

Jiminn....ég er búin að koma nokkrum sinnum að skoða og fattaði allt í einu að ég er ekkert búin að kvitta!!
Þú lítur rosalega vel út Anna mín...það klæðir þig mjög vel að vera ólétt :) Gangi ykkur vel á síðustu metrunum...þetta verður bara tóm hamingja. Hlakka til að sjá bumbumyndir af fleirum en bara óléttu konunni...hí hí hí...
Berglind og co
hæ hó
Mér finnst æði að þið séuð komin með heimasíðu, svo maður geti nú fylgst almennilega með ykkur síðustu vikurnar og svo auðvita um leið og litla gullmolinn ykkar mætir á svæðið. Njótið síðustu viknanna í botn, knús og kram
Gréta Rún og litli snúður
Halló.
Mikið er gaman að sjá hversu vel þú blómstrar Anna, og okkur hlakkar öllum til að fá nýjan meðlim í fjölskylduna, veit ekki hvað skal segja.... stelpa ja , kanski strákur, veit ekki en við bíðum spennt. ( kanski lítill rauðhæður Skappi ) hvernig væri það ,
bara flott.
Love
- Didda frænka.
p.s bíð spennt eftir fleiri myndum.
Ég er búin að reyna lengi að sjá eitthvað út úr mið-sónarmyndinni, en sé ekki neitt! Annars er fyrsta alveg mögnuð, hún er svo skýr og flott. Það er alveg alveg satt hjá þér að Abbabarn verði með Abbavarir, hehe.
Kveðja,
Tinna Rós
HÆ Abbi og Anna,
Gasalega er bumban orðin stór.......þú hlýtur að vera búin að ná Abba núna :)
Vona að allt gangi sem best, hlakka til að sjá ykkur og hana Eyrúnu litlu bráðum. hihi.
Kveðja, Bizzguta
Frábær síða Anna mín (og bumbubúi) - hlakka til að fylgjast með í framtíðinni
Frábært að sjá bumbuna loksins. Nett og flott.
Þetta verður strákur, jafna hlutföll barnabarna í familíunni.
Hæ litla sæta bumba, loksins komin síða með bumbulíus. Ég verð að taka undir með Þyri með að krílið sé lítil skotta.
Ég verð allavega fastagestur á síðunni og bíð spennt eftir að sjá krílið í mai/júní.... Vá hvað það er orðið stutt þangað til!!!!!!!!! þetta er svo fljótt að líða!!
Knús og kossar í kotið
Lilja og gormarnir2 og Nonni
Til hamingju með þessa flottu síðu,,,, þú ert með svo sæta kúlu, er alveg klár á að þetta sé stelpa.. mínum vantar kærustu þú skilur..
Kveðja Þyrí og Litli prins
það verður gaman að fylgjast með, bíð spennt eftir að sjá fyrstu myndir af krílinu.... sem ég held nota bene að sé strákur :o)
Knús og smús Jóhanna
VÍÍÍÍ komin heimasíða! Búin að adda henni inn á favorites...kneus :D
Jabb ég er númer tvö pant fara með þér Leifur til Svíþjóðar, Frítt.
Fyrstur! krefst þess að fá þá frítt far til Svíþjóðar í verðlaun.