

Takk fyrir okkur um daginn, komnar flottar myndir.. vid fengum lanadar 2.. f. okkar sidu :´). Knus og kram fra DK
Flottar nýju myndirnar :) Takk fyrir síðast, ég hlakka til að fá þig aftur í heimsókn og þá ætla ég að vera búin að redda meira dóti fyrir kallinn :) Kv. Svala frænka.
Hæ, hæ. Það er aldeilis að gaurinn hefur stækkað, enda orðinn tveggja ára. Fljótt að líða. Gangi ykkur sem allra best.
Elísa, gaman að þú skulir vera byrjuð aftur í LV :o)
Kveðja,
Nellý
elsku Brynjar Þór frændi og vinur til hamingju með 2 ára afmælið þitt hlakka til að hitta þig í veislunni mamma og pabbi biðja að heilsa þín frænka og vinkona Díana Rós
Elsku frændi.
Innilega til hamingju með 2 ára afmælið! Vona að þú hafir átt góðan dag í leikskólanum og með mömmu og pabba. Hlökkum til að sjá þig :)
Bestu kveðjur,
Heiða frænka & gengið.
Til hamingju með afmælið elsku vinur, við fáum að koma með pakkann þegar við komum að heimsækja þig, eigðu góðan dag... kv. Birkir og familie, ps. munum eins og gerst hafi í gær er þú fæddist..
Frábærar myndir, þú ert nú meiri partýkarlinn... slóst Birki vel við.. við segjum það sama, hlökkum mjög mikið til að hitta ykkur, biðjum að heilsa í bili, kv. ie
Hæ elsku frændi það var gaman að hjá ykkur á jóladag hafðu það gott á Gamláskvöld
kveðja Arnar
Ástarþakkir fyrir samveruna núna um jólin kæri frændi! Alltaf jafn gaman að hitta þig, þú kemur manni alltaf í gott skap :)
Flottar myndirnar! Sjáumst fljótlega aftur flotti strákur.
Mikið ertu orðin stór Brynjar Þór:) tíminn flýgur greinilega hjá! Ég bið að heilsa múttu þinni. Gleðileg jólin:)
Þúsund þakkir kæri vinur fyrir afmælisgjöfina... núna þarf ég að minna mömmu á að kaupa e-ð fínt f. þig líka... svakalega gaman að fá pakka og ég reif utan af honum með aðstoð Erlings.. jólakossar og knús frá Danmörku
Hæ sæti leikskólastrákur! Lilja Dís er byrjuð á leikskóla, voða gaman :) Þið væruð nú örugglega mjög góð saman, þar sem Lilja Dís er algjör prakkari!
Bestu kveðjur Lilja Dís og Herdís.
Gaman að skoða flottan strák.. duglegur á leikskólanum og mikill vinnumaður heima við... kærar aðventukveðjur frá Mårslet
Það er bara allt að gerast hjá þér litli maður :) Orðinn leikskólastrákur og farinn að pissa í kopp....verð víst að fara að sætta mig við það að yngsta barnið í hópnum er að verða 2ja ára ;) Vonandi hitti ég mömmu þína í kvöld svo hún geti sagt mér frá prakkarastrikum af þér!
Vá hvað þú ert orðinn stór og stæðilegur með svaka prakkarasvip:) Bið að heilsa múttu:)
langt síðan við höfum komið við hér enda með eindæmum löt fjölskylda þegar kemur að tölvunum jæja fallegar myndir enda myndefnið fallegt fólk, vonandi hittumst við fljótt og takk fyrir greiðann með dekkin eigum eftir að hitta burðarklárana og þakka þeim fyrir að flytja allt yfir heiðina annars bara bestu kveðjur úr Birkigrund 5
Þú ert nú meiri pjakkurinn ;)
Bið að heilsa mömmu þinni..
kv. Sirra
Æði, litla bjúti beib... kominn líka með svona mikið hár... alger töffari. Segjum bara öll, gangi þér vel að byrja á leikskólanum og taktu sterklega á móti umgangspestunum... kærar kveðjur frá Danmörku...
Hæ sætilíus!
Svo gaman að skoða myndirnar af þér. Frétti að þú værir dálítið duglegur að klifra og myndirnar sanna það ;)
Það er bara yndislegt að vita til þess að þú ert svona duglegur enda báðum við guð svo lengi um að þú fengir getu til að verða hinn sprækasti eftir erfiðu veikindin þín ;) Okkur varð sannarlega að ósk okkar :)
Verst að mamma og pabbi eru ekki eins spennt fyrir svona gauragangi...híhíhíhí...
Bestu kveðjur frá okkur á Kirkjuteignum.
Telma Rós sendir lúðrakveðjur til frænda!
Flottar myndirnar frá Montreal! Sérstaklega þessar úr kínagarðinum ;) Bara alveg eins og í Kína þegar við vorum þar!!! Hrikalega flott :)
Sjáumst fljótt stóri strákur!
Gaman að sjá myndirnar ykkar frá Montreal, það er greinilegt að þessi ferð hafur verið mjög skemmtileg.
Gaman að sjá líka hvað þú ert orðinn hrikalega stór og fullorðinslegur ;)
Alltaf jafn sætur.. ég verð nú að fara að hitta ykkur við tækifæri. Ég er núna hætt að vinna og bara að bíða eftir lillanum meðan ég skrifa ritgerð :)
hafið það gott.
Halla Karen
Hæhæ! Okkur sýndist hafa séð pabba þinn á flugvellinum en vorum ekki alveg viss. Mjög fyndið að við vorum á sama stað á sama tíma. Það hefði verið gaman að hitta á ykkur :) Skemmtilegar myndir frá Montreal! Greinlega mikið ævintýri! Bestu kveðju frá okkur!
Gaman að sjá svona mikið af nýjum myndum af þér grallari :)
Þið virðist hafa haft það gott í Montréal og vonandi gat mamma þín verslað eitthvað, sjáumst sem fyrst!
Vá, hvað þið hafið haft það huggulegt í Montreal.. þið bara ljómið öll. Gaman að fylgjast með... kveðjur frá Mårslet
Halló sæti frændi ! Það er svoldið langt síðan ég kíkti síðast á síðuna þín og vááá.. hvað þú ert orðinn stór strákur og duglegur. Við biðjum að heilsa mömmu og pabba,
Vonandi sjáumst við fljótlega . kv Sjöfn og Geiri
Gaman að sjá flottar myndir af flottum strák :)
kv Óskar, Björg og peyjinn.
Hæ sætasti frændinn!
Rosalega var gaman að hitta þig um daginn þegar við kíktum í Vesturbæinn til ykkar. Alltaf ertu að stækka og stækka og læra meira og meira :)
Við verðum sko oftar í heimsókn fyrst við fjölskyldan erum flutt í höfuðborgina.
Hafðu það gott og góða skemmtun í útilegunum!
Elsku Brynjar Þór. Flottar myndirnar af þér í Húsdýragarðinum og líka flottar myndir af þér í útilegunni.Vonandi sjáumst við fljótt. Bestu kveðjur, Telma Rós.
Hæ Sæti :)
Jáaa það er ekkert smá gaman að leika í sandkassa og að stinga mömmu og pabba af :) Það finnst Lilju Dís líka!
Sumar kveðja til ykkar!