
Til hamingju elsku fjölskylda með litla snáðann! Hann er alveg fullkominn! Vona að allt gangi vel
Elsku fjölskylda, innilega til hamingju með nýja prinsinn, hann er algjört æði :-)
Pant fá svona fæðingu í næstu viku á settum degi eða með 2 daga skekkjumörkum.
Knús og kram,
Andrea
Ég get ekki hætt að skoða myndirnar, alveg ómögulegt að vera svona í útlöndum. En ég hef mikið verið að spá í einu...hver stendur upp 20 mín eftir fæðingu og lítur svona út. Ég held að ég hafi aldrei heyrt af svona tilfelli...venjulega liggur maður nú aðeins í rúminu og slakar á :D hehehe. En já..kannski er þetta öðruvísi þegar maður á í baði...kannski næst ;)
Þvílík túrbófæðing ;) Það er eins og þú hafir aldrei gert neitt annað Elín! Þú ert alveg ótrúlega sæt og falleg, og litla krílið alveg yndislegt. Innilega til hamingju bæði tvö!
Og til hamingju Grímur með að vera orðinn stóri bróðir ;)
Ji hversu sætur er maður! Fullkominn. Elín, ég held þú þurfir að opinbera leyndarmálið, það er bara eins og þú sérst á leiðinni á ball! :-) Stóri bróðir er líka flottastur :-)
Hamingjuóskir með litla bróður hans Gríms. Óskum ykkur öllum bjartrar framtíðar.
Vá, til hamingju með eintak #2 ! Þetta hefur aldeilis gengið eins og í lygasögu. Mann langar bara í þriðja við að skoða myndirnar.
Bestu kveðjur frá Lundi.
Vá þvíklíkur gullmoli... Innilega til hamingju með drenginn og fallega nafnið á honum.
Elsku fjölskylda
Innilega til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn, hann er algjört æði.
Vonandi gengur allt sem allra best :)
Innilega til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn, Elín, Árni og Grímur. Glæsilegt eintak og ég tek undir með öðrum hér í gestabókinni að það er lygilegt hversu vel þú lítur út, Elín, eftir fæðinguna :D.Gangi ykkur vel sem 4ra manna fjölskylda.
Kveðja Eva, Gunni og Laura
Elsku vísitölufjölskylda,
til hamingju með litla Kára. Hann er algjört krútt. Við hlökkum þvílíkt til að hitta hann og stóra bróðir í sumar.
Elín...þú ert flottust :)
kveðja frá Vínarborg,
Baddý og strákarnir
Hann Kári er æði! Ekkert smá flottur gaur! EN já ég er sammála með hvað mamman lítur fáránlega vel út, þetta hafa greinilega ekki verið NEIN átök ahahah.. Þið eruð ótrúlega flott fjölskylda :) Hlakka til að hitta ykkur í sumar!
Luv,
Mariko og co
Við óskum ykkur innilega til hamingju með þennan gullfallega dreng! Við hlökkum til að kynnast honum:)
ohh hann er æðislegur!!!! bara flottastur:)og Elín þú ert að grínast hvað þú lítur vel út vá sko!!!:)) Til hamingju með fallega nafnið líka!!
var einmitt að spá þetta sama... þvílíkt sæt 20 mín, eftir fæðingu.
en... innilega til hamingju með þennan gullfallega nýja mola í fjölskylduna ykkar :)
Hæ elsku fjölskylda,, innilega til hamingju með gullklumpinn hann Kára,, bara yndislegur.. Elín!!! hvað er málið með þig?? hver lítur svona út eftir fæðingu??? ég bara spyr ;) ekkert smá fersk og sæt :)
Hlökkum rosalega til að sjá ykkur og heyra
hundrað knús og kossar frá Danmörku
Hjartans hamingjuóskir með þennan gullfallega litla dreng, elsku Árni, Elín og Grímur stóri bróðir! Nafnið Kári er í miklu uppáhaldi hjá mér og Kári litli frændi minn verður það áreiðanlega líka. Hlakka mikið til að hitta hann í eigin persónu! Gangi ykkur allt að sólu, elsku fjölskylda. Kossar frá okkur Guðmundi.
Elsku Elín og Árni og Grímur!!! Til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn hann Kára!!!! Bíðum spennt eftir myndum!!
Rosaleg nýjasta bumbumyndin - hvernig lítur þetta út í dag eiginlega?
ég vildi að ég gæti séð bumbuna live...hlakka þvílíkt til að hitta ykkur öll í júní og sérstaklega strákana tvo :)
Flottur strákur og mamma tekur sig vel út með kúluna. Það á án efa eftir að vera mikið stuð þegar sá nýji mætir á svæðið eins og búið er að vera á þessum bæ síðustu vikur. Gangi ykkur vel.
kveðja
Harpa og co
Síðbúin afmæliskveðja til Gríms, hann deilir nú deginum með Ögmundi Steinari syni mínum :) Vona að litli bróðir dafni vel og móður heilsist vel á meðgöngunni, kveðjur af Framnesvegi, Vaka, Óli og Ögmundur Steinar
Flottar afmælismyndir :) til hamingju með 2ja ára afmælið:)
Kveðja til mömmu þinnar og pabba:)
Elsku hjartans Grimurinn minn - til hamingju med daginn thinn um daginn!! Takk aftur fyrir sidast elskur, sakna ykkar nu tegar. Frabaerar myndir af ykkur allihopa. Heyrumst fljotlega, luv og knus og kram.
Til hamingju með afmælið (aðeins sein) sæti strákur. Um að gera að njóta "rólegheitanna" þar til nýji maðurinn mætir á svæðið, mikið stuð orðið á þessu heimili
kveðja
Harpa og co
Skemmtilegar myndir. Alltaf gaman að fá að fylgjast með hérna frá útlöndum.
Belgur ... ekki hef ég heyrt þetta áður. En mamman tekur sig vel út með þennan belg ;) ég bið ekki um mikið, en það væri nú gaman að fá að sjá belginn betur fljótlega ... verð að geta fylgst með stækkandi belgnum.
Vá...hvað það er gaman að segja belgur ... belgur belgur.
Knús frá Baddý risabelg
Elsku Grímur.
Til hamingju með daginn í gær, 23.feb. Vona að dagurinn hafi verið skemmtilegur. Skilaðu líka hamingjuóskum til mömmu og pabba.
Kveðja, Adda frænka
Það er mínus einn, 23. feb.
Kv, El Gringo
Bara rétt að segja hæ!! Hey, það stendur hvergi á síðunni þinni hvenær þú átt afmæli, er það ekki 24.feb annars? Fór bara að pæla sko
kíkk og kvitt :)
Hamingjuóskir til sæta stráksins og foreldra hans með litla bróður í bumbunni! Spennandi tímar!