
Til hamingju aftur ...jeminn hvað hann er mikið rúsímús :)
Hlökkum til að sjá ykkur....
knús,
Í og D
Elsku Elín og Árni, innilega til hamingju með þennan fullkomna dreng, hrikalega er hann sætur. Hlökkum til að hitta hann í eigin persónu.
Kv. Inga Lillý og Steini
Innilega til hamingju Elín og Árni með allt saman. Og til hamingju Grímur með að vera kominn í heiminn... hér er pláss fyrir góða menn :-)
Bestu kveðjur. Hafið það sem best og gangi ykkur vel !
kv. Kiddi Á.
Elsku Grímur,
Velkominn í heiminn. Ég ætla að reyna að koma heim í apríl og fá að knúsa þig. Knúsaðu pabba og mömmu frá okkur.
Welcome to the world Grímur! Your arrival has been long-awaited and we look forward to witnessing you flourish in this life to come. You are beautiful, as expected :-) We wish you nothing but the best in ways of health, happiness, and success!
With much love to the beautiful new family,
~Mahwish & Sammy~
Elsku Árni og Elín,
Innilega til hamingju með Grím litla! Hann er sjúklega sætur eins og hann á kyn til og mér finnst mamman líta hrikalega vel út:)
Hlökkum til að hitta Grím í eigin persónu, já og ykkur foreldrana líka ;) Álfrún sendir slefkoss á sætasta strákinn,
Kolla, Arnar og Álfrún Lóa
Ohhhh, litli gullmolinn.... Innilega til hamingju með frumburðinn elsku Elín og Árni.
Kveðja frá Eskihlíðarfjölskyldunni
Innilega til hamingju með frumburðinn elsku Elín og Árni. Grímur er algjör gullmoli - og svona stundvís í þokkabót! Gangi ykkur vel í forledrahlutverkinu!
Bestu kveðjur,
Sigga, Massi og börn
Fallegi fallegi! Innilega til hamingju með Grím litla! Æðislegt nafn og æðislegur afmælisdagur, bara eðal fólk sem fæðist 23. feb ;)
TIL HAMINGJU ENN OG AFTUR!!!
kv. Candy fjölskyldan
Elsku Árni og Elín,
innilega til hamingju með gullfallegan strák sem hefur fengið gullfallegt nafn! Vona að ykkur líði öllum vel og þið hafið það gott saman, litla fjölskyldan. Hlakka til að kíkja á ykkur í páskafríinu ...
Elsku Elín og Árni - innilega til hamingju með frumburðinn! Vá hvað hann er mikið krútt!!! :) Ótrúlega sætar myndir og rosalega fallegt nafn.. Knús og kossar Ísgerður
Elsku Grímur frændi, innilega til hamingju með að vera mættur á svæðið! Þú ert alveg þvílíkur myndardrengur af myndunum að dæma og með svona flott nafn. Innilega til hamingju Ella og Árni :)
Velkominn í heiminn elsku Grímur!
Þú ert ekkert smá sætur enda áttu kyn til þess.
Við óskum foreldrum og öfum og ömmum þínum innilega til hamingju með þig og hlökkum til að kynnst þér í eigin persónu.
Elsku Elín og Árni
Innilega til hamingju aftur með Grím litla. Verðum að taka undir það með fleirum þetta með "photoshopið" á myndunum og stundvísina :) Ekki að spyrja að því.
Fáum vonandi að sjá prinsinn fljótlega
Siggi, Tinna, Þórdís Katla og Signý Hekla
Innilegar hamingjuóskir með fallega drenginn! Mikið verður gaman að fylgjast með þessum myndarpiltum í framtíðinni :)
kær kveðja frá Rekagranda 3
Elsku Árni og Elín.
Innilega til hamingju með litli prinsinn ykkar, hann er alveg hryllilega sætur hann Grímur litli.
Kv. Fjölskyldan Tröllaborgum 4.
Innilega til hamingju með þennan gullfallega prins. Nafnið hans er líka rosa flott.
Hafið það sem allra best :)
Elsku Elín og Árni! Innilega til hamingju með þennan yndislega dreng, mikið er hann fallegur. Og nafnið hans er frábært! Hlökkum til að heimsækja hann þegar hann er búinn að koma sér vel fyrir í vöggunni sinni. Hjartans kveðjur frá okkur Guðmundi.
Hæ Grímur og velkominn í heiminn! Greinilega svona "akkúrat" gaur eins og foreldrar þínir, bara mættur á svæðið as planned. Hlakka til að kynnast þér. Mútta og pabbi segja hæ og til hamingju og svona :D
luv,
Fúsi og fjölskylda
Elsku Elín og Árni, innilega til hamingju með þennan fallega prins. Hann er algjört æði og nafnið er frábært!
Hafið það nú gott!
Váá til hamingju hann er æðislegur..eitt fallegasta barn sem við höfum séð. Maður situr bara hér með gæsahúð og tár í augunum. Og Elín eins og hún sé á leið á árshátíð, alveg fædd í þetta:)
Get ekki beðið eftir að koma og hitta litla Grím:) Hafið það gott!!
Knús og kossar
Sigrún, Tómas Ían og Lydía
Kæra fjölskylda
Innilega til hamingju með þennan stórmyndalega strák. Gangi ykkur vel og njótið þessa alls (tíminn er alltof fljótur að líða).
kv. Sara
Elsku Elín og Árni
Innilega til hamingju með Grím litla, hann er ekkert smá sætur............ ekki langt að sækja það;) Hlökkum til að kíkja á ykkur við gott tækifæri.
Kveðja frá Laugó
Margrét, Öddi og co
Innilega til hamingju með litla Grím. Hann er nú meiri gullhnoðrinn og vá hvað mamman var sæt í gegnum allt erfiðið.
Hlakka til að sjá litla hnoðrann.
Hafið það sem allra best á Grandanum.
Kveðja Fjölskyldan á Bárugranda
Til hamingju með litla drenginn - og með brúðkaupið!
Kær kveðja
Helga
Innilega til hamingju með Grím litla! Vá hvað hann er fallegur, maður situr bara með stjörnur í augunum yfir þessum myndum ! og ég er sammála því að það er sko ekki að sjá að Elín hafi verið að fæða eitt stykki barn, þvílíkt fersk og falleg :-)
hafið það gott fallega fjölskylda
kveðja, Andri og Brynja
Innilega til hamingju með litla gullklumpinn. Hann er æðislegur og velkomin í hóp hinna fallegu fimleikamæðra
kv. Ragga Dís, Úlfar, Úlfheiður og Jónína
Innilega til hamingju. Hann er glaesilegur!!!
Innilega til haminingju með prinsinn hann er æðislegur
Innilega til hamingju með hann Grím! Hann er algjör rúsína!