

Hæ hæ snúlla, Fínar myndirnar af þér í júní albúminu og múttan alltaf jafn duglega að skrifa við myndirnar. Hvernig væri nú að kíkja í heimsókn á Hornafjörð? Bið að heilsa.
Hæ, bara að kvitta fyrir mig ;) gaman að lesa fréttir af ykkur, gott að allt gengur vel. Hittumst sem fyrst aftur :)
Hrefna
Jíbíi. ég sá fullt af nýjum myndum.. var ekki búin að átta mig á nýju myndunum í júní albúminu. Var svo svakalega upptekin við að skoða 17. júní hátíðarhöldin....
Sjáumst sem allra allra fyrst
Luv R
Hæ, þú hefur bara haldið almennilega uppá þjóðhátíðardaginn farið og sýnt þig og séð aðra! Hlökkum til að hitta ykkur á morgun, Erla og Kári Fannar
Hæ sæta skvísa,
var að skoða myndirnar af þér, rosa flottar! Greinilega verið mikið stuð á ykkur á 17. júní. Fylgdist líka aðeins með ykkur þegar þið voruð að róla um daginn - þú stóðst þig rosa vel... og forsíðumyndin er æði!!
Þú kannski bendir ritaranum þínum á að klára setninguna í Fyrstu árunum sem byrjar "21. maí kom pabbi heim úr vinnunni og þá var ég rosa glöð og sagði...."!!.
Hvað sagðirðu??? Er rosa forvitin!!
luuuv, R
Jæja Ásrún Nú er ég kominn í sumarfrí þangað til kemur að fjölgun. Við þurfum endilega að plata mömmu þína á kaffi Flóru bráðum (þe ef það styttir upp). Þá muntu nú sjá hvernig þessar kellur njóta lífsins.
hæ sæta
Takk fyrir komuna um daginn og samúðina....
Sætar myndirnar af þér.. Nú bíð ég spennt eftir júní albúminu. Lætur mömmu þína vita af því að það sé kominn júnímánuður..
Ég er nefnilega nýbúin að uppgötva það sjálf ;)
Luv luv R
Mikið ertu alltaf jafnmikið krútt, frábærar myndir af þér og fjölskyldunni. Hlakka mikið til að hitta þig sem allra fyrst
kær kveðja
Ágústa
Blessuð
Til hamingju með nýju tönnina.. Gott að hafa svona samhverfu í þessu..
Sjáumst sem fyrst
Luv R
Hæ,hæ.
Mikið var nú leiðinlegt að missa af síðasta hittingi, svona er að vera byrjaður að vinna. Við plönum að vera með næst:)
B.kv
Helga og Kristófer Logi
Eitthvað klikkaði textinn þarna í fyrra skiptið en það var slæmt að ég skyldi ekki vera heima á uppstigningardag því þá hefði ég reynt að ná um ykkur en það gengur bara betur næst. En flottar myndir af prinsessunni.
Hæ, hæ.
Rosalega flottar myndir úr sveitinni, mann langar bara að bruna út í sveit þegar maður skoðar þetta.
Vonandi sjáumst við á morgun.
B.kv
Helga Hrönn
Kvitti kvitt
æðislegar sveitamyndir...
luv R
Hæ sætust. Takk fyrir síðast. Verð nú að fara að hitta þig með styttra millibili svo þú verðir ekki alltaf feimin við mig:o) En það var frábært að fá þig og fjölskylduna þína alla í heimsókn. Knús og Kossar.
Hæ allir,
Flottar sveitamyndir af börnunum :)
Hlökkum til að sjá ykkur.
Kveðja
Adda og co.
Meiriháttar myndir af þér skvísa. Við erum einmitt á leiðinni austur á eftir í sveitasæluna. Það er sko ekki ónýtt að komast í heimsókn til dýranna hvenær sem mann langar! Það verður örugglega jafn mikið stuð hjá Eyþóri Bjarka með kindunum eins og hjá þér:)
Sjáumst fljótlega
Kveðja
úr Mosó
Hæ, hæ.
Voða fínar myndir, það er bara ullað á mann.
Hlakka til að sjá ykkur í næstu viku.
Kv
Helga
Halló prinsipessa!
Var að skoða maí-myndirnar og þú verður bara mannalegri með hverjum deginum sem líður - algjör dúlla :-)
Til hamingju með nýju kerruna... þið momsí eigið örugglega eftir að tæta og trylla um allan Fossvogsdalinn á nýja tryllitækinu!
luuuv, R
Hæ sætust! Hlakka til að sjá þig og knúsa eftir nokkra daga. Verður vonandi ekki jafn sybbinn þá og þú varst síðast þegar ég sá þig:p Kiss Kiss
Góðan daginn
Ég kvitta af einskærri hlýðni við húsfreyjuna á bænum ;)
Sjáumst sem fyrst..
LUV R
sæl og blessuð frænka,það er nú meira hvað þú stækkar hratt...
það er aldeilis gaman að sjá hvað þú unir þér vel í sveitinni en þar er nú alltaf gott að vera og skemmtilegir textarnir með myndunum. vona nú að við fáum að fara sjá þig fljótlega verður bara að segja mömmu þinni að skreppa aðeins austar í sveitina næst. knús kveðja erna frænka
p.s.... mér finnst best myndin þar sem þú ert í hrókasamræðum við hann afa þinn - eruð greinilega búin að leysa lífsgátuna og meira til!!
Halló dúlla!
Mikið var nú gaman að skoða nýjustu myndirnar þínar - tókst þig rosalega vel út í sveitinni... enda orðin alveg svoooooona stór :)
Endilega vertu nú dugleg að sitja fyrir svo við fáum brátt annan myndaskammt til að dáðst að - það færir birtu og gleði í daginn :)
*knúúúús* Ríkey oldie
Hæ sveitastelpa
Greinilegt að þú kannt vel við þig í sveitinni eins og mamma ;)
Frábærar myndir.
Luv R
Hæ krútt..
Ég á nú dáldið bágt með að trúa því að það séu liðnir 6 mánuðir frá því þú fæddist.. en púff.. svona líður tíminn hratt.
Innilega til hamingju með hálfs árs afmælið ;)
og það er alveg rétt þú ert "líklega besta barn í heimi" eins og stóð á bolnum þínum.
Hlakka til að hitta þig sem fyrst og góða skemmtun í sveitinni með lömbunum.
LUV og stórt knús
R
Kvitt kvitt. Byrjuð að borða og sonna, bananarnir venjast fljótt og eftir smá verða þeir bara nokkuð góðir. Flottar myndir og skemmtilegir textar með. Bestu kveðjur
Hæ hæ sæta!
Æðislegar myndir...greinilega rosa gaman í fjárhúsinu og svo svaka dugleg í sundinu ;) Emma rosa hrifin!!!! Verðum nú að fara að hittast fljótlega, bara spurning um skipulagningu :)
Bið að heilsa í kotið
bestu kv. Dísa og Emma
Hey babes
Bara að kvitta fyrir innlitið. Er auðvitað bara að athuga hvort mamma þín hafi sett inn fleiri myndir eða skrifað eitthvað voða sniðugt og skemmtilegt ;)
Jæja dúlla, hittumst sem fyrst.
Luv R
Þú ert lang sætust. Ekkert smá fyndinn svipurinn á þér eftir bananann. Skil vel að þér finnist hann ekki góður, mér finnst það ekki heldur:o) Knús og Kossar.