Ásrún Eir og Hugi Þeyr
 

Gestabók

Tobba

Rosalega hefur verið gaman hjá þér í sveitinni ;)
Gaman að skoða allar myndirnar.
Kveðja
Tobba, Eyþór Bjarki og bumbukrúttið ;D

Skrifaš žann 15. April 2007 20:52.

Ragnheiður

eins gott að maður kvitti fyrir innlitið
Mikið eru nýju myndirnar æðislegar, greinilegt að þú kannt vel við þig í sveitinni og sundinu.
Bið að heilsa í bæinn.
Luv R

Skrifaš žann 15. April 2007 16:55.

Jóna Finndís

Mikið tekur þú þig vel út með lömbunum Ásrún. Þið getið kannski fengið ykkur 1-2 heimalninga á svalirnar í sumar, svona til að þjálfa smalagenin strax frá byrjun.

Skrifaš žann 12. April 2007 12:49.

Arnheiður

Sæta sveitastelpa :)
Tekur þig vel út. Kíkir í Hvalfjörðinn ef þú færð fráhvarfseinkenni og þarft að komast í sveitalykt í einum grænum :)

Kær kveðja frá okkur á Bjarteyjarsandi

Skrifaš žann 10. April 2007 22:18.

Svafa Mjöll

Ohh hefði ég nú vitað af þér í sveitinni þá hefði ég kannski bara rennt þangað til að knúsa þig:o) En sé að þér hefur líkað vel við öll dýrin, sem er mjög gott, alltaf gott að vera í sveitinni:o) Knúúús og Kossar!

Skrifaš žann 10. April 2007 18:15.

Erla

hæ hæ, ekkert smá flottar myndir úr sveitinni. Ég sé að Kári verður bara að fara að drífa sig í Húsdýragarðinn að skoða kálfinn og lömbin þegar þau koma ef við förum ekki í alvöru sveit.
Bestu kveðjur, Erla Öræfingur :)

Skrifaš žann 10. April 2007 15:41.

Arnheiður

Hæ skvísur og takk fyrir síðast :)
Og Svava mín, til hamingju með afmælið um daginn.
Bestu páskakveðjur til ykkar allra.

Adda og co.

Skrifaš žann 6. April 2007 20:45.

Dísa

Hæ hæ sæta!
Ekkert smá flottar myndir af þér og þú orðin dugleg!!! Til hamingju með fimm mánuðina og einnig hana mömmu þína um daginn. Vona að við sjáumst sem fyrst ;)
Bestu kveðjur
Dísa

Skrifaš žann 2. April 2007 17:47.

Anna Bjarnad.

HÆ !!

Takk fyrir viðlitið um daginn. Það var nú aldeilis skemmtilegt :O)

Ég ætlaði að kíkja á ykkur (á netinu) en var ekki hleypt inn ... er ég ekki lengur í hip og kúl hópnum?

Skrifaš žann 2. April 2007 16:10.

Ragnheiður

Hæ hæ
Þetta eru ekki smá margar og flottar myndir af þér (ég hef greinilega ekki verið að fylgjast nógu vel með síðunni þinni).
Þú ert greinilega að stækka og þroskast hratt og örugglega.
Til hamingju með múttu gömlu, þú knúsar hana kannski frá mér þangað til ég kem pakkanum og afmælisknúsinu til skila ;)
Luv luv R

Skrifaš žann 31. March 2007 13:39.

Svafa Mjöll

Til hamingju með gærdaginn sæta mín..Þú stækkar alltof hratt...Og ekki yngjumst við mamma þín á meðan:p Vonandi fer ég að komast að knúsa þig fljótlega! Knús og Kossar..

Skrifaš žann 27. March 2007 12:15.

Ása frænka

Sælar mæðgur og takk fyrir heimsóknina um daginn. Flottur sófi, maður þarf bara að kíkja í heimsókn og kanna þægindin. Kannski fær maður að prófa Tripp Trappinn í leiðinni.............er hann ekki annars fyrir allan aldur.
kv Ása

Skrifaš žann 22. March 2007 13:30.

Þórhalla

Hæ hæ sæta, Þetta eru alveg frábærar myndir og ég er enn að hlæja af myndunum þar sem að þú og Kári eruð að spjalla. Ég bara verð að fara að hitta þig í eigin persónu!
Bestu kveðjur Þórhalla

Skrifaš žann 22. March 2007 10:41.

Erla

Til hamingju með flotta sófasettið og tripp trapp stólinn! Og myndirnar af þér og Kára eru nú fyndnar, mamma þín er svo dugleg að búa til sögur í kringum ykkur.

Skrifaš žann 19. March 2007 18:54.

Ríkey á móti

Hæ prinsessa!

Vá hvað þú ert orðin mannaleg - farin að sitja og allt!

Ætla að kíkja yfir til þín bráðlega og knúsa þig smá - svo þarf ég líka að skoða nýja sófann betur... hann fellur nefnilega algjörlega í skuggann af svona sætum krúsídúllum á myndum :)

Sjáumst fljótlega
*knúúús*
R

Skrifaš žann 19. March 2007 16:57.

Magnús Örn

Hæ Ásrún Eir!
Vonandi manstu nú eftir gamla og þreytta frænda þínum síðan síðast. Þú ert nú örugglega með fallegri börnum sem ég hef séð um mína langa ævi og er ég svaka stoltur yfir að eiga þig sem frænku!
Mamma þín er búin að lofa því að þið kíkið í heimsókn til mín fljótlega og þú lætur hana standa við það.
Þinn frændi.
Magnús

Skrifaš žann 15. March 2007 16:54.

