

Oh þið hafið átt yndisleg jól og áramót sæta fjölskylda. Æðislegar myndir allt saman en alveg sérstaklega skemmtilegar myndirnar af ykkur systrum að dansa með langafa Lalla og syngja og dansa með fjölskyldunni við undirleik afa Agga. Við sjáum ykkur vonandi í eigin persónu áður en við förum út. Kv, Saskia og Sebastiaan Dagur.
gleðilegt nýtt ár! verður spennandi að skoða síðuna á nýju ári
Yndislegar jólamyndirnar að austan, varð bara væmin við að skoða þær :)
Hæ og gleðileg jól. Ligg heima veik og hvað er betra en að kíkja á heimasíður. Gaman að sjá myndirnar og lesa dagbókina. Mér sýnist á myndunum að þú ætlir ekki að verða samferða mér í þetta sinn.... jú jú þriðja krílið væntanlegt í lok maí á næsta ári. Hafið það gott yfir áramótin. Kv. Elsa og co.
Gleðileg Jól, vá hvað er jólalegt hjá ykkur, greinilega endalaust mikið fjör hjá systrunum úti að leika í snjónum. Kv,
Helena
Gleðileg jól ;)
Skemmtilegar desember myndir af systrunum. Jónas Víkingur tók sama pól í hæðina og Eyrún og smellti stígvélum í gluggann... Hafið það gott, kv. E
Greinilega mikil jólastemming í Kóp .. hvenær verður svo haldið austur ???
Oh, svo jólalegar og yndislegar desember myndirnar af systrunum. Svo kósí að sjá skóna (og stígvél, hehe) úti í glugga og sjá fallegu systurnar skreyta piparkökur. Það bara gerist ekki jólalegra:D Kv, Saskia og co.
Kjæra fjölskylda! kvitta fyrir að fá að fylgjast med og var voða glöð að sjá að Arna er búin að finna sér samastað hjá mér ef i harðbakkann slær. Hún er velkominn og þið hin líka. Bestu aðventsóskir til ykkar allra og ég vona að jólasveinninn verði öflugur að setja í skóinn hjá systrunum.
Kveðja fra Kongsberg
Gaman að skoða myndirnar af flottum systrum og fjölskyldu.. þið eruð aldelis flottar að taka lagið og hefur greinilega verið gaman þegar kveikt var á jólatréinu. Hafið það gott. Kv. Hrefna og co! :)
Yndislegar myndir af fjölskyldunni á Austurvöllum. Ég komast alveg í jólafíling við að skoða þær:D Knús frá fjölskyldunni í Groningen.
Elsku litla fjölskylda, það er alltof langt síðan ég hef kvittað fyrir heimsókn mín hér á síðunni hjá systrunum sætu. Þetta eru að verða svo stórar stúlkur, ótrúlegt hvað tíminn flýgur, hún Arna Ösp komin á grunnskólaaldur og Eyrún með gleraugu, svona líka flott.Þetta eru svo fallegar og yndislegar litlar dömur:-)
Ástarkveðjur til ykkar allra frá Sollu frænku
smá net-kvöld-skrepp-heimsókn í Kóp. Hlakka mikið til næsta alvöru hittings & fá að spjalla við þessar frábæru systur sem hafa alltaf frá einhverju skemmtilegu að segja :)
Gaman að sjá nýjar myndir af systrunum sætu, hafið það gott, love e
Systurnar klikka aldrei alltaf sprækar og til í fjörið. Mér sýnast þær hafi erft liðleikann úr okkar ætt. Kveðja alla leið í Kópavoginn.
Ella
Systurnar flottar og fínar að vanda, kv. e
Systurnar ansi flottar með langafa sínum og langömmu. Hoppukastalinn hefur greinilega verið aðal málið:) Kv, Saskia og co.
snilld að stóra systir fái líka gleraugu ;) þær eru sem fyrr æði
Gaman að skoða myndir av ykkur systrum og fjölskyldu. Það hefur verið gaman hjá ykkur þegar langafi og langamma voru í heimsókn.
Eyrún er mjög flott með gleraugun sín:) Hafið það gott. kv. Hrefna og fam
Æ.. hún verður bara sæt með bleik gleraugu :):)
Takk fyrir síðast, ótrúlega gaman að koma til ykkar í frænkuhitting, sjáumst, kv. e
systurnar alltaf jafn mikið æði - verður gaman að sjá þegar Eyrún verður komin með gleraugun sín
Skemmtilegar nýjar myndir af systrunum og fjölskyldunni:) Það hefur verið mikið stuð bæði í afmælinu hennar Eyrúnar og í frænku/frænda boðinu. Kv, Saskia og co.
Systurnar sætu, pabbi og mamma
Takk fyrir að bjóða aldraðri afasystur í afmælið hennar Eyrúnar, það var svo gaman að koma og sjá þessa yndislegu kynslóð af litlum afkomendum. Það var reyndar líka gaman að sjá kynslóðina þar fyrir ofan:-) Vona að ég hitti ykkur sem fyrst
glæsileg afmælisveisla ;) sjáumst á laugardaginn
Til hamingju með þriggja ára afmælið Eyrún:) Betra er seint en aldrei, er það ekki??;) Vonandi hafið þið fjölskyldan átt yndislegan dag saman. Kv, Saskia og Co.
Til hamingju með 3 ára afmælið :)
Elsku Eyrún frænka,
Innilega til hamingju með 3ja ára afmælið þitt. Vona þú hafir átt góðan kórónudag á leikskólanum og eflaust verið mikið fjör í piparkökkubakstrinum með fjölskyldunni :)
Hlökkum til að sjá ykkur allar mæðgur í næsta frænku hitting .. já og jafnvel maður rekist á pabba gamla :-)
Kjæra Eyrún!
Frænka sér að hún hefur aldeilis bommað og heldur að þú "sért bara" 2 ára!!
Þetta eru elliglöp.
Til hamingju með 3 ára afmælið stóra stelpa
Fía