

heil og sæl!
Mig er farið að legnja eftir að fá nokkuð sem segir að ég eigi að sækja pakkan með úlpunum,það kemur vel tilkynning um það.
Annar allt gott frá Norge og gaman að sjá nýjar myndir af systrunum og styttist í afmæli hjá Eyrúnu.Manni þykir alltaf slæmt að missa af tertum þegar veislur eru annarsvegar.
Kveðja Fía
Hæ hæ sætu systur! Ég öfunda ykkur mikið af Latabæjarbolunum....svaka flottir;) Það er nú eins gott að Arna Ösp búi ekki hér í Hollandi; Steini er búinn að veiða fjórar kóngulær inni hjá okkur í dag:/ Kv, Saskia, Steini og Dexter.
Alltaf gaman að skoða nýjar myndir af flottu og fallegu systrunum, sjáumst, love e
Hæ hæ sætu frænkur og takk fyrir síðast. Rosalega flott afmælisveisla hjá þér Arna mín. Alltaf jafn gott að komast í veislur til ykkar (sem betur fer er nú ekki langt í næsta afmæli:) Sjáumst á leikskólanum. Kær kveðja Heiða og Jón Sölvi.
sælar systur, alltaf gaman að sjá ykkur á þennan myndræna hátt!!
Skemmtilegur afmælisdagur fyrir flottu afmælisstelpuna, sjáumst vonandi fljótt, kv. e
Halló kjæra fjölskylda !
Vildi senda kveðju og hamingjuóskir til Örnu með af´ælið þó seint sé. Er búin að fara i HogM bæði hér og í Drammen og hausvörurnar eru á leið inn í búðirnar og verða vonandi komnar um helgi.
Annars er allt gott hér,við eigum von á Hrefnu heim á morgun og hlökkum til þess. Hún kemur til að vera nokkra daga.Ármann er byrjaður í skólanum og allt að komast í fastar skorður.
Besta kveðja til allra
Frá Fíu
Hæ hæ Arna til hamingju með afmælið í gær :-) Hlakka til að skoða afmælis myndir.
Kv,
Helena
Elsku Arna Ösp sæta frænka okkar! Innilega til hamingju með 4ra ára afmælið. Vonum þú eigir skemmtilegan dag með fullt af pökkum og góðum kökum :o) Lítur ekki út fyrir að þú fáir litla frænku í dag en það er aldrei að vita hvað verður :D *knús&kossar* og biðjum að heilsa heim! R+I
Hæ hæ:) Það hefur augljóslega verið mikið stuð hjá ykkur systrum á Neistaflugi, m.a. hjá Örnu Ösp í hoppukastalanum og að hitta Töru. Get nú ekki annað en hlegið að myndinni af Eyrúnu með stútinn á munninum, en eins og mamma ykkar segir þá er nauðsynlegt fyrir skvísur heims að kunna að setja hann upp;) Kv, Saskia.
Hæ, hæ! Alltaf jafn sætar systurnar. Langt síðan ég hef kíkt hingað inn. Arnar og Karítas eru einmitt líka saman í herbergi og gengur bara nokkuð vel... nema kannski þegar einhver "stór" er að leika við Arnar þá lokast skyndilega hurðin þegar litla systir kemur trítlandi upp tröppurnar :)
kveðja, Elsa
Góða skemmtun á Neistaflugi & biðjum að heilsa í grillveisluna! *snökt*snökt*
Hæ mikið eruð þið góðar systur!! Til hamingju með nýja fína herbergið :-)
Kv,
Helena
Hæ hæ, loksins komst ég inn á síðuna :-) Var búin að steingleyma lykilorðinu eftir að ég fékk mér nýja tölvu.... en núna er ég búin að setja hana inní bookmarks þannig að maður getur farið að fylgjast með aftur. Þær eru orðnar rosalega stórar systurnar og duglegar. Við bara verðum að fara að hittast fljótlega.
Kv. Þeba og Eyjurnar þrjár.
Það eru aldeilis búnar að vera framkvæmdir hjá familíunni :) Kannan hennar Eyrúnar er alltaf upp í vinnu hjá mér, spurning um að fara setja hana í bílinn og kíkja bara við í Kóp :) heyrumst!
