Það er svo notalegt að geta knúsast saman eins og maður vill :) Þú ert svo myndalegur, haltu áfram að vera svona duglegur.
kveðja Eva og fjölskylda
Halló öllsömul.
Mikið er gaman að sjá þessar fínu myndir af ykkur heima! Ég er svo montin af þessum litla yndislega sæta frænda:) Get ekki beðið að sjá hann í eigin persónu;) Hafið það rosalega gott í þægindunum heima.
Kossar og knús, Benný og co.
Til hamingju með að vera komin heim öll sömul.
Frábært að sjá að allt gengur eins og það á að ganga núna :)
njótið þess að knúsast heima.
kv, Elva á Fífusölum