

Kæra fjölskylda,
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Svala og Skarphéðin alltaf jafn falleg, vonum að þið njótið tímans á Íslandi og knúsið ömmu og afa frá okkur.
Bestu kveðjur úr sól, hita og svita.
Kristbjörg, Elli og Freyja
Jú og þá er ég búin að grandskoða allar nýjar myndir- alltof langt síðan ég kom hingað inn síðast. Mikið er ég farin að hlakka til að sjá ykkur...styttist óðum
Kossar frá Íslandinu góða
Kæra Svala
Takk fyrir spjallið um daginn, þrælskemmtilegt að spjalla við þig um perlurnar, kvöldmatinn og litla brósa. María Rún var reyndar alveg viss um að þú væri að tala spænsku en þar sem hún hefur farið til Tenerife skildi hún alveg helling.
Hafið það sem allra best
Ásdís og María
Ég er ekki frá því að Anna eigi svolítið meira í Skarphéðni Orra, enda sanngjörn skipti þar sem Svala var sem snýtt úr nös á Abba til að byrja með!
Mikið er gaman að skoða svona margar myndir af svona fallegum börnum.
Knús í hús...
Sæl og blessuð fröken Svala og herra Skarphéðinn. Nú fer að styttast í það að uppáhaldsfrændi komi í heimsókn til ykkar. Ég á pantað flug föstudaginn 13. nóv. og lendi í Köben. Ég veit ekki hvort ég kem þá beint til Lundar, þar sem ég lendi í Köben klukkan 11 um kvöldið. Ég geri fastlega ráð fyrir því að þið mamma ykkar verðið búin að elda eitthvað gott fyrir mig þegar ég kem þreyttur eftir allt ferðalagið. Svo vil ég bæta því við að ég get ekki sofið í mjög opnum rýmum eins og stofum og þess háttar. Það væri jafnvel upplagt að mamma ykkar og pabbi myndu því sofa frammi í sófanum á meðan dvöl minni stendur. Ég hef ekki gert það upp við mig hvað ég verð lengi en það gæti spannað frá 2 dögum upp í mánuð og fer það helst eftir því hvað verður í matin og hvað mamma þín er góð að elda.
bestu kveðjur,
Leifur uppáhaldsfrændi.
Hæ hæ,
Gaman að sjá nýju myndirnar. Þið heppin að fá ömmu og afa í heimsókn.
Knús og kossar til ykkar allra.
Kveðjur úr kengúrulandi.
Afi var að skoða flottar myndir af okkur.Er nuna staddur 150 kilometra nordur af Murmansk, her er gott veður og gengur vel. Kveðja Afi
Hæ hæ vísitölufjölskylda!!!
Var að vinna upp nokkur albúm af myndum. Börnin alltaf jafn falleg og yndisleg. Skarphéðinn Orri líka orðinn svo mannalegur og flottur (ekki að hann hafi ekki verið flottur fyrir).
Knús á ykkur...
Berglind og strákarnir
hæ öll, bara kvitta fyrir innlitið. Svolítið mikið langt síðan við kíktum á síðuna síðast. Yndislega falleg börn sem þið eigið og skemmtilegar myndir
kv. Gréta Rún og AE
Kæra fjölskylda
Það er kominn tími á kvitteringu! Ég kíki alltaf reglulega á ykkur - með eða án Leifs:) Falleg börn sem þið eigið - við mæðgur bíðum spenntar eftir því að fá að hitta ykkur í the real life einn daginn :)
Bestu kveðjur
Ásdís Ýr og María Rún
Elsku fjölskylda,
Gaman að sjá allar nýju myndirnar. Allir svo sælir að sjá.
Við höfum það gott, það er farið að vora og Freyja er alltaf á róló :)
Heyrumst sem fyrst, Kristbjörg, Elli og Freyja.
Kæra fjölskylda í Lundi,sendum ykkur ástar kveðjur og óskum Alberti innilega til hamingju með stóra áfangann og nýju vinnuna.Gaman að sjá hvað bönin eru fallleg og dafna vel.Vonumst til að sjá ykkur fljótlega,með bestu kveðjum og mörgum kossum.
