Svala og Skarphéðinn Orri
 

Gestabók

Hrefna og Harpa Rós

Hæ hæ skvísa,
alltaf gaman að kíkja í heimsókn á síðuna þína og skoða myndir af þér sæta! Vá hvað þú ert orðin stór og dugleg stelpa... það styttist aldeilis í það að þú farir að labba.
Harpa Rós er rosa dugleg að hreyfa sig og er komin uppá hnén upp við borð og svo er það nýjasta að hún fer á hnén og gerir sig líklega til að reyna að standa upp bara á miðju gólfi!! við foreldrarnir bíðum bara eftir því að hún standi bara upp þar :-)
Okkur hlakkar til að hitta ykkur í sumar og leika saman!!
Bestu kveðjur frá Íslandinu góða,
Hrefna og Harpa Rós

Skrifağ şann 9. May 2008 09:20.

Ásta

Fullt af fínum myndum - gaman, gaman. Við misstum alveg af steina pikknikkinu. Knús að ofan :)

Skrifağ şann 8. May 2008 18:38.

Arnheiður og Ellert

Við Ellert vorum að skoða myndirnar af þér. Þú ert alltaf að verða fallegri og fallegri ef það er hægt.
Ellert vildi fá að tala við Pabba þinn líka þegar hann sá þig tala við hann í símanum.
Ég aftur á móti kolfell fyrir nýja kjólnum og þríhjólinu þínu.
Þú hefur bara held ég ekki farið af því síðan þú fékkst það hehe.
Það hefur alveg tekið við af vagninum sem pabbi þinn var vanur að keyra þig í.
Saknaðarknús frá okkur í Cali, Arnheiður og Ellert Clark

Skrifağ şann 5. May 2008 03:28.

Helga Valdís

Vei vei komnar svona rosalega fínar myndir. Það er svo langt síðan ég kíkti síðast og fannst forsíðumyndin ekkert smá fullorðinsleg af prinsessunni. Enda orðin rosalega stór stelpa með yndislega krúttlegar tennur og búin að fá þetta flotta þríhjól. Mikið er ég farin að hlakka til að sjá ykkur...eftir nákvæmlega mánuð :)
Knús til ykkar frá Helgu og co

Skrifağ şann 4. May 2008 13:12.

Harpa og co

Hó hó. Skemmtilegar myndir, svakalega fínt hjól, held að Sölvi sé bara abbó, hann fékk sumarhúfu í sumargjöf..
Jæja það fer að styttast í að þið flytjið á brávó, vonandi verður allt tilbúið:). Heyrumst vonandi sem fyrst. Kv. Harpa

Skrifağ şann 1. May 2008 12:07.

Erla og Ingibjörg Lilja

Skemmtilegar apríl myndir. Mikið stuð hjá ykkur í Lundi. Svala svo sæt með nýju tennurnar sínar, ég verð bara að hrósa í fyrsta lagi flotta hjólinu hennar, sniðug hugmynd og líka fallegu prjónafötunum hennar sem einhver er svona duglegur að gefa henni :o) Hafið það gott, hlakka til að hittast í sumar.

Skrifağ şann 25. April 2008 13:28.

Hrefna og Harpa Rós

Hæ hæ Lundarbúar :-)
Skemmtilegar nýju myndirnar og flott hjól sem Svala fékk í sumargjöf!!
Ekkert smá flott skvísa með hjálminn sinn, það er gott að muna eftir honum ;-)
Já og Gleðilegt sumar :-)
Bestu kveðjur, Harpa Rós og mamma

Skrifağ şann 25. April 2008 09:48.

Gréta Rún og Adam Ernir

það er komið aðeins og langur tími síðan ég kíkti á síðuna þína síðast, þú ert bara dúlla, síbrosandi og kát. Vonandi fáum við Adam Ernir að hitta á ykkur í sumar þegar þið komið heim.
bið að heilsa mömmu og pabba
kv. Gréta Rún

Skrifağ şann 15. April 2008 15:09.