Svafa Mjöll

Hæ sætust! Þú stækkar ekkert smá og þroskast þessa dagana. Hlakka til næst þegar ég get komið og knúsað þig.

Skrifaš žann 13. March 2007 14:55.

Hrefna

Hæ hæ, það er nú aldeilis hvað þú hefur stækkað og mannast síðan síðast ég sá þig Ásrún !! Og til hamingju með skírnina ! Rosalega fínar myndir, mjög gaman að skoða :)
Hlakka til að sjá ykkur, vonandi sem fyrst.
Hrefna

Skrifaš žann 12. March 2007 22:00.

Ragnheiður

Hæ skvís
Gaman að fylgjast með hvað þú þroskast og stækkar ;)
Takk fyrir hittinginn í hádeginu. Þú kannt þig greinilega svona "út að borða" ;) Sefur meðan fullorðnir borða og vaknar svo að því loknu bara til að vera með í umræðunum, brosa og vera sætust.
Sjáumst krútt ;)
Luv R

Skrifaš žann 7. March 2007 22:35.

Eyþór Bjarki og mamma

Hæ sæta skvísa!

Nú er sko alveg kominn tími til að við hittumst og spjöllum aðeins saman:)
Sjáumst fljótlega
þinn vinur
Eyþór Bjarki

Skrifaš žann 5. March 2007 18:45.

Nína Sigurðardóttir

Hæ!
Það er alltaf jafn gaman að skoða myndirnar þínar, þú ert svo sannarlega falleg stúlka. Við höfum reyndar ekki sést síðan í desember en það fer nú vonandi að rætast úr því...
Knúsiknús,
Nína.

Skrifaš žann 1. March 2007 20:52.

Ríkey á móti

Halló litla prinsessa!

Var að kíkja hérna inn í fyrsta sinn þó mamma þín hafi fyrir löngu verið búin að segja mér frá síðunni þinni. Ég bara meðtók það ekki. Þetta er aldurinn - þú skilur það bara e-n tímann seinna :)

Annars finnast mér rosalega fínar myndirnar af þér og greinilegt að þú ert dugleg að vaxa og dafna. Svo sá ég þig vera að blogga á einni myndinni svo líklega skrifaðu þetta barasta allt sjálf - lætur bara líta út fyrir að það séu mamma og pabbi sem eigi heiðurinn af því!

Ég bið samt að heilsa gamla settinu og sendi koss á þig í leiðinni, krúsidúlla :)

Skrifaš žann 23. February 2007 17:42.

Helga Hrönn

Hæ, hæ.
Rosalega flottar myndir. Hlökkum til að hitta ykkur eftir tæpa viku.
Kv.
Helga og Kristófer Logi

Skrifaš žann 23. February 2007 15:51.

Ragnheiður

heyrðu ég var að sjá að maður "á" að kvitta. Var bara ekki búin að taka eftir þessu áður. Ég sem laumaðist inn á síðuna í gær og kvittaði ekkert þá, úps. Þetta verður þá bara að vera tvöfalt kvitt í þetta sinn.

Sjáumst fljótt (alveg leið og ég er búin með þetta blessaða heimapróf)
Luv R

p.s. Ásrún var jafnmikið krútt báða dagana.. ;)

Skrifaš žann 22. February 2007 17:19.

Þórhalla

Hæ hæ og innilega til hamingju með skírnina. Mér finnst alveg frábærar myndirnar af þér og honum Kára Fannari algjörar rúsínur og ég er ekki frá því að þið séuð bara svoldið lík mömmunum ykkar og talandi um mömmur þá var voða gaman að sjá mynd af múttunni þinni. En bestu kveðjur til ykkar, Þórhalla og co.

Skrifaš žann 18. February 2007 21:29.

Erla

Til hamingju með skírnina Ásrún Eir. Þú hefur ekkert verið í neitt smá flottum kjól og með flotta slaufu!
Hlökkum til að sjá þig og mömmsluna þína á morgun.
Erla og Kári Fannar

Skrifaš žann 13. February 2007 18:40.

Guðmóðirin að austan

Já segðu eins gott að við Ragnheiður (guðmóðir) séum ekki á sama stað hehe:o) En frábærar myndir..enda myndarlegt fólk þarna á ferð;o) Kiss Kiss og STÓRT KNÚS!!!

Skrifaš žann 13. February 2007 14:41.

Erna

Til Hamingju litla rúsína með nafnið og skírnina, líka kveðjur til mömmu og pabba.

Kveðja Erna Frænka

Skrifaš žann 13. February 2007 14:41.

Nína Hrönn Sigurðardóttir

Elsku Ásrún Eir og fjölskylda!
Til hamingju með skírnina og auðvitað fallega nafnið þitt. Þið eruð öll svo falleg og sæt og þú ert algjör rúsínubolla:-)
Eigum við ekki að fara að hittast??
Kv. Nína.

Skrifaš žann 12. February 2007 19:06.

Dísa

Hæ hæ!
Æðislegar myndir, við Emma skemmtum okkur vel við að skoða ;) enda engin smá dúlla á ferðinni greinilega. Hlökkum til að sjá ykkur
Bestu kveðjur
Dísa og grísirnir

Skrifaš žann 5. February 2007 18:21.

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12