
Október og nóvember myndir og video 26.nóv ... Kveðja frá Malmö.
Fjölskyldunni líður vel í Malmö. Strákarnir eru byrjaðir á leikskóla (saman á deild því leikskólinn hefur systkinastefnu.
Grímur hleypur brosandi inn og vinkar mömmu bless út um gluggann. Kári orgar og æpir þegar hann er skilinn eftir en hættir svo um leið og hann snýr sér við. Svo vilja þeir helst ekki koma heim af leikskólanum því þar er svo gaman að leika úti.
Kári elskar að dansa (sjá video). Hann er mikill karakter og stjórnar heimilinu með handabendingum. Klifrar upp á allt og er sjálfum sér ansi hættulegur. Hann reynir mikið að halda í við Grím stóra bróður. Tennurnar eru að ryðjast hratt niður og hefur valdið smá pirringi. Hann virðist skilja smá sænsku (og auðvitað íslensku) en er ekki mikið farinn að kjafta sjálfur.
Grímur hefur tekið mikið þroskastökk og bæði stækkað og þroskast mikið í samræðum. Hann vill ekki tala mikla sænsku en fóstrurnar á leikskólanum segja að hann skilji þær alveg þegar þær spjalla við hann eða eru með sögustund. Hann er ofboðslega mikið í hlutverkaleikjum og vill oftast vera hættulegt tígrisdýr. Hann passar vel upp á að enginn geri neitt á hlut litla bróður hans því hann er sá eini sem má hnoðast með hann.

Grímur Árnason
Fæddur 23. febrúar 2008 á settum degi (40vikur). Var 3465 grömm eða 14 merkur og 51 cm að lengd.
Kári Árnason
Fæddur 22.maí 2010 3 dögum eftir settan dag. Var 3735 grömm eða 15 merkur og 52 cm að lengd.
Þetta eru mamma (Elín Gunnlaugsdóttir) og pabbi (Árni Egill Örnólfsson)
... Ofsalega stoltir foreldrar.
Endilega skoðaðu síðuna (ef þú fattar ekki lykilorðið geturðu sent póst á elingun@gmail.com eða arni.ornolfsson@gmail.com). Okkur finnst líka voða gaman ef það er kvittað í gestabókina!!