Brynja Frænka

Þú ert svo endalaust mikið krútt sæta spæta;) maður brosir alveg allan hringinn að skoða myndir af svona yndislegri skottu ;) Þyrfti að kíkja á ykkur er í köben.. aldrei að vita nema maður mæti til svíþjóðar :) risa knús Brynja frænka

Skrifağ şann 14. April 2008 16:33.

Harpa og co

Giska á að þú hafir verið að reyna að hringja áðan, þar sem það gekk illa, kíkir maður bara á myndir af ykkur. Svala greinilega orðin mjög fjörug og hress, þau Sölvi verða sennilega mjög ánægð með hvort annað þegar þau hittast í sumar. Við erum alveg á fullu að smíða hér á brávó svo allt verði í standi fyrir ykkur í sumar.
Endilega reyndu að hringja aftur, er í fríi næstu daga.
Kv. úr vesturbænum

Skrifağ şann 1. April 2008 00:33.

Bergrós og Arndís

Daman hefur aldeilis stækkað og þroskast ... farin að láta m & p hlaupa svolítið á eftir sér :) Kannast við það...
Bestu kveðjur

Skrifağ şann 21. March 2008 01:01.

Kata

Alltaf svo sæt og fín svala skvísa. Finnst alveg glatað að þið komið ekki heim um páskana. En það verður bara stuð næst þegar við hittumst :)

Skrifağ şann 18. March 2008 22:31.

Rósa

Hæ sæta vinkona.
Mikið ertu nú alltaf frábær og skemmtileg litla mín. Sakna þess voða mikið að geta ekki bara komið og knúsað þig. Hafðu það nú gott um páskana og skilaðu kveðju til gamla liðsins.

Skrifağ şann 16. March 2008 20:25.

Harpa

Hæ og hó. Var að enda við að skoða fullt af nýjum myndum af þér Svala, verið svo tölvulaus undanfarið. Nú gengur þetta ekki, verðum að fara að heyrast almennilega..
Vonandi hafið þið það gott elskurnar..Kv. Harpa

Skrifağ şann 10. March 2008 22:39.

Tinna Rós

Ji, bara 13 dagar þangað til að ég fæ að knúsa Svöluna mína!

Skrifağ şann 3. March 2008 18:35.

Jóhanna

Hlökkum mikið til að sjá ykkur mæðgur eftir aðeins 6 daga. vúhú...
Knús frá Hollandi
Jóhanna & Aníta Eik

Skrifağ şann 3. March 2008 15:26.

kata

HÆ hæ svala sæta skvísa. Þú ert meiri rúsínan. Mér fallegustu augu í heiminum ;) Gaman að sjá hvað þú ert dugleg að róla og renna á róluvellinum. Hlakka til að koma í heimsókn í haust, er alltaf að spara fyrir ferðinni hehe :)
kv. kata

Skrifağ şann 1. March 2008 22:13.

Kristbjörg frænka

Hæ Svala sæta,
Gaman að sjá hvað þú dafnar vel. Nú er ekki langt í að amma og afi komi í heimsókn, þá verður stuð.
Hlakka til að knúsa þig sem fyrst.
Koss, Kristbjörg og litlabaun
P.s. Elli biður að heilsa, hann er á sjónum en ekki á sama bát og afi skappi þó :)

Skrifağ şann 1. March 2008 14:12.

Helga Valdís

Kvitt kvitt og knús í svíaríkið

luv
h

Skrifağ şann 27. February 2008 22:58.

Berglind Sigurgeirsdóttir

Hæ hæ Svala sæta!!
Þú ert heldur betur búin að stækka mikið síðan ég kíkti á þig síðast. Það er sko satt...blöð, flöskur og annað svoleiðis drasl er sko skemmtilegasta dótið þegar maður er á þínum aldri.
Hafið það gott í útlandinu...
Skilaðu kveðju til gamla settsins...
Berglind og Hrafnkell

Skrifağ şann 27. February 2008 22:26.

