

Sæl öll,
Loksins, loksins! Rólegur sunnudaguri í sveitinni, og hægt að kíkja aðeins "í heimsókn"! já, tíminn líður hratt, það er óhætt að segja það - og barnið vex og dafnar :)
Allt gott að frétta úr þessari sveit, okkur langar bara að fara að hitta ykkur :D
Bestu kveðjur og hafði það gott
Adda og co.
Hæ hæ Ásrún og fjölskylda! Gaman að lesa fréttir af ykkur og gott að allt gengur vel. Sjáumst sem fyrst :)
Kveðja, Hrefna
Hæ krútt..
Ekkert smá sætar myndir af þér. Rosalega ertu orðin stór og dugleg stelpa. Hlakka til að sjá þig fljótlega.
Bestu kveðjur frá stokkhólmi
Ragnheiður
til hamingju með 3. mánaða afmælið elsku frænka,það er nú meira hvað þú ert orðin stór og myndarleg. vona að við fáum tækifæri til að heimsækja þig fljótlega. knús kveðjur Erna frænka.
Til hamingju með 3ja mánaðar afmælið á föstudaginn stóra skvísan mín. Hlakka til að koma sem fyrst og knúsa þig ja eða þú til mín, alltaf velkomin;o) hehe
Til hamingju með þriggja mánaða afmælið :) Tíminn er aldeilis fljótur að líða!
Kærar kveðjur
Eyþór Bjarki og mamma
hæ krúsidúllurnar mínar
Trúi ekki alveg að þú sért orðin 12 vikna og búin að fá fyrstu strautuna. Þetta líður ekkert smá hratt. Verð að láta mér nægja að skoða myndir af þér hér þar sem það er dáldið langt að heimsækja þig eins og er ;)
Bestu kveðjur frá Stokkhólmi.
Luv R.
Kvitt kvitt. Bið að heilsa
Hæ
Vildi bara kvitta fyrir innlitið. Gaman að sjá myndir öðru hvoru - ekki er maður svo duglegur að kíkja í heimsókn en það bætir upp letina að geta séð ykkur í tölvunni öðru hvoru.
Gaman að sjá ykkur :O)
Kv Anna
Elsku besta Ásrún Eir
Þú ert svo mikið krútt á þessum myndum.
Hlakka til að fylgjast með fleiri myndum og dagbókarfærslum.
Luv R
Rosalega erum við sætar frænkur;o) Hlakka til að koma næst og knúsa þig! Biddu mömmu að knúsa þig frá mér;o)
Ásrún hestakona!!! Ekkert smá dugleg, hlakka til að koma í heimsókn þegar kvefið fer að lagast.
kv Ása
Hæ hæ það er greinilegt að þú ert í örum vexti á allann hátt og ég bara verð að fara að koma og kíkja á þig svona í alvörunni, en ég á leið í bæinn í lok vikunnar. Sjáumst vonandi. Bestu kveðjur frá Hornafirði
blessuð ..
Takk fyrir síðast. æðislegar sætar myndir af prinsessunni.
Luv R.
P.s. maður þorir ekki annað en að kvitta fyrir komuna.. þegar maður fær svona "áminningu" á forsíðunni ;)
Gleðilegt nýtt ár elsku fjölskylda. Það var gaman að rekast á mömmu þína um daginn, við þurfum að fara að hittast aftur. Og mikið er hún Ásrún Eir nú glæsileg í fína jólakjólnum.
p.s. ég varð nú að skrifa smá í viðbót. Loksins er mamma þín komin með almennilegt sjónvarp. Nú getur hún boðið manni að horfa á Leiðarljós...enda ekki hægt í 14 tommu sjónvarpi;)
Frábært að þú nýtir þér hugmyndina mína með myndirnar. Þú ert ekki sú eina sem finnst hún sniðug. Það er algjör snilld að sjá þroskann með svona millibili. Ég á það til að kíkja sjálf í albúmið enda mjög gaman að sjá breytingarnar. Njóttu vel :)
Jæja best að hætta núna meðan ég er enn með munnræpu.
Kveðja
Tobba meðlimur í Leiðarljósklúbbnum
Hæ hæ sæta skvísa og gleðilegt ár :) Þú ert nú meiri rúsínan. Eyþór Bjarki þarf að fá að koma og kíkja í heimsókn til þín. Hann talar alltaf um þig sem litla barnið!
Sjáumst sem fyrst á nýju ári.
Skilaðu kveðju til foreldra þinna :D
Kærar kveðjur
Þorbjörg Lilja og Eyþór Bjarki
Hæ Hæ öll sömul...Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla. Þú ert algjör prinsessa og stækkar greinilega hratt og vel:o) Sjáumst vonandi sem allra fyrst á nýja árinu. Kveðja frá öllum.
Gleðilegt ár kæra fjölskylda!
Þú ert nú meiri dúllan í þessum líka fína jólakjól, algjör jólaprinsessa. Ég er sérstaklega hrifin af þessum fallega plómulit á kjólnum sem fer svo vel við hárið þitt. Sjáumst vonandi fljótlega.
Nína.
Gleðilegt ár
Sæl og blessuð Ásrún Eir
Þú ert náttúrulega langflottust í jólakjólnum : ) : ) Gaman að sjá svona jólaprinsessu. Annars langaði mig bara að kvitta fyrir komu mína, Svava flott síða hjá stelpunni.
Jólakveðja
Ágústa og fjölskylda
Gleðileg jól, Ásrún Eir, Svava Björk og Þórainn.
Vorum að kíkja á ykkur, Allir hafa það gott hér í
sveitinni. Í þessu líka jólaveðrinu, rok og rigning..
Kveðja frá okkur öllum.
Sólrún og co, Björgvin, Fríða,Hilmar, Guðbjörg og Sigujón.
Hæ hæ og takk fyrir jólakortið. Hún Ásrún Eir er voðalega fín í jólakjólnum og alltaf jafn falleg. Það er einnig gaman að sjá mynd af mömmunni líka. Bestu kveðjur og gleðilega jólarest Þórhalla og co
Ji minn, Ásrún, hvað þú ert mikið krútt í jólakjólnum.. það er bara eins og ég hafi valið hann sjálf ;)
Njóttu dagsins.. Mér skilst þú notir hann í að sofa (væri svo mikið til í það sama úff)
Luv R
Flott Stelpa,
Gleðileg jól og bestu kveðjur úr jólastuðinu á VM
Vaka
æi krúttið - vona að ég verði búin að sjá hana fyrir áramót ...
Nauðsynlegt að kvitta fyrir innlit. Ásrún Eir er greinilega dugleg að stækka. Jólakveðja Bára
Hæ sætust.
Rosalega fínar myndir af þér. Sjáumst fyrir jól.
Bestu jólakveðjur
Ragnheiður og Sóldís
Hæ hæ bara aðeins að kíkja á krúttið. Hafið það gott um jólin bestu kveðjur Þórhalla og co.
Hehe..Kannast reyndar við að hafa verið kölluð Svava Björk..Svo nei...Mjöll..Hehe..Gaman að þessu! En annars knús og kossar til Ásrúnar Eir.