

Hæ hæ sæta!
Þú hefur greinilega skemmt þér vel í sveitinni. Það jafnast ekkert á við að komast í sveitina annað slagið.
Biðjum að heilsa í bæinn :)
Kærar kveðjur
Tobba og strákarnir
Já gaman að skoða sveitamyndirnar. Greinilega alltaf gaman að koma í sveitina. Ég fékk líka smá "flashback" að sjá heimagerðu skipin enda rákum við systkynin heila skipasmíðastöð á árum áður.
Hæ hæ, bara að kvitta fyrir innlitið, alltaf gaman að sjá nýjar myndir. Sjáumst fljótlega !
Kv., Hrefna
Takk fyrir síðast sætasta! Ohh bara endurminningarnar hrannast upp við að skoða sveitamyndirnar hjá þér..Man þegar við Magnús Örn hlupum niður með öllum læknum með bátana okkar..Ekkert lítið gaman, aftur og aftur:o) Þú átt þetta sko eftir þegar þú verður aðeins eldri, sé að Bjargey og Palli eru orðin góð í þessu svo þau geta kennt þér og hlaupið með þér;o)
Hæ hæ. fullt af krökkum í afmælinu og mikið fjör. Bið að heilsa
Hæ Ásrún.
Ég skemmti mér vel í afmælinu þínu, það var líka fyrsta afmælið sem ég fer í hjá vinkonu minni:) Hlakka til að sjá þig á morgun.
Kveðja
Kristófer Logi
Kvitt, kvitt...Flottar myndir úr afmælinu og greinilega mikið af flottum gjöfum sem þú hefur fengið. kveðja, Erla og Kári
Hæ öll,
Takk fyrir síðast og til hamingju með afmælið aftur kæra Ásrún. Mikið var gaman að koma og sjá þig í pínu stund. Ekkert smá mikið af fallegum afmælisgjöfum :) Kannski við sjáumst næst í sörubakstri - gefið þið mæðgur ekki örugglega kost á ykkur full-time núna?!
Kær kveðja úr Hvalfirðinum
Adda og co.
Já sæl fjölskylda og takk fyrir afmælisboðið. Ég er orðin spennt að sjá myndir úr veislunni. Frétti reyndar að þú værir á leið í sveitina. Bið að heilsa dýrunum.
kv Ása og Baldur
Bíð spennt eftir afmælismyndum:o) Hlakka til að sjá ykkur..Bara vika þangað til;o) Þá færðu sko knúúús...og já ég köku:p
Innilega til hamingju fyrsta afmælisdaginn, elsku dúllan mín. Skilaðu haminguóskum til foreldranna.
Kem og knúsa þig við fyrsta tækifæri. Þú gætir meira segja fengið pakka ;)
Luv Luv R
Til hamingju með afmælið! Ég ætla bara að segja þér að mamma mín var að pakka inn afmælispakkanum þínum í gær...og þú veist ekki hvað er í honum....hehe. Ég hlakka til að leika við þig bara alla helgina. Kári Fannar leikskólastrákur
Elsku Ásrún,
innilega til hamingju með afmælið, okkur hlakkar til að koma í veisluna þína :)
Afmæliskveðjur frá Sirrý og Matthíasi Andra.
Hæ Ásrún.
Ertu ekki orðin spennt, þú átt afmæli á morgun. Er mamma þín og pabbi þínn búin að kenna þér að blása á kerti?
Ég hlakka til að sjá þig á afmælisdaginn þinn.
B.kv
Þinn vinur
Kristófer Logi
Það er aldeilis sem skvísan hefur stækkað! Ótrúlegt að hún eigi afmæli á morgun. Til hamingju með 1 árs afmælið :)
Myndirnar eru ansi skemmtilegar og fjölbreyttar, greinilega mikið stuð á bænum.
Takk fyrir góðu kveðjurnar!
