

Í gær fór litli mann í sex vikna skoðun. Arnheiður Soffía fékk náttúrulega að koma með til að hjálpa til að passa brósa eins og alltaf. Hann vigtaðist 5.055 kg og 58 cm. Allt var voðalega fínt og barnalæknirinn sagði að hann væri bara alveg rosalega flottur eins og við vissum auðvitað:)
1. febrúar 2008
Frk Arnheiður er svo mikil ráðskona og um daginn þá var Guðlaug amma hennar búin að opna leiksskólatöskuna hennar því hún var að leita að einhverju þá sagði Arnheiður heldur kvasst við hana"Amma hættu að tæta í töskunni minni."
Í gær héldum við loksins upp á afmælið mitt og það var rosalega gaman. Ég var búin að bíða og bíða eftir að fá afmælisköku eins og Eyrnaslapi fékk í bók sem mamma var að lesa fyrir mig:)
Við pabbi byrjuðum á því í gærmorgun að fara í bakaríið og sækja þessa fínu afmælisköku með mynd af Bangsimon og félögum. Hún var alveg rosalega flott og mig langaði mjög mikið til að fá að koma við og smakka hana strax en mamma og pabbi sögðu að ég yrði að bíða eftir að gestirnir kæmu. Ég hafði samt aldrei smakkað súkkulaðiköku áður en hún var bara svo girnileg. Þegar allt var tilbúið og ég búin að fara í afmæliskjólinn og mamma búin að greiða hárið settist ég í stólinn minn og beið eftir að gestirnir kæmu. Fyrst á svæðið voru amma og afi í Hveró. Ég tók auðvitað vel á móti þeim og dró afa beint inn í stofu til að sýna honum kökuna. Svo komu Þorvarður og Gísli Steinn eða "Gísli minn" eins og ég segi alltaf og þau voru með stóran fínan pakka. Siðan komu gestirnir hver af öðrum. Allir borðuðu á sig gat og við krakkarnir lékum okkur með allt nýja dótið.
Takk fyrir allar fínu afmælisgjafirnar
Pústlukubbar, tvo boli og pils frá ömmu og afa í Hveó
Samstæðuspil og latabæjarpústl frá Þorvarði og Gísla Steini
Kjól og peysu frá Heiðu, Ágústi og Rakel
Kálpu og Legókubba frá Gísla afa, Rósu ömmu og Sólveigu Svövu
Ömmu prjónaðir ullasokkar, vettlingar og bolti frá langömmu og langafa í sveitinni
Pollagalli og dúkka frá Villu ömmu
Ullarföt frá toppi til táar frá Grenigrundargenginu
:) :) ;)
Núna er ég byrjuð í leikskóla og þar á ég fullt af vinum. Þar á meðal eru tveir frændur mínir þeir Dagur Rafn og Einar Bjarki.
Í júlí tók ég mig til og hætti með bleyju.
Ég er orðin ótrúlega dugleg að hoppa á trambolíniu.
Núna er ég komin með fjórtán tennur ( sem er reyndar frekar lítið miðað vil aldur og aðstæður:)
Í síðustu viku fór ég að tala þriggja orða setningar.
Læt heyra frá mér fljótlega
Hann á afmæli í dag,
hann á afmæli í dag,
hann á afmæli hann Ísak.
Hann er 13 í dag.
Til hamingju með afmælið elsku besti bróðir minn:)
Hæ hæ !
Jæja núna er jólin búin og rútninar tekur við eftir helgi. Þá byrjar skólinn hjá mömmu og ég fer aftur til hennar Diddu dagmömmunnar minnar. Jólin voru rosalega skemmtileg. Á aðfangadag fórum við fyrst í Hveragerði til ömmu og afa. Afi á nefnilega afmæli á aðfangadag og varð fimmtugur. Síðan fórum við í sveitna og vorum þar um kvöldið í miklu fjöri borðuðum á okkur gat og opnuðum fullt af gjöfum. Reyndar náði ég ekki að opna nema helminginn af mínum gjöfum áður en ég fór að sofa en opnað síðan bara restina á jóladag. En þá tók einmitt við stíft prógram í jólaboðum. Við þeyttumst milli Reykjarvíkur Hvolsvallar Hveragerðis og Kópavogar á jóladag, annan í jólum og þriðja í jólum. En það var allt í lagi því jólin er einmitt tíminn til að hitta ættingja sína. 29 des komu svo Rósa amma, Gísli afi og Sólveig Svava frá kópavogi til að passa mig, Þorvarð og Gísla Stein því þá héldu mamma og pabbi hinn árlega galakvöldverð. Sem gekk víst mjög vel og endaði með því að þau fóru á Sölva ballið í Hveragerði. Á gamlársdag vorum við svo á fullu að pakka fyrir sólarlandaferðina sem átti að leggja í 2. des. En síðan fórum við seinni partinn í sveitina til Villu ömmu ástu ömmu og Jóns afa til kveðja gamla árið og fagna því nýja. Ég var í svakalegu stuði og fékk að vaka langt fram á nótt. Fékk meira að segja að sjá sprenjurnar á miðnætti en fór síðan að sofa.
