Brynjar Þór og Elma Sóley
 

Velkomin á síðuna okkar! 

ATH! Nýjar myndir settar inn 25.janúar 2014!!!!!

Við erum syskinin Brynjar Þór og Elma Sóley! :)

Brynjar Þór fæddist 16. janúar 2007. Hann var frekar mikið að flýta sér í heiminn og kom rúmum 2 mánuðum fyrir tímann, eða eftir aðeins 31 viku og 3 daga meðgöngu. Hann var því voðalega lítill, aðeins 1128 grömm og 36 cm. Hann var svo skírður 3.júní 2007.

Brynjar Þór er í Hólabrekkuskóla í Breiðholti. Hann er voða glaður lítill 7 ára ormur og finnst rosalega gaman að spila á trommur og syngja! 

Elma Sóley fæddist 15.júní 2011. Hún fæddist eftir 40 vikur og 3 daga meðgöngu. Lét sem sagt bíða örlítið eftir sér eins og sannri prinsessu sæmir! Hún vóg 3220gr við fæðingu (rétt tæpar 13 merkur) og var 49 cm. Hún var skírð 9.júlí 2011.

Elma Sóley er í leikskólanum Hraunborg í Breiðholti og deildin hennar heitir Þrastaland. Hún er ósköp ákveðin ung dama og þykir voða gaman að prakkarast með bróður sínum. 

 




  Læsum síðunni 

Nú höfum ákveðið í samráði við Brynjar Þór að læsa síðunni og fékk hann að velja lykilorðið sjálfur. Síðan verður framvegis hugsuð fyrir vini og ættingja, þeir sem vilja fá aðgang að henni sendið okkur línu á hlynur.thorleifsson@gmail.com eða egb1@hi.is. Einnig þætti okkur vænt um að öðrum sé ekki gefið upp lykilorðið heldur vísað frekar á okkur, við bítum ekki svo fast :o)

     





Heimsóknir í dag: 1
Heimsóknir frá upphafi: 35977