

Gaman að sjá myndbandið af Svölu að skríða, spriklar þvílíkt með fótunum. Þá er friðurinn úti og allt dót sett í efri hillur :) Gaman að fylgjast með ykkur. Kær kveðja úr frostinu á Fróni. Kv. Erla og Ingibjörg Lilja
Alltaf að kíkja og skoða skvísuna.
Sjáumst sæta
Hæ elsku Svala. Æðislega var gaman að skoða allar nýju myndirnar. Þú ert bara fallegasta prinsessan sem ég hef séð. Svei mér þá. Ætli maður reyni ekki einn daginn að fá mömmu þína með þig í auglýsingabransann mmm. En það þyrfti að vera eh alveg ofurfínt og sérstakt ;)
luv til þín og mömmsu
h
Kvitti kvitt sæta skvísa
kveðja að vestan
Elsku fjölskylda!
Mikið var gaman að skoða myndirnar ykkar. Flott síða!
Vonandi sjáumst við þegar þið komið næst til landsins.
Kær kveðja í Svíaríkið frá Guðrúnargötunni.
P.s við erum nýbúin að setja inn myndir á siðuna okkar.
Hæ hæ Svala!!
Gleðilegt nýtt ár! Greinilegt að þið fjölskyldan höfðuð það gott um jólin og áramótin á Klakanum. Það hefði nú verið gaman að hittast en við gerum það bara næst.
Hafið það gott...
Berglind og Hrafnkell
Gaman að skoða allar jólamyndirnar, sérstaklega af Svölu og Sölva að verða ástfangin. Vona að þið séuð hress í Lundi, Sölvi er allur að koma til.
Hæ og takk fyrir síðast. Aldeilis gaman að hittast þó stutt væri en við höldum sko planinu fyrir næsta sumar :) hafið það gott í Lundi !! Kveðja Erla og Ingibjörg Lilja
Hæ og takk fyrir síðast þó stutt væri :)
Glæsilegar nýju myndirnar
Bestu kveðjur úr snjónum
Hæ, hæ kæra fjölskylda.
Það hafði greinilega mjög góð áhrif á Ara að hitta Svölu, því daginn eftir byrjaði hann að sitja sjálfur, einn og óstuddur :-) Greinilega málið að fá kennslustund frá svona sætri stelpu ;-)
Bestu kveðjur
Hæhæ alltaf jafn sæt skvísa.
Gleðilegt ár elsku fjölskylda, Sjáumst vonandi sem fyrst á því nýja.
Kv kata og co
Halló elsku frænka, við viljum óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Megi Guð og gæfa fylgja ykkur alla tíð.
Kveðja frá Ísafirði;0)
Hæ sæta stelpa... ohhh hvað við hefðum nú verið til í að vera með í Köben og á jólaballinu...
knús frá Íslandi
Guðríður og Veigar
Gaman að sjá alltaf nýjar myndir. Svala alltaf jafn sæt.
Hlakka til að hitta ykkur hér á klakanum.
Ég sá á einni kirkjumynd hann Sigtrygg frænda minn, við erum bræðrabörn, kíkja yfir gleraugun sín. Hann er að vísu ekki frændi Alberts þar sem Abbi tilheyrir móðurfjölskyldu minni, en alls staðar eru einhverjir sem maður þekkir. Hef ekki kíkt hérna inn lengi en gaman að sjá hvað dúllan stækkar og dafnar. Ég ætla að taka mér það bessaleyfi að vista eina sæta mynd og sýna ömmu minni, henni finnst voða gaman að því.
Góðar jólakveðjur, Ásdís.
Elsku Svala skvísa. Var að skoða myndirnar af þér á jólaballinu. Þú er svo mikið krútt, alltaf brosandi. Ég á eftir að sakna þín mikið um jólin. Ég ætla samt að knúsa þig einu sinni áður en þú ferð í flugvélina til Íslands. Kveðja: Silja "tengdamamma"
Hæ, vildum bara þakka fyrir okkur, það var frábært að heimsækja ykkur. Jón var sérstaklega ánægður með ísinn! Vonandi að við náum að hitta á ykkur um jólin.
Vonum að Alberti gangi vel í prófunum, það var fullt af fólki sem bað að heilsa þér (Albert) á jólahlaðborði VIJV sl. sunnudag.
Ji hvað þú ert búin að stækka og ert orðin stór!! Aðeins of langt síðan ég kíkti á þig síðast skvísa!! Það væri nú gaman að hittast eitthvað þegar þið fjölskyldan komið heim yfir jólin.
Sjáumst...
Berglind og Hrafnkell
Hæ fallega fjölskylda,
Gaman að sjá hvað Svala dafnar. Hlakka til að sjá ykkur í desember.
Knús, Kristbjörg
Hæ Svala sæta :O) Ótrúlega skemmtilegt að fá aðeins að forvitnast um þig og þína, gaman að sjá líka kunnuleg andlit inná milli :) Til hamingju með afmælið Anna mín.
Kv. Ásta á Reyðó!
Hæ hæ mamma, innilega til hamingju með daginn (20.nov).
Ég var að sjá vagninn okkar í fyrsta skipitið og hann er bara nákvæmlega eins og ykkar nema náttúrlega tvíbreiður. Þannig við getum verið alveg í stíl í labbitúr hehe
kv. Kata, hlakka alveg ótrúlega til að hitta ykkur
er verið að þamba áfengi fyrir framan litla barnið! öll kol brjáluð að áfengisvímu fyrir framan Svölu litlu.
Til hamingju með daginn Anna, einum degi á eftir, það má bara teljast nokkuð gott :-)
komiði ekki með Elg vestur? það væri nett
Til hamingju med mömmudaginn í dag.
Kem á eftir til ad gefa knús, kram og kossa - nú og audvitad líka til ad smakka kökur :)
Til hamingju með afmælið, Anna mín!
Æðislegar myndir og frábært að skoða myndböndin líka. Hafðu það gott í dag. Knús til ykkar allra.
Hæ hæ fallega fjölskylda.Gaman að sjá myndirnar af ykkur öllum. Sakna þess að sjá ykkur. Er búin að vera netlaus og er ekki búin að vera nógu dugleg að fylgjast með ykkur. Vá hvað þú ert falleg stelpa Svala mín. Vonandi sjáumst við í desember. Hlakka til að sjá ykkur. Knús og kossar. Kveðja Tinna og Kristófer
Hææææ ohh hvað það er gaman að sjá hana loksins, er ekki búin að sjá hana í 5 vikur út af net-leysi ;) Svakalega er hún orðin stór og svo rosalega falleg stelpa. algjör prinsessa, það hlítur að hafa verið erfitt að segja nei þegar hún bað um hundinn hehe
En vá ég var að lesa að þið komið til landsins 13 des, ohh hvað ég hlakka til. Og ég er sko alveg til í að spóka okkur einhvað aðeins i bænum meðan pabbarnir verða heima að hugsa um börnin okkar. Maður er búin að vera ansi mikið inni núna síðustu vikur hehe ;)
Hlakka til að heyra í þér, nú fer að koma að því að við hittumst á msn
kv. kata
Við vildum bara kvitta fyrir innlitið!!
Knús á ykkur öll...
xxx
Berglind og Hrafnkell
Æðisleg myndbönd af dansdrotningunni, hún er alger stjarna.
Vonandi sjáumst við bráðlega.