Arna Eir U. Rúnarsdóttir
 
Velkomin á síðuna mína
 
Ég heiti Arna Eir U. Rúnarsdóttir
 


Allar beiðnir um lykilorð verða sendar til velferðarráðs Kópavogs sem tekur beiðnina til greina eftir umsögn Ríkislögreglustjóra og Gunna I Birgis. Vinsamlegast sendið beiðnina á skutlus@hotmail.com.

 Koma Örnu Eirar í heiminn

Arna Eir fæddist á Landspítalanum þann 2. september 2008. Hún var tekin með keisara og kom í heiminn kl. 22:43. Litla daman var 14 merkur og 50 cm en höfuðmálið var 35 cm.

Fjölskyldan

Mamma heitir Una Björg Einarsdóttir, en hún er með meistaragráðu í mannauðsstjórnum og vinnur hjá Sambandi íslenskra sparisjóða. Pabbi heitir Rúnar Örn Hafsteinsson og var flugvélaverkfræðingur hjá Air Atlanta, hann lést þann 8. nóvember 2009.

Ömmur mínar heita: Ásdís Garðarsdóttir og Guðmunda Ingimundardóttir. Ég á einnig ömmu á ská sem heitir Jónína Ólöf Sighvatsdóttir.

Afar mínir heita: Einar Ármannsson og Hafsteinn Sigurjónsson. Ég á einnig afa á ská sem heitir Þórarinn Björn Guðmundsson.

Langömmur mínar heita: Guðbjörg Eyvindsdóttir, Kristrún Daníelsdótir og Svanfríður Vigdís Jónasdóttir og langafar mínir heita: Garðar Karlsson, Sigurjón Guðmundsson og Ingimundur Guðmundsson. 

Ég er fyrsta barnabarn ömmu Guðmundu og Hafsteins afa en amma Ásdís og Einar afi eiga fyrir Jón litla Hjaltalín.

Mamma á tvo bræður:

Ármann en hann býr í Garðabænum ásamt Þórhöllu sinni og syni, honum Jóni litla Hjaltalín

Emil Karel en hann býr í foreldrahúsum í Þorlákshöfn Citý

Pabbi á þrjú systkini:

Rakel Ösp en hún býr í Grafarvoginum ásamt Reyni Erni kærasta sínum og Erni Rúnari litla frænda mínum.

Samúel Arnar sem er 6 ára

Hafsteinn Ernir sem er 5 ára

Svo að pabbinn komi á framfæri tengingu við flug þá er gaman að vita að hún Arna Eir á þyrlu sem nefnd var í höfuðið á henni:


Eir, minni þyrla Landhelgisgæslunnar, sem hefur einkennisstafina TF-EIR, heitir eftir Eir sem er sú er eirir, eða hlífir. Eir er sögð læknir bestur og er lækningargyðja heiðinna manna. Samkvæmt Snorra-Eddu er hún sögð vera valkyrja.

Beyging:

Eir 

Eiri

Eiri

Eirar