

Til hamingju með tveggja ára afmælið elsku Svala. Ég efast ekki um að það hafi verið svaka fjör í veislunni.
Knús til þín og fjölskyldunnar!
Kveðja,
Tinna og Jói
Elsku Svala
Við óskum þér innilega til hamingju með afmælið í dag.
Hlökkum til að sjá myndir úr afmælinu. Hafðu það rosa gott og knús til mömmu, pabba og Skarpéðins Orra.
Bestu kveðjur frá Melbourne.
Til hamingju með afmæli prinsessunnar á morgun..ótrúlega er mikið líf og fjör í kringum ykkur í Lundi :) njótið afmælisdagsins
Hæ hæ rosalega eru börnin ykkar falleg!! Mér finnst svo fyndið að steini og abbi fengu báðir ljóshærða stelpu og rauðhærðan strák hehe
En gangi ykkur rosalega vel og vonandi komum við í heimsókn sem fyrst ;)
kv .kata og steini og tvibbar
Loksins loksins, nýjar myndir.
Þið eruð svo falleg fjölskylda.
Knús og kram frá Stralíunni.
hæhæ
Til hamingju með rúmlega eins mánaðar afmælið Skarphéðinn Orri! og nú styttist aldeilis í 2ja ára afmæli Svölu stóru sys, bara allt að gerast :-)
Alltaf gaman að fylgjast með ykkur vísitölufjölskyldunni.
Kveðja
Hrefna og co
Til hamingju með drenginn og fallegt nafn. Vonandi gengur allt vel.
Bestu kveðjur úr Dalhúsum
Veivei! Duglegu duglegu að setja inn nýjar myndir. Nauðsynlegt þegar svona langt er á milli okkar og það er svo gaman að sjá þroskastigin. Þið eruð svo rík og mikið er Svala heppin stóra systir. Vona að það gangi rosalega vel,
Knus og kram til ykkar
Æðislegur..Svala tekur sig vel út í nýja hlutverkinu. Hlakka til að sjá ykkur. Kær kv. Harpa
Hæ hæ
var að skoða myndböndin og nýju myndirnar ykkar, og vá hvað það er gaman að sjá Svölu og litla bróður kynnast :-) alveg yndislegt að sjá þau saman..
Flottar dúllur sem þið eigið!
Gangi ykkur súper vel elsku fjölskylda, hlakka mikið til að fylgjast með ykkur og hitta svo í eigin persónu ;-)
kv.Hrefna
Elsku Anna, Abbi og Svala til hamingju með litla prinsinn sem er ekkert svo lítill :) rosalega flottur strákur sem ber nafnið sitt vel :)
Elsku fjölskylda
Innilega til hamingju með litla gullmolann ykkar. Endalaust fallegur.
Kveðja úr Grafarvoginum
Innilega til hamingju með þennan myndarlega og flotta strák.. Alltaf jafn gaman að fylgjast með ykkur hér í gegnum netið :) kveðja Erla og Ingibjörg Lilja
Elsku fjölskylda
Innilega til hamingju með litla prinsinn og nafnið :) Hann er sko stór og flottur gaur með mikið hár, algjört krútt :)
Kveðja Lilja og co
Jii er maður dásamlegur eða hvað!;) hann er algjört æði alveg eins og stóra systir sín !;) innilega til hamingju og gangi ykkur vel með gullmolana ykkar !;)
úpsídúps.. ýtti aðeins of fljótt á enter...
Vá hvað drengurinn er fínn! Stór og pattaralegur og vitaskuld fjallmyndarlegur :D
Til hamingju enn og aftur!
Hæ hæ þið öll! Innilega til hamingju með þennan flotta strák... ekkert smá sléttur og fínn og mannalegur :-) Vona að allt gangi vel og allir hafi það gott! Hlakka til að sjá hann... verður gaman að sjá þau saman, hann og Bríeti Liv.... fannst frekar fyndið að hann fæðist stærri en hún var daginn sem hann fæddist... hann hefur greinilega ætlað að safna kröftum þarna inni :-)
Knús af níunni,
Björk og co
Innilega til hamingju með soninn. Fallegur drengur Skarphéðinn Orri. Kærar kveðjur úr Kópavoginum . Gilli og Inga
Svala! Til hamingju með litla bróður. Þú átt hann alein. ;o)
Hann er alveg yndislegur. Við eigum sko í honum þessum. Hann er eins og við öll þegar við fæddumst er það ekki. Hann fær Laugarvatnssvipinn þegar hann eldist. hehe.
Gangi þér vel elsku systir, það er viðbrigði að vera með 2 og en meiri vinna þegar þau eru svona stutt á milli.
Ég ætla að hringja í þig á eftir
kveðja Arnheiður og co á Hawaii.
Vá ég segi nú ekki annað, innilega til hamingju með gaurinn, flottur, fínn og sætur og þið hin líka. Hlakka til að fá að halda á Skarphéðni Orra.
Knús
Ekkert smá flottur strákur! Hann hefur náð að stækka vel í bumbunni þessar 3 auka vikur, lítur út eins og amk mánaðargamalt barn. Ingólfur Bjarni biður að heilsa.
Kv. Magnea og Jón Bjarni
Innilega til hamingju aftur :) Hann er ekkert smá flottur og myndarlegur. Hafið það gott elskurnar. Kær kv. af næturvaktinni
oooooooo hann er æðislegur! Innilega til hamingju með stóra strákinn ykkar ;-)...
vona að allt hafi gengið vel miðað við stærð drengsins.
Knús Hrefna og fjölskylda**
Elsku Anna, Abbi og Svala
Innilega til hamingju með prinsinn og fallega nafnið hans, hann er
æðislegur
Kv,Sigrún
Elsku Abbi, Anna og Svala.
Innilega til hamingju með "Junior" Skarphéðinn Orra. Æðislega sætur gæi og mikið krútt, held að hann sé líkur Eyrúnu ömmu sinni . Vegni ykkur vel elskurnar mínar, besta kveðja.
Litli bróðir er alveg yndislegur, knúsulegur og myndarlegur! Æðislegt að fá að kíkja aðeins á hann :)
Til hamingju enn og aftur með hann litla (stóra) fjölskylda.. Og nafnið fer honum alveg ótrúlega vel..
Knús,
Sunna, Maggi og Margrét
Mikið eru myndirnar dásamlegar- elskurnar -hann er sko algjört æði ooo mig langar svo ofsalega til að fá að koma bara pínu pínu við hann- mikið hefur hann haft það gott hjá mömmu sinni, og hann er svo mannalegur og já bara svolítið spekingslegur. Innilega til lukku aftur elsku besta Anna mín, Abbi og Svala stóra systir.
Elsku fjölskylda!! Innilega til hamingju með hann Skarphéðinn Orra! Honum hefur bara fundist svo gott að vera í mömmubumbu svona lengi :) Vonandi gekk fæðingin vel Anna mín...!!
Knús á ykkur vísitölufjölskylduna
Berglind
Innilega til hamingju með fallega drenginn :)