

Hæ Ásrún, það var gaman að hitta þig um daginn þó að gestrisnin hjá honum Kára hafi reyndar ekki verið uppá sitt besta. Svo færð þú nú prik fyrir að vera búin að læra að segja nafnið hans Kára hátt og skírt :-) Erla
Hæ hæ mín kæru :)
Takk fyrir síðast Svava mín og bumbulíus. Alltaf gaman að skoða myndirnar af heimasætunni sem virðist njóta þess alveg í botn að komast í sveitasæluna fyrir austan!
Sjáumst fljótlega
Luv
Tobba og co.
Jæja Svava Björk, nú veður þú bara að senda okkur sms eða að hringja þegar að þið kíkið í sveitina. Mig langar alveg sakalega mikið að hitta ykkur. Bestu kveðjur Þórhalla og co.
Hæ hæ, ætla bara að kvitta fyrir innlitið, flottar sveitamyndirnar og líka allar hinar nýju myndirnar. Kveðja Erla og Kári
Hæ sæta mín! Jæja núna ætla ég að koma til Reykjavíkur um helgina og okkur Axel langar voðalega mikið að heimsækja þig að sjálfsögðu..Það er að segja ef þú verður heima:o) Annars alltaf gaman að skoða myndirnar af þér, þú stækkar og stækkar, vantar bara að sjá mynd af mömmu til að sjá flottu kúluna;o) Annars bara knús og Kossar sjáumst vonandi um helgina!
Hæ hæ flottar nýju myndirnar, það er alltaf svo gaman að fara í húsdýragarðinn maður vex aldrei upp úr því held ég. Bestu kveðjur frá Hornafirði
Hæ hæ, aftur til hamingju með giftinguna, þið eruð svo sæt og fín á myndunum og mér finnst óléttubrúðarkjóllinn þinn algert æði Svava, hann fer þér svo vel. Sjáumst, kveðja Erla
Hæ hæ.
Það er alveg á hreinu að mamma þín er lang duglegust að setja myndir inn á vefinn. Takk fyrir síðast og vonandi fáum við nú að hittast svo aftur áður en manni er brunað upp á fæðingardeild:)
Kv.
Helga og Kristófer
já já til hamingju kæru hjón með giftinguna,var nú aðeins buin að heyra af henni en þá meina ég eftir atburðinn..og hamingjuóskir líka með tilvonandi fjölgun þú lítur rosa vel út svava með svona bumbu...og hvernig er það svo hvenær ætlið þið svo að kikja í heimsókn og svo væri allt í lagi að láta mig vita þegar þið eruð í sveitinni það er ekki langt að fara úr suðursveit,og manstu lika svava að við ætluðum í reiðtúr einhverntíma svona til að rifja upp gamlar minningar en það bíður betri tíma. hafið það sem best kv.erna
Jeeiiijjj klapp klapp klapp fyrir ritaranum:p EN til hamingju með þetta allt saman, giftinguna og bumbubúann, var nú búin að frétta af þessu öllu saman:o) En æði að sjá myndir eruð voða fín og flott og ég er alveg sammála að þú (Svava) tekur þig rosa vel út með smá kúlu, hlakka til að sjá ykkur vonandi sem allra fyrst! Knús og Kossar!!
Hæ hæ!
Ásrún til Lukku með foreldrana :)
Svava enn og aftur til hamingju, þú blómstrar greinilega með kúluna.
Sjáumst fljótt
Knús
Tobba og co.
Hæ hæ og til lukku með þetta allt saman. Bara allt að gerast. (það væri samt í lagi að setja inn smá fréttir í vefdagbókina!!) Bestu kveðjur úr kuldanum
Hæ hæ, var bara að forvitnast um hvað þið voruð að bralla meðan við vorum úti. Vonumst til að sjá ykkur fljótlega. Kv Erla og Kári
Hæ Ásrún.
Mamma þín er alltaf svo dugleg að setja inn myndir af þér, alveg til fyrirmyndar. Fer nú ekki að koma að næsta hitting?
Hlakka til að sjá ykkur.
Kv
Helga og Kristófer
Þú ert sko lang flottust!! Ekkert smá dugleg að vera úti að leika þér! Hlakka til að sjá þig, vonandi sem allra fyrst!!! Knúúús í klessu og til mömmu líka;o) Þín frænka Svafa Mjöll.
Hæ hæ sæta skvís!
