

Gaman að sjá myndirnar ykkar, hlökkum til að sjá ykkur næst. Vonandi um helgina.
kv. Bára og Sandra
Þið eruð svooo sæt...váá algjört æði! Sé að náttfötin eru alveg að gera sig..ánægð með það! Hugi Þeyr stækkar og stækkar...orðin rosa stór og mannalegur! Hlakka til að sjá ykkur næst þegar ég kem í bæinn sem verður um mánaðarmótin..þá kem ég í heimsókn og knúsa ykkur! Kiss Kiss og Knúúús!!!
Hæ sætu og fínu systkin. Var að skoða jólamyndirnar af ykkur, þið hafið aldeilis fengið flotta jólapakka og gaman fyrir ykkur að hafa afa hjá ykkur á jólunum. kv Erla og Kári
Hæ gleðilegt ár :)
Gaman að sjá ykkur á nýju myndunum. Förum að hittast bráðum, ok?
Kv Anna og co
Hæ Hæ
Rosa fínar myndir af ykkur. Hlakka til að sjá ykkur, já vonandi um næstu helgi.
B.kv
Helga, Kristófer og Daníel
Hæ hæ kæra fjölskylda og gleðilegt nýtt ár, vonandi hittumst við á þessu nýja ári sem að verður ár útilegunnar að mínu mati, allt brjálað að gera á tjaldsvæðum landans. He he kanski hittumst við í Skaftafelli. Bestu kveðjur
Kæra fjölskylda,
Þar sem er svo óralangt á milli okkar, er afar gott að geta fylgst með ykkur alnetinu ;)
Til hamingju með nafnið á drengnum (stóðhestanöfn segir húsbóndinn ;) og gleðilega jólahátíð.
Sjáumst vonandi eitthvað á nýju ári!!!
Innilegar kveðjur
Adda og co.
Til hamingju með nafnið Hugi Þeyr, glæsilegt nafn sem fer þér vel!
Við erum líka búin að nefna, þ.e. litlu tíkina okkar. Hún heitir Jenný :) Við förum og náum í hana seinna í dag og því svaka spenningur á þessu heimili eins og gefur að skilja.
Sjáumst sem fyrst
Knús frá okkur öllum
Tobba, Benni, Eyþór Bjarki, Baldur Orri og Jenný :)
úppss... sé að ég þarf eitthvað að breyta textanum á jólakortinu til ykkar. Til hamingju með flotta nafnið.
Vá bara búið að skíra, flott nafn. Tölvan eitthvað biluð þannig að langt síðan að ég kíkti síðast á ykkur fríðu börn. Bestu kveðjur
Til hamingju með nafnið Hugi Þeyr, fallegt nafn. Mikið hefur þú mannað síðan við sáum þig síðast. OG það er greinilegt að Ásrún Eir tekur sig vel út í stórusystur hlutverkinu. Kv. Bára og Sandra Sif
Hæ sætu systkin
og innilega til hamingju með fallega nafnið þitt, Hugi Þeyr.
Gott að þetta tókst fyrir jól. Ég var farin að hafa virkilegar áhyggjur hvað ég ætti að skrifa á jólakortið. Ég hefði reddað mér með Ragnari Heiðari ;P
Kv. Ragn Heiður :D
hæ hæ, gaman að sjá svona margar nýjar myndir sætu systkinunum. Ásrúnu fer svaka vel að vera með spennu í hárinu. Kv Erla og Kári
Síðan ykkar er orðin ansi jólaleg ;D
Þið eruð nú meiri krúttin á öllum myndunum. Takk fyrir okkur skvísurnar um daginn.
Hafið það gott og sjáumst sem fyrst!
Knús
Tobba og strákarnir
HæHæ, var að koma í "sveitina" og fór auðvitað í tölvu til að skoða ykkur aftur og sýna Auði frænku ykkar myndir líka! Og okkur finnst þið algjört æði, svo falleg og fín! En annars ætla ég að reyna að kíkja á ykkur eftir helgina! Knús og Kossar!!!
hæ hæ
Æðislegar myndir og gaman að sjá hvað systkinin blómstra... Sjáumst vonandi bráðum,
knús og kram
Dísa
Hæ,
Maður var bara farinn að spá hvað væri í gangi, síðan lokuð og engar myndir. Flottar nýju myndirnar. Hlökkum til að sjá ykkur um helgina.
Kv
Helga, Kristófer og Daníel
Hæ, gaman að sjá allar nýju myndirnar, við vorum sko farin að bíða eftir þeim :) Kv Erla og Kári
Halló fallegu systkini...virkilega er gaman að skoða allar myndirnar af ykkur, þið hugsið greinilega vel um hvort annað.
Knús og kossar þangað til ég kem í heimsókn...
kv. Nína.
HæHæ sætu systkini, þið eruð ekkert smá sæt og fín. Stækkið líka ekkert smá hratt! Ásrún þetta er alveg skammarlegt að afmælispakkinn sé ekki kominn til þín:o( Er bara ofan í skúffu að bíða eftir að komast í réttar hendur til að opna!! VERÐUM að fara að hittast! Knús á ykkur öll,þið eruð algjört æði!!!
Hæ
Ég get núna komist inn á síðuna ykkar í gegnum síðuna okkar. Ég er búin að komast að því að ég er þvílíkt tæknitröll :)
Gaman að sjá ykkur
Kv Anna
Hæ hæ, takk fyrir síðast!
Langaði bara að sjá ykkur aftur svo ég skoðaði myndir af ykkur :O)
Kveðja Anna og co.
P.S. flottar myndir
Elsku Ásrún Eir, til hamingju með tveggja ára afmælið. Bestu kveðjur frá Hornafirði
Til hamingju með afmælið elsku vinkona mín! Ég er víst bara eins ennþá en ég næ þér nú bráðum :-) Kveðja Kári (mamma biður að heilsa)
Til hamingju með afmælið kæra Ásrún :)
Knús á línuna frá okkur.
Kveðja
Tobba
Hæ skvísa.
Til hamingju með afmælið sem er á morgun:)
B.kv
Helga, Kristófer og Daníel
Hæ sætu, sætu systkini. Eruð algjört Æði! Vona að ég komist aftur í heimsókn sem fyrst þar sem við Ásrún vorum svo góðar vinkonur!! Knús frá Svöfu frænku:*
Hæ hæ :)
Rosalega gaman að skoða nýju myndirnar ykkar, bæði svo miklar rúsínur. Mig langar að kíkja í vikunni ef þið verðið heima :) Verð í bandi.
Ég er nú á því að þú, Svava mín, eigir meira í litla kút en Ásrúnunni þinni!
Knús og takk fyrir afmæliskveðjuna
Kveðja
Tobba