þá var bara komið að því að klára að pakka og skella sér í sólina:) Ég var alveg eins og engill alla leiðina í flugvélinni og svaf mest alla leiðina já ömmu. þegar við vorum komin út var ekkert annað að gera en að fara í stuttbuxurnar og bera á sig sólavörn en ég er rosalega dugleg við það. Ég get dundað mér við það heilu tímana en stundum fer svolítið í eyrun eða í hárið. Við gerum margt skemmtileg t.d fórum við öll í dýragarð á ströndina og Ísak, pabbi, Ágúst og Heiða fóru einu sinni í gogart. Þessi vika var fljót að líða enda mikið að gera og þá var kominn tími til að fara heim á kalda klakan okkar.
Mikið var samt gaman að koma heim og þegar ég kom í herbergið mitt snérist ég bara í hringi og vissi ekkert hvað af öllu nýja dótininu sem ég fékk í jólagjöf ég átti að velja til að leika mér með.
í dag fórum við mamma og Ísak svo í sveitina. Þar var afmæliskaffi því Jón langafi varð 87 ára. Til hamingju með daginn elsku besti langafi :)
Læt þetta nægja í bili
kveðja Arnheiður Soffía
TAKK FYRIR ALLAR FALLEGU AFMÆLISGJAFIRNAR
Hæ hæ! Hvað haldið þið?? Fyrstu tennurnar mínar voru að skjóta sér upp. Mamma og Elísbet tóku eftir því um verslunarmannahelgina að það var komið smá hvítt í góminn, svo þessar tönnslur eru nú ekkert búnar að vera að fýta sér:) Síðan er ég líka á fullu í að æfa mig að labba. Ég ætla nefnilega að vera orðin rosalega klár á eins árs afmælinu mínu. Ég held stundum að ég getir hlauðið en ég dett alltaf eftir svona 3-4 skref. En ég hef mikla trú á mér og held ótrauð áfram. Jæja læt örugglega heyra frá mér fljótlega afturen allavega bless í bili
Sæl öll sömul! Loksins gefur ritarinn minn sér tíma til að skrifa smá pistil. Þannig er að nún er ég að fara að byrja hjá dagmömmu. Mamma ætlaði ekki að láta mig fara fyrr enn um áramót, henni fannst ég of lítil "smá móðursýki í gangi hjá henni
". Ætlaði bara að láta Elísubet frænku passa mig rétt á meðan hún væri í skólanum en sem betur fer stakk Beta frænka af til útlanda í tvær vikur þannig að mamma sá að þetta gæti orðið smá vesen. Svo að á mánudaginn byrja í aðlögun. Þá fæ ég að fara á róló á hverjum degi og leika við fullt af krökkum á mínum aldri
Nýjustu tíðindi af mér eru þau að ég er farin að sína smá skap ég er hætt að grát eins og smábarn heldur skammast ég bara og tuða þegar mér mislíkar t.d var ég alveg brjáluð í dag þegar mamma var að gefa mér að drekka og mjólkin kom ekki eins og skot, ég þoli það ekki. Ég hef verið að pirra mig aðeins á því undanfarið en í dag fékk ég alveg nóg og lét mömmu bara heyra og sleppti því bara að drekka í svona fimm tíma. Mamma var farin að hafa áhyggjur af mér og gaf mér vatn að drekka úr bolla. Það fannst mér bara mjög fínt og þambaði bara eins og ég gat. Síðan lagði ég mig og þegar ég vaknaði var komið fullt af mjólk hjá mömmu og þá gat ég drukkið á mig gat og gott betur en það:) Annars var líka sund hjá okkur í dag og Guðlaug amma og svenni afi komu með okkur því þeim langaði svo að sjá hvað ég er dugleg. Ég sýndi þeim allt sem ég er búin að læra t.d naga dótið, sprikla, baksund og köfun. Síðan tók kennarinn mig og lét mig standa í lófanum á sér og mér fannst það órtúlega gaman og ekkert mál og ég held að mamma og pabbi hafi alveg verið að spring úr monti;O) þegar sundið var búið fórum við heim og pabbi á fótbolta æfingu. Þá notaði ég timan og byrjaði að velta mér á magan og þá sprakk mamma alveg úr stolti og fagnaði svo mikið að mér dauðbrá og rúllaði bara til baka aftur.Jæja bæ í bili
Núna er sko fullt að frétta hjá mér!!! Sko síðasta föstudag fór ég í fyrsta skipti á kaffihús það var auðvitað kaffikrús því það er eina kaffihúsið hérna á Selfossi. Ég var nefnilega svo sniðug að vakna þegar mamma og Elísabet frænka voru göngutúr niðrí bæ og vildi fá mér smá hressingu. Svo þær fóru bara þangað inn svo ég gæti fengið mér að drekka. Þegar ég var búin að drekka voru þær orðnar glorhungraðar líka af matarlyktinni þar inni svo ég fékk mér bara sæti í barnastól á meðan þær fengu sér eitthvað kruðerí. Ég lagði mig svo aftur í vagninum á leiðinni heim og alveg þangað til að ungbarnasundið byrjaði. Sundtíminn gekk mjög vel ég gerði fullt af æfingum eins og venjulega og svo fór ég líka í kaf í fyrsta skipti og það tvisvar geðveikt dugleg.