Kærar kveðjur
Tobba og strákarnir í Mosó
Hæ hæ skvísipæ, þar sem að ég verð ekki á klakanum á föstudaginn þegar að þú átt afmæli þá ætla ég bara að óska þér til hamingju núna. Kæra Ásrún Eir, innilega til hamingju með fyrsta afmælisdaginn, megi hann verða góður eins og allir dagar ættu að vera. Ég hef ekki enn séð þig "live" en ég verð nú bara að fara að bæta úr því og nú skal það verða, allavega áður en að þú verður tveggja he he he.
kvittikvitt elskurnar mínar
Vá hvað afmæliskakan var flott og fjólublá.... Hvernig verður Ásrúnar afmæliskaka.. Er hún búin að setja fram sínar óskir um lit?
Knús
Luv R
Váá hvað þú stækkar..Ert orðin svo stór og verður sætari með hverjum deginum..hvernig sem það er nú hægt..Ert bara endalaust sætust;o) Vona að mamma þín sé farin að reyna að kenna þér að segja Svafa..Það er svo auðvelt og þægilegt..Vafa;o) Hlakka til að sjá þig...sem verður vonandi fyrr en seinna..Knús og Kossar.
Hæ, hæ.
Flottar myndir úr sveitinni en ósköp er samt kuldalegt...brrrrr. Það var sko allt annað en kuldalegt á Lanzerote þar sem við vorum, set bráðum myndir inn á heimasíðuna hans Kristófers.
Hlakka til að sjá ykkur í dag.
B.kv
Helga og Kristófer
Kvitt, kvitt :-) Hlakka til að sjá ykkur á fimmtudaginn vonandi...allavega mömmuna og kannski heimasætuna líka. Erla
Það hefur sko verið rosa gaman hjá þér í sveitinni...enda er alltaf gott að koma þangað. Haltu áfram að vera svona dugleg..Sjáumst vonandi sem allra fyrst. Knús og Kossar.
Hæ hæ
Rosa fínar myndir! Gaman að geta skroppið svona í sveitina og upplifað alvöru sveitastemmingu ;) vona að við sjáumst fljótt...
kærar kveðjur
Dísa og grísirnir þrír
Hæ öll,
Aðeins að kvitta fyrir innlitið :)
Litla skotta alltaf svo sæt og fín - og Svava mín, bara orðin dökkhærð. Líst vel á þig ;)
Hlökkum til að sjá ykkur, sem verður vonandi bráðum.
Kveðja
Adda og co.
Hæ sætust..Bara segja hæ..sjáumst vonandi fljótlega..svo styttist nú í fyrsta afmælið hjá dömunni..vííí;o)
Hæ hæ flottar myndir eins og alltaf þú ert fyrirtaks fyrirsæta. En Svava það var gaman að hitta þig um daginn þótt að það væri alveg svakalega stutt. Bestu kveðjur
Blessuð Ásrún Eir.
Vona að september sé þér góður mánuður. Nú fer að styttast í eins árs afmælið, ekki nema einn og hálfur mánuður - ekki segja mömmu þinni, hún fær örugglega áfall. Þú kannski minnir hana á að setja inn nýjar myndir fyrir september. Það er nú alveg kominn tíundi ;)
Kossar og knús
Luv R
Hæ hæ skvís!
Rosalega var gaman að fá ykkur í heimsókn í gær. Ég er að setja inn myndir á síðuna hans Eyþórs Bjarka, m.a. af ykkur myndarlegu mæðgum :) Einnig var gaman að hitta systkinin þín og pabba. Þú ert svei mér rík að eiga bæði bróður og systur.
Sjáumst sem fyrst.
Knús
Tobba
Nú liggur maður bara á netflakki og best að kvitta svona einu sinni fyrir heimsókninni. Sjáumst vonandi fljótlega. kv. Bára
Halló, halló. Mikið ertu nú dömuleg í rólunni og á hestinum í sveitinni. Annars er nú gaman að segja frá því að núna á allra síðustu dögum fæðingarorlofsins míns þá fann ég svona svipaða rólu á róluvelli hérna rétt hjá okkur í Sóltúninu...þetta var vel falinn róluvöllur...Bestu kveðjur,Erla
Hæ, hæ.
Þið eruð svo dugleg við að setja inn myndir, ég fer alveg að setja inn myndir:)
Takk fyrir síðast. Hittumst svo vonandi áfram í vetur, verðum bara að útfæra það öðruvísi.
B.kv
Helga og Kristófer