Grímur og Kári Árnasynir
Grímur og Kári Árnasynir
 
 
 

Fyrstu árin

Fæðingin

Foreldrana grunaði ekki að ég væri strax að koma... mamma var viss um að hún yrði gangsett við 42 vikur því ég gaf engan fyrirvara.
Mamma var hætt að vinna 5 dögum fyrir settan fæðingardag og fannst ekki mjög gaman að vera heima og bíða eftir fæðingunni.
2 dögum fyrir fæðinguna fór hún því út í langan göngutúr og svo í meðgöngujóga og á sýningu í listasafni Reykjavíkur um kvöldið.
Þá var kúlan aðeins farin að harðna en hún hélt nú samt að þetta myndi ekki gerast alveg strax.
Síðan fór þetta allt í gang og ég fæddist á settum degi þann 23.febrúar klukkan 13:50
Fæðingin fór fram á Hreiðrinu og Kristbjörg Magnúsdóttir tók á móti mér.
Fæðingin gekk alveg samkvæmt bókinni og mamma stóð sig eins og hetja, með dyggum stuðningi pabba á hliðarlínunni.
Þegar ég fæddist var ég 3465 grömm eða 14 merkur og 51 cm að lengd.
Ég svaf eins og steinn fyrsta sólarhringinn og bara rétt vaknaði til að svala mesta þorstanum. Draumur í dós.

Skírnin

Séra Pálmi Matthíasson skírði mig nafninu Grímur.
Skírnarvottar voru Gunnlaugur Guðmundsson og Helga Elínborg Jónsdóttir
Á skírnardaginn var sól og fallegt úti að sjá en þar sem ég bý við Eiðistorg var að sjálfsögðu rok heima hjá okkur.
Veislan var haldin heima hjá mér og lukkaðist afar vel. Mamma bjó til köku með nafninu á og eingöngu nánasta fjölskylda mætti á svæðið.
Það var nú samt heilmikið af fólki þegar uppi var staðið því ég er svo ríkur að eiga fullt af frænkum og frændum og ömmum og öfum.
Ég var nú barasta ofsa stilltur miðað við aðstæður. Grét ekki neitt yfir prestinum að sulla vatni á hausinn. Varð síðan mega þreyttur strax á eftir og steinsvaf frammi í boðinu.
Fannst síðan bara best að vera í fanginu á pabba þegar vaknaði eftir lúrinn svoldið lítill og með sviðsskrekk yfir því að vera aðalstjarnan í partýinu.

Helstu viðburðir fyrstu árin

Fyrsta alvöru brosið kom eins mánaða þegar pabbi var að leika sér að því að dingla á nefið eins og dyrabjöllu.
Þá var svakalega gaman hjá fjölskyldunni og mikið hlegið.
Er mjög höfuðstór samkvæmt því sem heilsugæslan segir að sé normalt.
Fór í sónar af höfðinu því pabbi og mamma héldu að kallinn gæti kannski verið með vatnshöfuð.
En neiiii heiii... bara með stóran haus því ég þarf að hugsa svo mikið.
Sat án hjálpar tæplega 7 mánaða gamall. En finnst samt langskemmtilegast að fá að standa.
Fyrsta tönnin kom í ljós 22.september (7 mán) og sú næsta spratt upp strax á eftir.

Hæð og þyngd

Við fæðingu var ég 51 cm og vó 3465 grömm.
Eins mánaðar var ég 54 cm og vó 4600 grömm.
2ja mánaða var ég 61 cm og vó 5440 grömm.
3ja mánaða var ég 63,5 cm og vó 6080 grömm.
4ra mánaða var ég 66 cm og vó 6545 grömm.
5 og hálfs mánaða var ég 67,5 cm og vó 7400 grömm.
6 og hálfs mánaða var ég 68,5 cm og vó 7760 grömm.

Mataræði

Ég var sem betur fer voða duglegur að súpa af brjósti.
Mamma var ansi fegin að þurfa ekki að gefa mér viðbót... sérstaklega þegar við fórum til Japan þegar ég var 3 mánaða.
Þá var voða gott að hafa "barinn" alltaf við höndina og þurfa ekkert að vesenast með pela.
Rétt tæplega 6 mánaða fékk ég fyrst að smakka hrísmjölsgraut. Var ekkert gífurlega sáttur til að byrja með.
Síðan varð ég sáttari og sáttari og er nú sólginn í flestan mat. Finnst bananar, sveskjur og epli algjört *** nammi nammi namm **
Ekki jafn spenntur fyrir grænmetinu en borða það nú samt til að þóknast foreldrunum ... er orðinn mikill mathákur!!!!
7 mánaða er ég enn á brjósti og er ekkert að þreytast á því.