Á laugardaginn vaknaði ég eldsnemma á mínum mælikvarða eða kl 8 við það að mamma var að setja mig í kuldagallan utan yfir náttfötin sem er nú frekar óvenjulegt að gerist en ásæðan var sú að pabbi var að fara að vinna í Vík. Við skildum Ísak eftir heima því hann var að fara í æfingarbúðir með handboltanum á laugarvatni yfir helgina. þegar við komum til Víkur var mér skellt í vagninn að sofa og á meðan reyndi mamma að hjálp pabba í vinnunni. þegar pabbi var búinn að vinna fórum við á Höfðabrekku til Höllu og Bjögga en þau voru reyndar ekki heima því það var þorrablót hjá þeim. Við létum samt bara fara vel um okkur horfðum á jurovision og fórum svo bara út á hótelherbergi að sofa. Ég er nú orðin frekar vön að vera á hóteli því þetta var í þriðja skiptið sem ég gisti á hótel Höfðabrekku.
Á sunnudaginn brunuðum við mamma svo upp í Fljótshlíð því þangað var okkur boðið því vinkona mín Ívarsdóttir átti að fá nafn. Það var yndislegt veður og "hlíðin ekkert smá fögur".) Skírnin var við messu í Hlíðarendakirkju svo ég var orðin svona frekar þreytt að bíða eftir að presturinn hætti tala og færi að skíra vinkonu mína. það munaði engu að við mamma misstum af nafninu því ég var farin að kvarta svona frekar hátt. En hún fékk nafnið Emma Eir Ívarsdóttir. Eftir kirkjuna fórum við í Smáratún í svakalega fína veislu. Síðan fórum við mamma aftur til víkur.
Á mánudaginn vorum við enn í Vík því pabbi var ennþá að vinna en þá eignaðist ég lítinn frænda sem Elísabet og Gísli voru að eignast. hann er víst voðalega sætur en ég er ekki enn búin að sjá hann. Hann fæddist 18 merkur og 56cm svona frekar stór og með fullt af svörtu hári. TIL HAMINGJU MEÐ AÐ VERA KOMINN Í HEIMINN LITLI FRÆNDI. Jæja þetta voru svona helstu fréttirna í bíli bæ bæ
Jæja nú er ég byrjuð í ungbarnasundi. Það er rosalega skemmtilagt og ég er ekkert hrædd. Þar er verið að gera allskonar æfingar síðan er verið að ausa á mig vatni til að æfa mig að halda niðri í mér andanum. Við fáum líka að leika okkur með dót og síðan syngja foreldrarnir stundum fyrir okkur.
Um jólin er ég búin að vera á endalausu flakki og Villu ömmu finnst alveg nóg komið. En á aðfangadagskvöld vorum við fjölskyldan bara heim hjá okkur, það var voðalega notalegt. Mamma, pabbi og Ísak borðuðu á sig gat en ég horfði bara á. Svo fórum við að opna pakkana en ég varð svo þreytt á því að ég sofnaði eiginlega strax og svaf mest allan tíman svo Ísak þurfti að opna pakkana fyrir mig. Við fengum ótrúlega margar og fallegar gjafir sem eiga eftir að nýtast vel. Þegar við vorum búin að opna pakkana og ég var vöknuð komu amma, afi, Heiða og Ágúst úr Hveragerði og borðuðu með okkur eftirréttinn og fengu sér smá kaffi og með því með pabba. Þegar þau voru farin fórum við svo bara að sofa. Á jóladag sváfum við Mamma fram að hádegi svona frekar þreyttar eftir að undirbúa jólin. En þá var bara timi til að fara að undirbúa sig fyrir jólaboð nr.1 það var hjá Gulla frænda á Álftanesi, eftir það var brunað í sveitina til Villu ömmu og síðan var jólaboð á Hvolsvelli á annan í jólum. Þriðja í jólum fórum við svo til Gísla afa og Rósu ömmu í mat.
Jæja nú er ég loksins komin með nafn. Það var hann séra Úlfar Guðmundsson sem skírði mig í Eyrarbakkakirkju. Pabbi hélt á mér og ömmur mínar voru skírnarvottar. Eftir athöfnina var svo haldin veisla heima á Víðivöllum og það kom fullt af gestum að heimsækja mig.