Jóhanna Gylfadóttir

Alltaf jafn gaman að skoða myndirnar af þér Svala, þú ert svo mikil snúlla :o)
Biðjum að heilsa mömmu og pabba.
Kveðja frá familíunni í Hollandi

Skrifağ şann 26. February 2008 09:49.

Hrefna

Hæ hæ, já það er ekkert smá fyndið að sjá Hörpu Rós þegar hún sér kapal!! hún gerir allt til að komast að honum haha, ekki er ég hissa á að Svala hafi næstum fellt tjaldið til að ná kaplinum ;-)
Fylgist alltaf með ykkur ;-) ákvað að kvitta fyrir komuna í þetta sinn... knús

Skrifağ şann 22. February 2008 13:39.

Gréta Rún Árnadóttir

hæ sæta skvís
þú hefur heldur betur stækkað frá því að ég fékk að knúsa þig í ágúast. Alltaf gaman að kíkja á síðuna þína og skoða allar myndirnar þínar, enda aðal skvísan í Lundi.
biðjum að heilsa gamla settinu
kv. Gréta Rún og Adam Ernir

Skrifağ şann 17. February 2008 19:49.

Tinna Rós Guðmundsdóttir

Mig langaði bara til að segja ykkur hvað ég hlakka til að sjá ykkur eftir (nákvæmlega) mánuð.
Mússímúúss

Skrifağ şann 16. February 2008 10:51.

Þyrí og Sölvi Hrannar

Hæ sæta prinsessa,

Vá hvað mín er orðin stór og dugleg.. verð nú að segja að mér finnst pabbi þinn eiga rosalega mikið í þér...
Leiðinlegt að við hittumst ekki þegar þú varst á íslandi, reynum aftur næst...

Knús Sölvi og mamman

Skrifağ şann 12. February 2008 13:28.

Hildur og co

Hæ hæ og takk fyrir okkur:) Leiðinlegt að ná ekki að hitta ykkur um jólin en gengur betur næst:) Svala er orðin ekkert smá stór og dugleg, hún fer alveg að ná Sölva og Brynhildi :) en biðjum að heilsa í bili kv. Hildur og Brynhildur Katla

Skrifağ şann 11. February 2008 17:01.

Hrefna og Harpa Rós

Hæ hæ Svala og foreldrar :-)
Mikið var gaman að hitta ykkur mæðgur þegar þið voruð á Íslandi. Vá hvað þú ert orðin stór og dugleg stelpa Svala! Gaman að fylgjast með þér og sjá hvað þú dafnar vel sæta stelpa.
Harpa Rós er líka voða dugleg og veltir sér um allt.. ekki byrjuð að skríða á frjórum fótum, en kemur sér þangað sem hún vill með öðrum leiðum ;-)
Sjáumst næst!
Knús og kossar til ykkar
Harpa Rós og mamma

Skrifağ şann 11. February 2008 10:35.

kata

hæ hæ rosalega er svala dugleg í sundinu. Ætlaði bara að segja þér eitt ráð sem sundkennarinn sagði okkur: Ef börnunum svelgist á þá er gott að lyfta upp annari hendinni þá ná þau að anda betur en passa samt að fara ekki upp úr því þá verður þeim kalt. En ykkur var nú öruglega sagt þetta líka hehe ;)
En sjáumst í sundi einn daginn
kv. kata og co

Skrifağ şann 11. February 2008 10:29.

Þyrí og Sölvi Hrannar

Hæ sæta,

Vá hvað mín er orðin dugleg skvísa... og endalaust falleg.

Kveðja Sölvi og mamman

Skrifağ şann 7. February 2008 20:40.

Harpa og co

Skemmtilegar nýju myndirnar.
Svala bara orðin fullorðin, sé svo mikinn mun frá því um jólin enda farin að synda og borða á fullu.

Skrifağ şann 3. February 2008 22:55.

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16