

Hæ aftur Svava Björk,
Sorry með þetta "eff" áðan, var svo mikið að hugsa um að hafa þetta rétt og var með hugan við frænku okkar hérna hinumegin götunni,en of seint var búin að senda , Ég vissi allveg hvernig þetta
á að vera hjá þér. Rétt skal vera rétt. Svava.
Kv.
Sólrún
Sæl Svafa Björk og fjölskylda
Gaman að fylgjast með litlu frænku, maðru er aðeins nær ykkur
þegar maður getur séð myndir af ykkur, myndar stelpa, enda ekki
von á öðru...
Sjáumst vonandi sem fyrst.
Kveðja
Sólrún, Birta Sól og Sandra Rós.
Elsku Svava Björk og Þórarinn
Til hamingju með litlu stúlkuna, myndarbarn!
Bestu kveðjur,
sæl Svava Björk og fjölskylda, var að kíkja á myndirnar af litlu frænku, mikið rosalega er þetta flott stelpa, Svava Björk og Þórarinn til hamingju! Kveðja Arndís.
Elsku litla frænka, gaman var að heimsækja þig um daginn,verðum að stoppa lengur næst.kveðja og knús til ykkar mæðgna.kv.að austan
Sæl og blessuð
Okkur Sóldísi finnst voða gaman að skoða myndirnar á síðunni þinni. Þú ert orðin svaka dugleg. og svo ertu líka bara svo svakalega sæt og mikið krútt.
Bestu kveðjur.
Ragnheiður og ekki Sóldís (hún harðneitaði að kvitta í gestabókina, vildi bara skoða myndirnar ;=))
Hæ hæ og takk kærlega fyrir aðgangsorðið. Hún Ásrún Eir er nú algjör krúsídúlla og ég er ákveðin í því að kíkja á hana næst þegar að ég kem í bæinn og auðvitað mömmuna líka. Hún er flott með rauða nefið. Bestu kveðjur Þórhalla og co.
Hæ hæ, gaman að heyra fréttir af ykkur - greinilega ákveðin hún Ásrún og strax farin að mynda sér ákveðnar skoðanir :)
Hafið það gott !
Kv., Hrefna
Hæ hæ Ásrún Eir!
Rosalega ertu flott með rauða nefið :D Þú kemur okkur aldeilis til að brosa.
Kve'ja
Tobba og Eyþór Bjarki
Til hamingju með fallegu dótturina og nafnið. Hún og Arndís Inga eiga vonandi eftir að hittast og verða vinkonur. Kveðja úr Aðaldalnum. Helga og co.
Blessuð og sæl Ásrún Eir.
Okkur finnst þú algjört krútt með rauða nefið..!!!
Bestu kveðjur úr álfatúninu
Ragnheiður og Sóldís
HæHæ Sætasta mín:o) Og ja hahaha að mamma þín hafi gert Barnalands/net síðu handa þér..ótrúlegt..Var sko búin að segja að hún ætlaði EKKI að gera það þegar ég sagði að hún yrði bara útaf því ég gæti ekki komið að skoða þig á hverjum degi sem ég myndi helst vilja:o) Kemst vonandi sem fyrst aftur að heimsækja þig. Þú ert algjört ÆÐI. Kossar og Knús :* Restin á heimilinu biður líka að heilsa!
Hæ elsku fjölskylda. Innilega til hamingju með fallegu stelpuna og með flotta nafnið sem hún hefur fengið. Já það getur tekið tíma að láta sér detta í hug nafn sem er nógu fallegt handa barninu mans :-) Mér finnst það nú bara besta mál að þér hafi snúist hugur Svava mín svo maður geti fylgst með snúllunni á netinu, en ég vonast nú reyndar til að hitta ykkur líka öðruhvoru.
Bestu kveðjur, Erla
Hjartanlega til hamingju með nafnið, vel valið!!! Við fylgjumst grannt með framgangi dömunnar.
Kærar kveðjur úr fjöllunum
Elskulegust:-)
Til hamingju með fallega nafnið þitt. Mikið er gaman að skoða allar þessar krúttlegu myndir af þér og það er greinilegt að þú braggast vel. Hlakka til að koma í heimsókn og fá að knúsa þig.
Kær kveðja
Nína.
Hæ hæ sæta skvísa!
Það er aldeilis hvað þú stækkar. Rosalega flottar myndir af þér.Nafnið þitt er mjög fallegt og hæfir vel svona myndarlegri stelpu eins og þér.
Til hamingju með síðuna þína.
Sjáumst fljótlega.
Kærar kveðjur
Tobba og co. :)
Hæ
Til hamingju með nafnið - ekkert smá flott nafn. Það er líka rosa gaman að skoða síðuna. M.a. það er spurning við eina myndina um hverjum hún líkist. Hún líkist sjálfri sér mest en pabba sínum næst mest :O)
Hlakka til að heimsækja ykkur
Kv. Anna
Hæ hæ, til hamingju með að vera kominn í heiminn og fallegt nafn sem þú hefur fengið. Það er svo gaman að geta fylgst með þeim sem maður hittir ekki svo oft og því erum við mjög ánægðar að mömmu þinni skuli hafa snúist hugur um að útbúa síður fyrir þig. Vonandi sjáumst við fljótlega. Íris og Stína
Til hamingju með nafnið þitt. Fallegt nafn. Gaman að sjá síðuna ykkar. KV. Bára
Hæ hæ Ásrún Eir og fjölskylda! Innilega til hamingju með þetta fallega nafn. Rosa gaman að skoða heimasíðuna ykkar :)
Sjáumst vonandi fljótlega. Bestu kveðjur, Hrefna
Elsku Svava og Þórarinn,
Innilegar hamingjuóskir úr Hvalfirðinum, bæði með litlu dömuna ykkar og fallega nafnið hennar.... og Svava - síðuna ;) (maður á aldrei að segja aldrei ;)
Hún springur heldur betur út, og ég sé ekki betur en hún komist fljótlega stuttan sveitarúnt!
Rosa góðar kveðjur frá okkur öllum
Adda
Hæ hæ
Innilega til hamingju með fallega nafnið þitt. Bið að heilsa í bæinn.
LUV R
Sæl Ásrún Eir
Gaman að sjá svona fínar myndir af þér. Þú ert heldur betur búin að stækka síðan ég sá þig.
kv Ása