

Hæhæ elskurnar,
gott að sjá að allt gengur vel. Við erum búin að hugsa mikið til ykkar síðan þið fóruð út og erum alltaf með kveikt á kerti hér heima fyrir ykkur. Þið eruð öll miklar hetjur og hlakka bara til að geta fylgst meira með litla töfaranum í framtíðinni.
Gangi ykkur vel í bataferlinu,
knús frá Íslandi.....Jóna G. og familían ;)
Kæra fjölskylda Gott að heyra hvað þetta gengur vel hjá ykkur hugsa áfram til ykkar og gangi ykkur áfram vel.
Kveðja Friðbjörg á Fífusölum
Elsku hjartans drengurinn okkar. Mikið er gott að þú skulir vera á batavegi. Við biðjum góðan guð að varðveita þig. Kveðja til mömmu, pabba, ömmu og afa.
amma og afi Kópavogi.
Kæra fjölskylda erum búin að hugsa mikið til ykkar og biðja fyrir hetjunni ykkar gangi ykkur áfram vel guð veri með ykkur.
Guðrún Bergmann formaður Neistans og fjölsk.
Innilegar bata kveðjur Hlökkum til að sjá ykkur Gamla frænka og frændi í Lyngheiðinni
Elsku Brynjar Þór Gott að allt gengur vel Við hugsum hlýtt til ykkar Byðjum að heilsa ömmu og afa. Kveðjur og knús.
Haltu áfram að láta þér batna... þið eruð hetjur
kv, Elva á Fífusölum
Mikið rosalega ertu duglegur ungur maður. Við fylgjumst vel með þér hérna á klakanum og sendum góða strauma.
Haltu áfram að vera svona duglegur Brynjar Þór.
Knús og kveðjur
Agga og co
Hæ Brynjar Þór.
Er í útilegu með mömmu og pabba en ég hugsa samt til þín alltaf. Vonandi gengur þér áfram vel og vertu áfram duglegur!
Nú getur þú farið með pabba þínum út í Puma skónum :)
Gangi þér vel hetjustrákur. Þú ert algjör hetja. Við fylgjumst með og hugsum til ykkar.
Sæll elsku Brynjar Þór, það er gaman að fá svona góðar fréttir af þér og allt gangi vel fallegi litli kútur:) Við hugsum til þín dag og nótt og biðjum Guð að varveita þig og hlökkum til að sjá þig þegar þú kemur heim, biðjum að heilsa mömmu og pabba.Hlýjar kveðjur Helga frænka,Steini,Særún og fjölskylda.
Halló. Brynjar Þór, þetta voru mjög góðar fréttir að aðgerðin gekk vel hjá þér, Við hugsum stöðugt til ykkar, þú mátt skila til Siggu ömmu og Billa afa, að hamstinum líði mjög vel og ég tek hann alltaf út á kvöldi og kyssi hann á ennið og bið honum góða nótt, og ég sit oft á gólfinu og opna búrið hjá honum og leyfi honum að vera í fanginu hjá okkur í smá tíma, og læt hann svo aftur inn í búrið sitt, jæja þá við biðjum að heilsa öllum og gangi ykkur vel þarna út við verðum með hugan hjá ykkur þarna úti. kveðja Ína og Sigurgeir frændi.
Elsku Brynjar Þór vonandi gengur aðgerðin vel við sendum þér hlýja strauma .Allir byðja að heilsa Maja besta frænka og Unnar
Elsku Brynjar þór og Fjölskylda takk fyrir að láta okkur vita að það gangi allt vél og allt sé eins og það á að vera þetta voru frábærar fréttir. við elsum ykkur og biðjum að heilsa elsku Elísa og Hlynur sonur ykkar er sönn hetja
Theodór Arnar biður að heilsa ömmu og afa sínum
Gangi ykkur vel úti ! ég sendi alla mína góðu strauma til ykkar !
Já það er gott hjá þér vinurinn ,reyndu bara að hvíla þig fyrir átökin.
gangi þér vel úti í aðgerðinni Brynjar minn, þykir svakalega vænt um þig og byð fyrir þér endalaust
þín frænka
Sigurbjörg
Gangi þér vel í aðgerðinni og Guð veri með þér og mömmu þinni og pabba........Já það fór þá bara svo að þú fórst til útlanda á undan mér :-)
hæ hæ, vonandi gekk ferðalagið vel....ég mun hugsa til ykkar á morgun og senda hlýja strauma :)
Elsku Brynjar Þór, Elísa og Hlynur.
Mig langar til að byrja á því að óska litla kút til hamingju með skírnina:)
En aðallega langar mig til að óska ykkur góðs gengis í Ameríkunni. En ég veit að þið eigið öll eins og hetjur eins og þið hafið gert hingað til:) Ég hugsa mikið til ykkar og mun halda því áfram!
Bestu Kveðjur
Helena
bestu óskir um að allt gangi vel í Boston, góða ferð.
Kæra Elísa og fjölskylda, til hamingju með skírnina.
Ég óska ykkur góðrar ferðar til Boston og vona að allt gangi vel,með litla hetjustrákinn, hugsa til ykkar.
Bestu kveðjur Inga á Selfossi.
Elsku fjölskylda
Til hamingju með gærdaginn :) Loksins kominn með nafn, vonandi var dagurinn góður.
Gangi ykkur sem allra best úti og það verður án efa hugsað til ykkar á öllum vígstöðum á fimmtudaginn.
Allavega mun minn hugur vera hjá ykkur næstu daga.
Knús ... Elva á Fífusölum
Kæra Elísa og fjölskylda.
Mínar allra bestu óskir ykkur til handa.
Guð og gæfan fylgi ykkur.
Bestu kveðjur.
Nanna
ohh við hlökkum svo til að fá að knúsa þig á morgun. Getum ekki beðið!
Takk fyrir síðast Brynjar Þór, það var voðalega gaman að fá að hnoðast aðeins með þig og sjá hvað þú brosir orðið mikið :) Sjáumst á morgun í skírninni :)
hae, hae Brynjar Thor!!! Vid erum stodd i kina og vildum senda ykkur barattukvedjur og goda strauma fyrir ferdina ykkar ut. Hlakka til ad hitta ykkur tegar tid komid heim og tu ert buin ad jafna tig....!
Kv, Berglind og Einar
Gangi ykkur öllum rosa vel í Boston. Ég hugsa til ykkar :-)
Knús, Hófí
Sendi ykkur bestu kveðjur og góða ferð til USA. Vona að aðgerðin gangi að óskum, kveiki á kerti fyrir litla manninn.
Magga ,,frænka"
Kondu sæll frændi, nú er langt síðan ég hef farið inn á síðuna þína. Þú ert á leiðinni til Boston, við verðum með þér í huganum,og guð veri með ykkur og vaki yfir þér. Kveðja úr sveitinni.