Innilega til hamingju með nýja flotta herbergið báðar tvær :D
Rosalega gaman að skoða myndirnar af ykkur. Greinilega mikið stuð í sólinni á Lanzarote...já og bara alltaf sýnist mér :D Kveðja úr kjallaranum í Vesturberginu.
Kjæra fjölskylda!
Það er langt síðan ég hef kvittað fyrir að fá að fylgjest með ykkur. Flottar myndir úr túrnum og vona að allir séu ánægðir með reisuna. Systurnar eru alltaf að stækka og gaman að fylgjast með þeim. Héðan er allt gott við höfum verið að baða okkur í blíðskaparveðri og Armann hefur verið á fótboltamóti í Danmörku með Norðfirðingum og kemur heim á morgun. Hrefna er farin tilbaka til Stavanger, við ætlum að fara og kíkja á nýju íbúðina hennar í næstu viku.
Biðjum fyrir bestu kveðju til allra og vonum að þið hafið það sem best.
Kveðja frá Fíu
Systurnar sætu alltaf jafn yndislegar, gaman að sjá nýjar myndir... reyni svo að standa mig á minni síðu þegar flutningar eru yfirstaðnir. Hafið það gott, love e
Hæ hæ! Það hefur greinilega verið mikið fjör hjá ykkur systrunum í afmælinu, hvort sem það var í buslulauginni eða hlaupandi um. Ánægð að sjá að bósa kallinum hafi verið boðið í afmælið, hann klikkar aldrei:)Kv, Saskia, Steini og Dexter.
Hæ hæ og velkomnar heim sætu systur, en æðisleg ferð endalaus leiktæki, sundlaugar og strendur.
Kv,
Helena
Elsku Bjarni Freyr stórvinur&frændi! Innilega til hamingju með þennan flotta afmælisdag – jeminn hvað við erum orðin stór!! :) Það þýðir ekki að afneita aldrinum þó þér sé að takast að sleppa þessum tug en ég býð mér sjálf í næsta stórafmæli enda er Sálar-hjartað síungt og BJ-slagarnir lifa vel ... nokkrar tölur til eða frá skipta engu :D
Vonum að allar stelpurnar þínar dekri vel við húsbóndann í tilefni dagsins. *knús&kossar* frá R+I
Nau, nau, nau - bara búnar að skella sér til útlanda síðan ég kíkti síðast! Ekki amalegt það :D
Ég skil Eyrúnu ekkert smá vel varðandi sandinn - það er miklu notalegra að vera bara við sundlaugarbakkann og sleppa þannig við sandinn sem er vægast sagt "sticky" og pirrandi á köflum, hehehe...
Greinilega verið mikið stuð í sólinni .. ánægð með að þið skylduð skella ykkur í Kikolandið. Yaiza klikkar ekki :o)
Verð að segja að mér fannst mótmælasetan í fjörunni ansi skondin .. þar er nokkuð ákveðin kona á ferð :D
Hæ sætu systur! Gaman að skoða ferðamyndirnar af ykkur:) Það hefði nú ekki verið leiðinlegt að fara með ykkur í sólina. Greinilegt að það hafi verið skemmtilegt hjá hópnum, enda ekki við öðru að búast þegar svona skemmtilegur hópur fer saman út:) Kveðja, Saskia og Steini.
Flottar myndir úr ferðalaginu. Greinilega verið mjög gaman hjá ykkur fjölskyldunni. Hefði nú ekki verið leiðinlegt að vera með ykkur. En það verður bara næst :) Kær kveðja Heiða og fjölsk.
Góða ferð í sólina :)))) Vona að flugið gangi vel svo foreldrarnir (og allir flugfarþegar) fari ekki strax að kvíða heimferð :D
Hæ sætu systur :-) þið eruð nú meiru krútturnar alltaf jafn gaman að fylgjast með ykkur. Rosa flott nýja hjólið Arna.
Hafið það gott úti og kyssið afmælisbarn vikunnar frá mér eða mömmu ykkar :-)
Kv,
Helena
systurnar duglegar að perla saman :) kv. e