Við erum bræðurnir Unnar Birkir og Ágúst Ægir
Við erum bræðurnir Unnar Birkir og Ágúst Ægir
 
 
 

Unnar Birkir Árnason er fæddur á Neskaupsstað þ. 16.04.2003 og er því hrútur. Unnar var að byrja í skólanum nú í haust og gengur rosalega vel og finnst gaman í skólanum. Unnar stundar bæði fimleika og fótbolta og hefur því nóg að gera. Unnar er aðrahverja viku hjá pabba sínum sem býr líka á Egilsstöðum og þar á hann líka lítinn bróður sem heitir Árni Veigar og er 2 ára.

Litli bróðir fæddist líka á Neskaupsstað þ. 07.12.2009 og er því bogmaður. Fæðingin gekk vel og var litli maðurinn rúmlega 14 merkur og 53 cm. Við vorum komin heim daginn eftir og allt gengur vel sem komið er.

Mamma og pabbi giftu sig í ágúst eða þ. 08.08.2009 og við búum öll saman á Egilsstöðum.

Þessi síða er í smíðum og myndir og annað verður sett inn næstu daga og þá sérstaklega þegar litli bróðir verður mættur á svæðið.



Heimsóknir í dag: 1
Heimsóknir frá upphafi: 743