

Elsku Hlynur og Elísa.
Við óskum ykkur innilega til hamingju með litla kútinn og fallega nafnið hans. Það er gaman að geta fylgst með honum og skoðað myndirnar. Til hamingju með afmælið Hlynur. Gangi ykkur allt í haginn. Bestu kveðjur frá Akureyri. Fjóla og Pétur.
Elsku Elísa og Hlynur, innilega til hamingju með litla gullmolann!! :) Hann er alveg ofsalega fallegur :)
Kv. Karó tkm
komið þið sæl litla fjólskylda og til hamingju með prinsinn þu ert oskop litill að sja en duglegur ´það var gaman að skoða myndirnar kveðja ingibjorg og kalli
Hæ frændi. Ég var að skoða myndir af þér. Þú ert rosalega duglegur. Vona að þetta gangi allt vel.
Bestu kveðjur að Vestan!
Elsku Elísa og Hlynur, til hamingju með litla drenginn ykkar. Hann er svakalega flottur og duglegur og verður örugglega fljótur að stækka. Ég ætla að fylgjast með á síðunni og sendi ykkur góða strauma.
Kveðja Fanney S (LV).
Hæ Brynjar Þór :) Til hamingju með pabba þinn! Haltu áfram að stækka svona hratt, þá get ég kannski bráðum farið að knúsa þig í eigin persónu. Ég er svo ánægð með þig, kall ;)
Elsku Elísa mín og Hlynur, innilega til hamingju með prinsinn ykkar :) Hann er ótrúlega fallegur og ekkert smá duglegur! ég vona að allt gangi vel hjá ykkur og ég hugsa sterkt til ykkar. Kveðja frá Montréal.
Innilega til hamingju með litla prinsinn ykkar :)
vona að allt gangi vel!
flottar myndir af þér Brynjar minn ég hlakka til að sjá þig þegar þú færð að koma heim af gjörgæslunni og ert byrjaður að geta sofið án véla kær kveðja Sigurbjörg
Já þú ert líkur honum pabba þínum það finnst mér og svakalega ertu duglegur strax orðinn 5 merkur þú verður orðinn 2 kg áður en maður snýr sér við. Knús og kossar
Til hamingju með stórafmælið Hlynur Þór!!!
Gaman að sjá hvað Brynjar Þór er líkur pabba sínum á myndinni þar sem hann er glaðvakandi! Eins og Ninni litli sé mættur á svæðið aftur ;)
Hlökkum til að hitta ykkur í kvöld.
Knús & kossar til ykkar allra.
Mikið rosaleg ertu duglegur strákur Brynjar Þór.
Frábært hvað gengur vel hjá ykkur
kveðja
agga tákn
Þú ert alveg hreint ótrúlegt duglegur strákur, fallegt nafn sem foreldrar þínir gáfu þér :)
Haltu áfram að vera flottur gaur, þú ert greinilega í góðum höndum.
Knús tl mömmunar þinnar
Elva á Fífusölum
Hæ sæti prins! Er alltaf að kíkja á þig og skoða hvað þú ert sætur....er eitthvað hrædd um að gleyma því :) Haltu áfram að vera svona duglegur að stækka og ég bið kærlega að heilsa mömmu og pabba (sem mér finnst líka svaka dugleg ;)
Hæ dúllurassgat:) Mikið ertu nú orðin krakkalegur að sjá, þú stækkar og breytist með hverjum deginum! Þú verður sennilega bara vaxin uppúr fötunum sem ég á eftir að koma til þín þegar að þú færð að fara í föt! Haltu áfram að vera svona duglegur litli engill...skila kveðju til mömmu:)
Sæll fallegi prins! Þú ert svo duglegur og sterkur...Maður sér mun á myndunum á þér á hverjum degi! Gangi þér áfram svona vel og skilaðu kveðju til mömmu þinnar og pabba sem eru svo sterk! Kveðjur og knús...
Heill tugur af dögum að baki litli snáði. Þú ert alveg yndislegur og stendur þig svo vel. Mamma og pabbi þín standa sig líka svaka vel í þessu.
Knús og kossar til ykkar allra
Hæ Elsku frændi haltu áfram að vera svona duglegur mér hlakkar svo til að sjá þig ég er altaf að skoða myndir af þér
koss og knús kær kveðja Theodór Arnar
Halló halló.
Bara að kvitta fyrir innlitið. Ég fæ bara flash back á að sjá allar myndirnar frá Vöku. Endilega verið dugleg að skrifa i vefdagbókina, það er svo gaman að fylgjast með þessum flotta, sæta og duglega frænda:) Síðan mætti nú setja eina mynd af pabbanum í albúmið;) bara svona fyrir forvitna eins og mig! Hafið það gott.
Blessó klessó Benný frænka og grísirmir 3.
Hæ hæ.
Vildi bara kvitta fyrir mig enn einu sinni ;)
Skoðum myndir af fallega frænda á hverjum degi!
Vonandi sjáumst við nú um helgina fyrst pabbinn er að verða svona aldraður ;)
hæhæ vá u ert svo sætur vá eg skal allveg eiga þig skom hey elisa eg skal eiga hann,......:):) en hey eg var að skoða myndirnar og vá u ert svo fallegur svona litill og til hamingju elisa og hlynur fyrir soninnn og nuna á litnn frænda muhahahh eg elska ykkur vonandi gengur ykkur vel.. :):)
Elsku Elísa og Hlynur,innilegar hamingjuóskir með litla ljósgeislan ykkar hann Brynjar Þór.Nafnið hans er bæði fallegt og táknrænt,fyrir vernd,að brynja sig fyrir frá öllu illu. Bestu kveðjur. Tóta Þórarinsd.frænka.
Jesús hvað maður er lítill og mikill krúttus.
Innilega til hamingju Elísa mín og gangi ykkur sem allra best ;)
bestu kveðjur
Halla
Elsku Elísa og Hlynur!
Innilega til hamingju með hann Brynjar Þór, hann er rosalega flottur ;)
Gangi ykkur vel!
Kveðja frá Selfossi
Mig langaði bara að óska ykkur innilega til hamingu með þennan fallega stubb. Gangi ykkur rosalega vel.
Kveðja Jóna
Hæ Brynjar Þór Frændi þú ert svo duglegur
kveðja Theodór Arnar Örvarsson
hæ Brynar þór til hamingju með að vera komin á venjulega gjörgæslu, gangi þér allt í haginn og haldu áfram að braggast svona vel og við hugsum vel til þín, bæði í hugsunum og í bænum okkar.og Elísa og Hlynur hún Stella biður að heilsa og hún biður fyrir syni ykkar
Elsku Hlynur og Elísa - til hamingju með litla drenginn og fallega nafnið hans - hann er svo sannarlega heppinn með foreldra og á örugglega eftir að líða ofur vel hjá ykkur :)
Halló Brynjar Þór og til hamingju með að vera komin á venjulega gjörgæslu, gangi þér allt í haginn og haldu áfram að braggast svona vel og við hugsum vel til þín, bæði í hugsunum og í bænum okkar. Kveðja Ína og Sigurgeir frændi
Innilega til hamingju með litla prinsinn.
Hugsa til ykkar.
Kv. Erna Karen