

Velkomin á vefsíðuna okkar!








Við heitum Arnar Frank Ómarsson og Ásgeir Bent Ómarsson. Mamma okkar heitir Hafrún Jónsdóttir og pabbi okkar heitir H. Ómar Smárason. Mamma er Skagfirðingur og ólst upp í Lýtingsstaðarhreppi. Pabbi er frá Vestmannaeyjum og þar ólst hann upp.
Þessi síða er leið okkar til að leyfa vinum og ættingjum að fylgjast með litlu fjölskyldunni, en auðvitað finnst okkur skemmtilegast að hitta ykkur í eigin persónu.
Arnar Frank fæddist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 19. febrúar 2007 kl. 02:35. Við fæðingu var hann 15 merkur og 50 sentimetrar. Ásgeir Bent fæddist á Landspítalanum í Reykjavík fimmtudaginn 10. apríl 2008 kl. 07:03. Við fæðingu var hann 13 og hálf mörk og 49 sentimetrar. Báðir fæddust þeir tveimur vikum fyrir tímann.
Arnar Frank - FISKAR
Augu Fisksins eru falleg og tjáningarrík og fatastíllinn er afar persónulegur, oft með frumlegu mynstri og sniði eða á hinn bóginn gömul, snjáð föt sem eigandinn hefur notað árum saman. Fiskar hafa afar mikinn áhuga á fótum og fótabúnaði, sem getur einkennst af sömu öfgum og annar fatnaður, en fætur Fisksins eru oft fallega lagaðir og nettir. Fiskar eru oftast miklir dansmenn og hafa yndi af allri tónlist. Þeir eru víðsýnir og nægjusamir og láta vel að stjórn, nema þegar þeir eru beittir þrýstingi. Fiskarnir eru einkar uppteknir af þjáningum annarra, og reyndar líka sínum eigin, og margir í þessu merki finna hjá sér þörf fyrir píslarvætti. Fiskar eru rómantískir og dreymnir og hafa djúpa ást á lífinu, en láta sig oft reka með straumnum og eru litlir baráttumenn, enda eiga þeir bágt með að vinna markvisst. Þeir hafa næma eðlisávísun og eru mjög hjartahlýir og hjálpsamir, enda eru þeir oft vinamargir, en stundvísi er ekki þeirra sterkasta hlið. Fiskar hafa mikla sköpunargáfu og finna sér oft starf sem tengist listum, gjarnan ljóðlist eða rómantískum bókmenntum, og margir Fiskar eru tónlistarmenn eða vinna við kvikmyndir. Fiskar hafa líka einlægan áhuga á náttúrunni og umhverfisvernd, trúarbrögðum og félagslega bágstöddu fólki, svo störf á þeim vettvangi gætu veitt þeim mikla ánægju. Draumlyndi Fisksins veldur því hins vegar að hann verður oft fyrir vonbrigðum í lífinu og hann mætti gjarnan tileinka sér raunsærri lífssýn á ýmsum sviðum.
EINKENNI
Lykilorð: Upphafning
Pláneta: Neptúnus
Höfuðskeppna: Vatn
Litur: Sægrænn
Málmur: Tin
Steinar: Ametýst, ópall
Líkamshluti: Fætur, sogæðakerfi
Frægir fiskar Cindy Crawford, Michelangelo, Glenn Miller, Fabio, Peter Fonda, Árni Johnsen, Kurt Russel, Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Nat King Cole.
Ásgeir Bent - HRÚTUR
Hrúturinn er oft grannur og spengilegur, með augabrúnir og nef sem minna á táknið fyrir stjörnumerkið. Hann er lítið hrifinn af skrautgripum og fötum sem hefta hreyfingafrelsi hans, enda er hann hvatvís og lifandi og fljótur að bregðast við. Hrúturinn er eldmerki, svo fólk sem fætt er í Hrútnum hefur oftast ríka þörf fyrir að tjá sig í verki. Það er dugandi, blátt áfram og á bágt með að þola tafir og aðgerðaleysi. Hrútar eru óþolinmóðir og þrjóskir, en þeir eru líka gæddir persónu-töfrum og stefna einbeittir að settu marki. Þeir eru fæddir leiðtogar og fljótir að hugsa, en eðlislæg hreinskilni veldur því að þeir eiga bágt með að segja ósatt og Hrútar eru oft bæði saklausir og einlægir í hjarta. Hrútar hafa gaman af íþróttum, helst ef í þeim felst hraði, hreyfing og líkamleg snerting, enda finnst þeim fátt verra en sitja aðgerðalausir. Hrúturinn er í eðli sínu brautryðjandi, svo hann hneigist til að velja sér starf sem krefst frumlegrar hugsunar, og margir Hrútar gerast vísindamenn, uppfinningamenn, skurðlæknar, geðlæknar eða sálfræðingar, en Hrúturinn gæti allt eins tekið upp á því að reka eigin fyrirtæki, iðulega innan nýrrar starfsgreinar. Hrútar heillast líka af stjórnmálum og eru oft virkir félagar eða í stjórn síns stéttarfélags. Ef Hrúturinn ætlar að ná langt, þarf hann að læra að stjórna skapi sínu og ætti að huga meira að þörfum og skoðunum annarra, til að komast hjá árekstrum.
EINKENNI
Lykilorð: Athafnaorka
Pláneta: Mars
Höfuðskeppna: Eldur
Litur: Rauður
Málmur: Járn
Steinar: Rúbín, blóðsteinn, jaspis
Líkamshluti: Höfuð
Frægir hrútar Vigdís Finnbogadóttir, Marlon Brando, Billi Holiday, Miró, Diana Ross, Leonardo da Vinci, Descartes, Þórhildur Þorleifsdóttir, Spencer Tracy og Betty Davis

