

Rosaleg pæja er Eyrún með spennurnar:) Og Arna Ösp ekkert smá heppin að vera komin á bleikt nýtt hjól. Held hún myndi nú ekki vilja láta sjá sig á fáknum mínum hér í Hollandi:) Kv, Saskia, Steini og Dexter.
Ég veit hvar litla skvísan mín mun læra að þekkja bleika litinn .. ekki spurning :) Aldeilis flottir hjólataktar og Eyrún röltir með ... yndislegar báðar tvær :)
ps. Sif ... þú mannst að kannan hennar Ey er alltaf upp í vinnu hjá mér .. ef þig langar að taka rölt yfir ;)
Kvitt, kvitt - alltaf gaman að kíkja á myndir af ykkur sætu systur. Og já, ekkert smá flott hjól Arna Ösp!
Ji, en hvað systurnar eru heppnar að fá að fara á Skoppu&Skrítlu söngleik, veit um einn lítinn sem hefði sko alveg viljað fara með. Eyrún agalega fín með spennurnar og magnað að sjá að litla (eldra) dýrið sé komin á tvíhljól!! Hafið það gott, love e og fam
Hummm, engar myndir komnar frá maí?? Hvað er mamma ykkar ekki að standa sig í myndatökunni;) Kveðja frá Saskiu frænku.
Hæ hó sætu systur! Það er nú gott að Eyrún fær að koma inn í litla húsið ykkar núna:) Aldrei að vita nema maður kíki í kaffi í húsið í sumar, það er að segja ef manni verðu hleypt inn í húsið;). Kveðja, Saskia.
Vá hvað systurnar eru að stækka mikið. Ég hlakka til að hitta þær fyrir austan um næstu helgi. Það er nú alveg samt makalaust að fara allaleið á Neskaupstað til að hitta fólk sem býr í túnfætinum hjá manni. En svona er lífið.
Baráttu kveðja til húsmóðurinnar sem er að fara í konu- og innkaupaferð erlendis. Áfram stelpur og Bjarni líka!!!!
TILRAUN 2. Hæ kæra fjölskylda og takk fyrir síðast. Ekkert smá gaman að hitta ykkur um daginn og ekki spillti fyrir gott veður og góð súpa (læt meilið mitt fylgja ef Sif finnur uppskriftina). Kær kveðja úr Lækjasmáranum.
sælar systur ... gaman að geta loksins almennilega rennt í gegnum nýjustu myndirnar. Greinilega mikið fjör í Kóp og þið tilbúnar í sumarið :) Æðisleg myndin af Örnu í klippó - kann réttu stellinguna ;) Hlökkum til að sjá ykkur fljótlega!!
Hæ sætu systur! Það er aldeilis sem þið eruð fínar svona nýklipptar. Róló klikkar greinilega aldrei;) Kveðja, Saskia.
Hæ sætu systur og nágrannar. Glæsilegar svona nýklipptar :) Rosalega gaman að hitta Örnu Ösp á hverjum degi í nýju vinnunni. Hlakka til þegar Eyrún kemur líka. Kær kveðja úr Lækjasmáranum.
Hæ sætu snúllur, kíki reglulega á síðuna ykkar verð nú að fara að hitta ykkur in real life :-) bið að heilsa mömmu ykkar.
Kv,
Helena
Er nú ekki rétt að kvitta svona einu sinni ;O) Maður fylgist nú reglulega með ykkur. Skemmtilegar systur ekki spurning og halda vonandi foreldrunum við efnið;O)
Var að renna í gegnum fleygu setningarnar - frábært hjá ykkur að halda utan um þessi gullkorn. Alveg kostuleg hún Arna og verður gaman að sjá hverju Eyrún á eftir að bæta við :)
Mikið rosalega er Eyrún vel gölluð á nokkrum myndum. Áfram Liverpool :)
Greinilega mikid fjor a teim systrum og buid ad klæda litla sakleysingjann i Liverpool buning, ta er ekki verra ad smella a sig hufu og fara i kuldasko, svo er gaman ad sja karlpeninginn i eldhusinu vid pizzugerd, hafid tad gott, love e
Gleðilega páska sætu systur ... örugglega búið að vera mikið fjör hjá ykkur í dag :)
Hahahahahahha..... - ég var að lesa fleygu setningarnar og OMG hvað ég hló. Gargandi snilld þar á ferð :D
Hæ hæ fallegu systur. Alltaf jafn gaman að skoða myndir af ykkur. Þið farið greinilega heilmikið út að labba og á róló. Fjölskyldan í Lækjasmára 96 þarf að fara að taka ykkur til fyrirmyndar. Kær kveðja Heiða og fjölsk.
Jiminn hvad tetta eru nu flottar frænkur sem eg a, love e
Hæ hó! Það er aldeilis sem þið systur eru góðar að gefa öndunum brauð í kuldanum. Vonum að endurnar hafi ekki orðið of hræddar við geltið;)
Kveðja frá Sasku og Steina.
Sælar systur,
Var að skoða krúsu myndirnar af ykkur.
Las svo yfir fleygar setningar, sem eru alveg magnaðar...hló endalaust þegar ég las um matinn í hárinu;)
Kv. Irena og nágranakrílin
Hæ öll sömul og takk fyrir síðast.
Ansi gott afmæli hjá brósa. Ég held að fjölskyldan í sófanum hafi aldrei þess vant myndast þokkalega og prinsessurnar eru alltaf flottar.
Kveðja úr Breiðholtinu
Ella
hei ho, bara ad kvitta fyrir mig, kv. e
Hæ hó! Rosalega eru þið sætar systurnar saman með sunnudagsísinn:) Er búið að skipta Nóa kroppinu út fyrir ís??;)
Kveðja frá Hollandi.
jiminn hvað þið eruð miklar krútt-systur!! :) Ég tók sérstaklega eftir fótaburði E í litla hægindastólnum áður en seinni myndin kom - snilld! :-) verst við náðum ekki spjalli við Örnu í síðustu heimsókn en þá bara næst. Góða helgi öll !
Bara að skilja eftir mig spor.... alltaf gaman að kíkja við...Sif stendur sig svo ljómandi vel í myndunum ;)
Þið eruð algjör krútt...
kv.Elín
Ótrúlega gaman eins og alltaf að skoða myndir af prinsessunum. Svo hef ég líka rosalega gaman af því að skoða fleygu setningarnar:)
Kveðja frá Hollandi.
Alltaf gaman ad skoda myndir af systrunum sætu, hafid tad gott, love e