

Hæ hæ vonandi hafðir þú það gott um páskana. Bið að heilsa og gamaldags er gott
Sæl öll
Ég ætla bara að segja gleðilega páska. Njótið sveitaferðarinnar sem best, hlökkum til að hitta ykkur eftir páskana. kv Ása og Baldur
Hæ hæ sæta skvísa!
Æðislegar nýju myndirnar af þér :) Þú átt örugglega eftir að vera í essinu þínu á páskadag þegar þú færð páskaegg þar sem þér finnst súkkulaði svona gott!
Gleðilega páska frá okkur öllu. Biðjum að heilsa austur!
Kærar kveðjur
Tobba, Benni, Eyþór Bjarki og Baldur Orri
En hvað hún er sæt með hárskraut daman! Þið eruð svo dugleg að setja inn nýjar myndir.Við söknuðum þess að hitta ykkur ekki um helgina. Kveðja Erla og Kári
Hæ, hæ.
Leitt að við gátum ekki hitt ykkur um helgina. Kristófer er nú allur að koma til og planið er að fara út á fimmtudaginn. Við verðum svo bara að finna góðan tíma til að hittast eftir páska.
B.kv
Helga og Kristófer.
Þið eruð svo svakalega dugleg að setja inn nýjar myndir. Hlökkum til að sjá ykkur um helgina. Kveðja Bára og Sandra Sif
Hæ sætasta..Þú ert algjört æði, kíki oft hér inn að skoða myndirnar af þér, bara aftur og aftur. Hlakka svo til að geta komið og hitt þig! Vonum bara að veðrið fari að lagast svo það verði auðveldara að ferðast hér á milli:o) Knúúús og Kossar!!!
hæ hæ sæta skvís!
Flottar myndirnar af þér. Endilega segðu mömmu þinni að kíkja í heimsókn til okkar í Mosó. Sjáum við ykkur kannski fyrir austan um næstu helgi??
Kærar kveðjur
Tobba, Eyþór Bjarki og Baldur Orri
Þú ert nú voða mikil dama að borða bollu, það voru sko engin vettlingatök á þessu heimili. Mér sýnist líka á myndunum að þú stækkir svaka hratt. Bestu kveðjur Þórhalla og co
kvitt, kvitt. Takk fyrir síðast, við skemmtum okkur svakalega vel.
kveðja, Erla og Kári
Þið eruð greinilega dugleg að fara út að leika ykkur í snjónum.
Hlökkum til að sjá ykkur næst.
kveðja, Erla og Kári
Hæ, hæ.
Það eru aldeilis fínar vetrarmyndir komnar inn á svæðið þitt. Núna eru loksins komnar desember myndir inn á svæðið hans Kristófers:) Leitt að þið gátuð ekki komið í dag til Báru. Hittumst vonandi fljótlega.
B.kv
Helga og Kristófer.
Hæ hæ frábærar myndir, bestu kveðjur
Hæ hæ sætu!
Gleðilegt ár. Ég sé á myndunum að þið hafið aldeilis haft það fínt yfir hátíðarnar og notið þess að leika ykkur í snjónum. Mig langar til að bjóða ykkur skvísunum í leiðarljósklúbbnum fljótlega í heimsókn. Læt þig vita Svava mín.
Sjáumst :)
Kveðja úr Mosó
Takk fyrir heimsóknina um helgina! Hlökkum strax til næsta hittings
Kveðja, Erla og Kári
Halló, halló elskurnar!
Flottar jólamyndir :) Og takk fyrir æðislegt jólakort.
Hlökkum til að hitta ykkur - vonandi sem fyrst :o
Adda og Bjartey
Gaman að sjá allar flottu myndirnar hjá ykkur. Hittumst vonandi fljótlega. Kv. Bára og Sandra Sif
Gleðilegt nýtt ár. þær eru flottar jólamyndirnar af þér og takk kærlega fyrir jólakortið sem að er mjög flott.
Takk fyrir síðast! Gaman að sjá jólamyndirnar af ykkur, jólakjóll prinsessunnar er ekkert smá flottur !
Kveðja, Erla og Kári Fannar
Sæl jólastelpa og takk fyrir kortið það var rosa flott. Ég vil bara minna þig á það Ásrún að það þarf að vera með reiðhjálm þegar maður er að temja svona villihesta. Annars getur komið kúla á haus!!!!!
kv Ása og Baldur
Hæ hæ sætust!
Mig langar að þakka kærlega fyrir jólakortið frá þér og þínum. Okkur fannst það alveg meiriháttar og langar mikið að gera svona kort þegar við förum í myndatöku á næsta ári :)
Hafið það gott.
Knús
úr Mosó
Vona að það hafi verið gaman á jólunum hjá ykkur og þú hafir fengið eins skemmtilega pakka eins og ég fékk :-)
Hlökkum til að sjá ykkur vonandi fljótlega, en óskum ykkur gleðilegs árs ef við skildum ekki hitta ykkur meir á þessu ári. Kveðja, Kári Fannar og mamma.
Hæ Ásrún.
Bara aðeins að kíkja á síðuna þína. Hlakka til að sjá ykkur´fljótlega á nýju ári.
Gleðileg jól
B.kv
Helga Hrönn og Kristófer
Já Ásrún það getur verið mjög þreytandi allt þetta jólastúss, mömmurnar baka, þrífa, kaupa gjafir, pakka gjöfum og fullt fullt meira. þá er nú bara best að leggjast niður eða taka völdin !!!! Bestu kveðjur Aðalsteinn og Þórhalla
Hæ hæ sætust!
Aldeilis flottar myndirnar af þér með mismunandi svipbrigðum.
Þú hlýtur að vera hissa yfir öllum pökkunum sem þú færð innan tíðar, skilur örugglega ekkert í þessu :)
Kveðja
frá okkur í Mosó
Ég held að Ásrún sé bara að bíða eftir að ég komi þá fer hún að labba:o)
Hæ Ásrún.
Ég sé að það er mikið að gera hjá þér og mamma þín er dugleg að setja myndir inn á heimasíðuna þína:) Við fórum í sveitina um helgina og mamma ætlar að setja myndir úr ferðinni fljótlega inn á síðuna. Ég sá kindina mína hana Krissu. Ég var bara svo þreyttur þegar ég fór í fjárhúsin að ég lagðist í garðann og var næstum því bara sofnaður.
Hlakka til a ðsjá þig, vonandi hittumst við um næstu helgi.
B.kv
Kristófer Logi
Hæ hæ, ég er bara spennt að sjá afraksturinn af myndatökunni, ég sé allavega á myndunum hér að öll fjölskyldan er vel æfð í uppstillimyndum eftir hana! Hlökkum til að sjá þig og mömmsluna þína. Erla og Kári.
Hæ skvísa.
Takk fyrir síðast. Svo ætluðu mömmur okkar að hittast aftur um síðustu helgi en svo gerðist bara ekkert, þær geta nú alveg verið ótrúlegar þessar mömmur. Ég byrjaði hjá dagmömmu í dag og var í klukkutíma, mamma var líka með. Hvert fóruð þið í ljósmyndun? Mamma er nefnilega að reyna að finna ljósmyndara.
Hlakka til að sjá þig og leika við þig:)
B.kv
Kristófer Logi
Hæ sætasta stelpan mín! Ég kem fljótt aftur. Bara eftir 2 vikur;o) Þá kem ég og knúsa þig VEL fyrir jólin. Knús og Kossar:o)