

Andri Dagur kom í heiminn eftir 8 daga bið þann 12. október 2007 kl 8:40. Hann var rúmar 13 merkur eða 3335 grömm og 50 cm og endaði fæðingin með bráðakeisara.
Lilli kom í heiminn með fyrirframákveðnum keisaraskurði þann 6. maí 2010 kl 9:55. Hann var rúmar 16 merkur eða 4130 grömm og 50 cm. Lilli var mjög líkur stóra bróður þegar hann fæddist. Báðir alveg dásamlega fallegir.
Andri var rosalega stolltur að verða stóri bróðir og tekur hlutverki sínu mjög alvarlega :) enda er Lilli yndislegur og ekki annað hægt en að elska hann.
Við foreldarnir gætum ekki verið meira stollt af fallegu ungunum okkar og finnst við vera heppnust í heimi!