Æðislegar myndirnar úr sveitinni, svo litríkar og skemmtilegar.
Sjáumst sem fyrst og biðjum að heilsa í bæinn.
knús frá okkur í Mosó
Hæ hæ, var að skoða myndir úr sveitinni. Þetta eru myndarlegustu lömb hjá þér Ásrún!
Kvitt fyrir mig.
Hrefna
Hæ hæ krúsí, alltaf nóg að gera hjá þér í sveitinni. Var að heyra frábærar fréttir, til hamingju. Ég er búin að setja mér það takmark að sjá þig "live" áður en að þú verður tveggja. Ætli að það takist hjá mér? Bestu kveðjur
Hæ, hæ.
Við þurfum greinilega að taka ykkur til fyrirmyndar hvað varðar útiveru. Kristófer er orðinn algjör útikall en foreldrarnir ekki nógu duglegir við að fara með hann út. Annars fórum við í sveitina´um helgina og Kristófer fékk að gefa lambi alveg einn, hann reyndar hafði ansi mikinn áhuga á að vita hvernig mjólkin bragðaðist sem lambið var að drekka og stakk snuðinu sínu upp í lambið en pela lambsins upp í sig....útkoman var augljós - ekki gott. Annars getið þið séð þetta inn á síðunni hans. Hlakka til að sjá ykkur á sunnudaginn.
B.kv
Helga og Kristófer
HæHæ sætasta mín! Rosa flottar myndirnar af þér..Algjör fyrirsæta;o) Og ekkert smá dugleg úti að leika þér!! Knús og Kossar:* :* :*
Hæ hæ, var að skoða myndirnar úr vorblíðunni, Ásrún bara búin að fara á ströndina og allt :-) kveðja, Erla og Kári
Hæ, hæ.
Takk fyrir síðast. Það er alltaf jafn gaman að hittast í hitting. Erum strax farin að hlakka til næsta hittings.
Voða fínar myndir sem eru komnar á netið hjá ykkur:)
B.kv
Helga og Kristófer
Gleðilegt sumar Ásrún Eir og fjölskylda:)
Aldeilis fínar nýju myndirnar af þér og þínum. Þú ert greinilega orðin vön ljósmyndafyrirsæta. Þið eruð alltaf jafn duglega að fara í göngutúra. Okkur líst ansi vel á hjólavagninn en við erum einmitt að spá í að fjárfesta í einum fljótlega.
Sjáumst sem fyrst og Svava ég hóa í ykkur stelpurnar í þessari eða næstu viku!
Knús
Tobba, Eyþór Bjarki og Baldur Orri
Hæ, hæ. Gaman að skoða síðuna hjá ykkur og ég er sérlega hrifin af mánaðarmyndunum. Er að hugsa um að fá hugmyndina lánaða, hí hí. Sjáumst örugglega fljótlega.
Kv. Íris og dætur
Hæ hæ, kíkti á flottu myndirnar hjá ykkur, þú ert búin að stækka svo mikið Ásrún, langt síðan ég hef séð þig ! Svona líður tíminn nú alltaf. En sjáumst nú sem fyrst :)
Kveðja, Hrefna
HÆ hæ sæta!
Glæsilegar myndirnar af þér og þínum í sveitinni. Þú tekur þig ansi vel út í bústörfunum, kannski þú leggir þau fyrir þér í framtíðinni :)
Kysstu og knúsaðu mömmu þína frá okkur í tilefni þess að hún er nú orðin árinu eldri blessunin! Vonandi átti hún góðan afmælisdag á laugardaginn!
Sjáumst fljótlega
knús
Tobba og strákarnir
Gaman að sjá nýju páskamyndirnar ykkar. Hlökkum svo orðið til að hitta ykkur, það er orðið ansi langt síðan við hittumst síðast. Kveðja Bára og Sandra Sif
Hæ og takk fyrir síðast. Gaman að sjá allar páskamyndirnar úr sveitinni, mikið ertu fín í nýju úlpunni og stígvélunum :-)
Elsku Svava, til hamingju með daginn :) Gaman að skoða fullt af flottum myndum... fer svo ekki að líða að smá hitting ;)
Allavega, njóttu dagsins og láttu stjana við þig.
Kveðja
Adda
Ég bara aftur á ferðinni humm. En ef að mig minnir rétt þá á múttan þín afmæli í dag, til hamingju með hana. Bestu kveðjur Þórhalla