~ JÓN HJALTALÍN ~
 


Hæ hæ ég er lítill draumaprins sem fæddist þann 17. janúar 2006 á settum degi.

Ég var um 15 merkur og 52 cm.. og alltaf að stækka með hverjum deginum.

Ég kom í heiminn á Hvidovre Hospital í Kaupmannahöfn.

Fjölskyldan bjó á Kollegiet Solbakken í Kaupmannahöfn þar sem báðir foreldrar voru í mastersnámi við Copenhagen Business School.

Nú búum við í Garðabænum þar sem við bjuggum áður en við fluttum til Kaupmannahafnar. Ég er á frábærum leikskóla sem heitir Smábarnaleikskólinn við Ránargrund. Allir kennararnir þar eru meiriháttar skemmtilegir og þangað kem ég með bros á vör hvern morgun.

Heimasíðan kemur til með að vera troðfull af myndum af gullinu fyrir fjölskyldu og vini heima á Íslandi sem við söknum óendanlega mikið.