Æðislegt að sjá hvað Skarphéðinn Orri dafnar vel, farinn að sitja og allt :)
Vonandi hafið þið það sem best í Lundi.. Sendi á þig línu við fyrsta tækifæri Anna :)
Söknum ykkar..Sölvi er alltaf að stinga upp á því að við smellum okkur aftur til Svíþjóðar og spyr reglulega hvað Svala og litli strákurinn séu að gera..
Vorum svo stöðugt á ferðalagi eftir heimkomu en lífið að komast í rútínu aftur. Væri gaman að heyrast fljótlega. Hafið það sem allra best. Kv. Harpa
Vildi bara kvitta fyrir komunni....
Flott fjölskylda og ofursæt börn :)
Kveðja,
Berglind og strákarnir
Hæ! Ég var að skoða slatta af myndum sem ég var ekki búin að sjá og verð nú bara að segja að þið eruð ofur myndarleg fjölskylda.
Knús í hús!
Svo gaman að geta fylgst með þessum dúllusystkinum..
Söknum ykkar og Lundarins en höfum það gott hér á Íslandi. Margrét farin að skríða og frekjast :)
Knús og kremjur,
Sunna og Margrét
Hæ Svala og Skarphéðinn,
Gaman að sjá nýju myndirnar, Freyja sagði "haaaiiijjjj" við hverja mynd. Erum líka að kenna henni að segja: Svala. Skarphéðinn kemur seinna :)
Höfum það gott í Port Douglas í Queensland, mamma er hjá okkur að sóla sig og knúsa Freyju. Heyrumst sem fyrst.
Kveðja úr sólinni down under, Kristbjörg, Elli, Freyja og Didda.
Hæ hæ elskurnar, mikið er gaman að renna í gegnum myndirnar ykkar, búin að skoða þær áður en alltaf svo gaman að kíkja aftur. Sakna þín rófuskotta og litla brosandi bróður þíns ;)
Bestu kveðjur héðan úr sveitinni á Íslandi.
Hæ hæ öll
bara að kvitta fyrir innlitið, æðisleg börn sem þið eigið.
kv.
Gréta Rún
Æðislegar myndir!
Lundurinn svíkur ykkur greinilega ekki með veðrinu ;)
Knús frá Íslandi,
Sunna og co
Æðislegt að skoða allar myndirnar... margar ómótstæðilegar myndir af Svölu og Skarphéðni Orra.
Það er greinilegt að þið hafið það rosa gott í Lundi.
Knús og kram Jóhanna og Aníta Eik
Það er greinilega rjómablíða hjá ykkur - vonandi heldur það áfram :)
Haldið endilega áfram að vera dugleg að setja inn myndir :)
Er búin að eyða góðum tíma í að skoða allar nýju fínu myndirnar- takk fyrir mig :)
Halló fallega fjölskylda! Innilega til hamingju með Skarphéðinn Orra og afmæli Svölu :) Það er rétt tæpur mánuður á milli strákanna okkar og vonandi hittumst við nú einhvern tíman með þá :)
Vonandi gengur allt eins og í sögu...sýnist það á myndum :) Hafið það voða voða gott,
kær kveðja frá Íslandi,
Elfa frænka og Birkir Smári frændi :)
Innilega til hamingju með afmælið um helgina, vona að stóra veislan hafi gengið vel. Við gleymdum alveg tímanum í pest og lekandi þaki.
Erum að kíkja á flug til ykkar um miðjan Júlí..Heyrmst fljótlega. Kær kveðja af brávó...
Elsku Svala, innilega til hamingju með 2ja ára afmælið!
Kær kveðja til ykkar allra,
Magnea, Jón Bjarni og Ingólfur Bjarni
Til hamingju með 2 ára afmælið.
Elsku fallega Svala- Innilega til hamingju með afmælið-vá þú ert orðin 2 ára! Hvað tíminn er fljótur að líða. Vonum að þú hafir átt góðan afmælisdag og fengið fullt af pökkum :)
Risaknús og kossar
Helga Valdís og co