Velkomin á heimasíðuna okkar!
Við erum systurnar Thelma Kristbjörg og Þórhildur Anna.
Thelma Kristbjörg fæddist 26. júlí á 207. degi ársins 2007.
Þórhildur Anna fæddist 21. mars 2012.
Mamma okkar heitir Anna Svava og pabbi okkar heitir Bæring.
Thelma Kristbjörg kom tveim vikum fyrir tímann og vó 3620 g og var 49 sm að lengd.
Hún fæddist með alvarlegan fæðingargalla sem kom í ljós eftir stífar rannsóknir. Miðhluti hægra lungans var þanið, sem er mjög sjaldgæft.
Hún var mjög veik og aðeins tveggja vikna fór hún í brjóstholsskurðaðgerð og partur af lungunum var fjarlægður.
Hún braggast vel, stendur sig eins og hetja og er sannkallaður verðlaunagripur (eins og læknarnir segja).
Þórhildur Anna kom í heiminn rúmlega viku eftir settan dag. Hún vó 4250 g og var 51,5 sm að lengd.
Braggast einstaklega vel og er sérlega brosmild.
Síðan er læst, ef ykkur vantar lykilorðið, sendið tölvupóst á annass@ru.is til að fá aðgang.
Heimsóknir í dag: 1
Heimsóknir frá upphafi: 8935