
Líst ekkert smá vel á þessar breytingar ykkar, ótrúlega dugleg hjón sem þið eruð Edda mín og Halldór Svavar :)
Emilía alltaf jafn sæt!
Hlakka ótrúlega til að hitta ykkur elskurnar í sumar og kynna litlu vinkonurnar. Þær verða flottar saman þegar lilla stækkar aðeins ;)
Kossar og saknaðarknús frá Akureyri :*
Vá myndböndin eru algjört æði :)
Við erum búin að skemmta okkur konunglega yfir böndunum og öllum nýju myndunum :Þ :Þ
aðeins að kíkja á hana Emilíu mína og sjá hvað hún er að brasa án mín.. hmm maður heyrir nú varla didda né sigga út úr þessu hjá henni.. hún verður tekin í stífar æfingar þegar ég kem heim. Er að reyna að fá EJ til að læra þetta en það gengur vægast sagt illa. Gefst þó ekki upp.
já það var æðislega gaman í sundinu. Fyndið hvað þau virðast bæði laðast að eldri strákum/stelpum;)
Æðislegar myndirnar af eldhúsinu...hlökkum til að kíkja í kaffi og sjá þetta hjá ykkur þegar allt er klárt!
Va! Hvad thid erud dugleg... enginn sma munur, baedi i eldhusinu og herb Emiliu ;-) Hlakka til ad sja i sumar thegar barbordid hefur verid laekkad! Emilia er nu enginn sma prakkari... ogedslega saet :-P
Kossar og knus *
Svakalegur kraftur er í gangi þarna hinum megin. Það er bara verið að taka allt í gegn ;) Nýju stígvélin eru glæsileg og ættu að nýtast vel í stemmningunni á róló.
Ég stóðst ekki mátið og varð að kvitta fyrir innlitið!
Sjáumst
María á númer 5 ;)
Emilia mín, nú þarftu að drifa mömmu og pabba aftur i húsdýragarðinn að sjá litlu lömbin sem að fæddust í dag
:Þ Mikið hlakka ég til að koma næst og spjalla, spá og spekúlera með ykkur öllum elskurnar ...
Oh... hvad er gaman ad fa ad fylgjast soldid med ykkur... og hvad thid erud dugleg... ekkert sma flott hja ther Edda ad mala skapana ;-) Heyri i ykkur fljotlega! Koss og knus ur vorinu i Falun ***
O já, vonum að sólin fari að láta sjá sig svo við getum gert e-ð skemmtilegt saman fljótlega. Knús á ykkur:)
Ooo ég er ekkert farin að sakna ykkar smá mikið mæðgur. Verð að taka pásu frá bókunum og kíkja á ykkur.
Knús á ykkur:*
Kata
Þið eruð öll svo sæt...hlakka svo mikið til föstudagsins:)
Haha heyrði að þú áttir erfitt með þig þegar Emí datt af bílnum.
Hún er nú meiri yndið hún Emilía :) Mér finnst fyndnast þegar hún leikur fiskinn. Greinilega bráðgreind stelpa! Rosalega var gaman að sjá ykkur um daginn nú er boltinn hjá mér og ég þarf að drífa mig í heimsókn sem fyrst...
Kveðja
Dagrún og Hildur Lilja
Sú er orðin klár að tala ... það er bara amma og api!!! :Þ
Stuð að skoða nýjar apríl myndir.. ég er glaðasta afmælisbarn sem til er. Enda ekki annað hægt þegar maður fær kökur og afmælissöng. Ég sé að Emí er byrjuð að skúra. Það er ágætt því hún er líka svo dugleg að rusla til.
Þá er það loksins komið á hreint. Ég verð heima á þriðjudaginn næsta. Vonandi fæ ég að sjá í skottið á ykkur skvísunum :)
Kveðja Dagrún og Hildur Lilja
Gaman hvað hún er farin skilja vel og hafa frumkvæði elskan sú arna ... :) :)
Alltaf jafn flottar myndirnar af ykkur fjölskyldunni og fylgifiskum :) Hlakka til að sjá ykkur sem verður vonandi sem fyrst.
Kveðja
Dagrún og Hildur Lilja
Rosalega gaman að rólumyndbandinu!
Elskulega fjölskylda gaman að skoða myndirnar af ykkur. Mér finnst Emilía á mörgum myndanna minna mig svo á Ölmu þegar hún var lítil . Bið voða vel að heilsa ömmu Ingunni og afa Sigurði hafið það sem best. Kveðja frá frændfólkinu á Egilsstöðum.
Edda, þú verður að drífa í að unga út einu í viðbót, mátt ekki vera með færri en öll hin frændsystkinin;)
Voðalega er nú mikið uppúr þessari síðu að hafa, skoðum hana flesta daga
Afi og Amma í Vin
Hæ sætu mæðgur! Ég er strax farin að sakna ykkar úr skólanum en ég er illa sátt að móðirin skulu vera mætt í World class á nýjan leik, hef þá einhvern til að koma með mér í tíma;) Ég held áfram að vera tíður gestur á heimilinu þrátt fyrir að nú verði ekkert talað um burðarþolsfræði eða annað í þeim dúr...
Knús
K
Vá hvað þú ert orðin stór sæta stelpa!
bið að heilsa múttu og pabba;)
kv. Adda
Hæ dúllur!
Varð bara aðeins að kvitta fyrir mig, var að kíkja á litla krúttrassinn :) Hún er æði!
Knús frá DK,
Eva
Takk fyrir bókina elsku frænka:)
Þú átt smá pakka frá mér hjá Nönnu Ýr!
Skemmtilegar myndir af Emí og Sólon að leika sér. Sólon er svo mikill töffari. og töff þessi dökkhærða mamma.
En skemmtileg bók! og það er greinilegt að Emilía verður skipulagsfrík eins og móðirin.