

Elsku Anna og Abbi, innilega til hamingju með litlu prinsessuna.
Hlakka til að sjá myndir af henni :o)
Knús
Jóhanna og co
Innilega til hamingju með litlu snúlluna!
Hlakka til að sjá myndir af nýbökuðu fjölskyldunni :)
Kuldakveðja frá Íslandi,
Sunna og Maggi
Til hamingju með stúlkuna!! Hlakka ekkert smá til að sjá myndir og svo hana sjálfa vonandi fyrr en seinna.
Bestu kveðjur Þórdís, bumban og strákarnir.
Hæ hæ Anna og Abbi innilega til hamingju með prinsessuna, ég bíð alveg spennt eftir mynd, ég og steini vorum sko alveg viss um að þetta yrði strákur, en heilbrigt barn er eina sem hægt er að óska sér.
Gangi ykkur rosalega vel og heyrumst síðar.
Oh vitlaus takki hehe ætlaði að skrifa meira - innilega til hamingju með litlu snúlluna. Auðvitað var það stelpa hehe hvað annað :)
Hlökkum til að sjá myndir og fá frekar fréttir.
INNILEGA TIL HAMINGJU
Endalaust ánægð með ykkur. Snilldin eina að fá aðra stelpu í Lundahópinn. Hlakka til að sjá myndir og gefa ykkur öllum hamingjuknús.
Velkomin í heiminn litla snót - megi hamingjan fylgja þér...
Knús, knús
OOoooo ég er að rifna úr stolti yfir vínkonu minni :) Þessar fréttir lífguðu svo sannarlega upp annars drungalegan dag hér á Íslandi. Hlakka svo bara rosalega til að sjá mynd. Engin pressa he he...
TIL HAMINGJU ELSKU YNDISLEGA FJÖLSKYLDA :D
Þúsund milljón kossar og knús frá mér
kíkkaði við til að tékka hvort litla gullið ykkar væri mætt á svæði.. sendi þér baráttustrauma skvís.
knús og kram
Gréta Rún og Adam Ernir
Dæs.. get varla beðið!!
Gangi þér ofsalega vel skvís, hugsa mikið til þín.
Ég bíð spennt eftir fréttum af ykkur!
Gangi ykkur vel,
Sunna Ósk
Gangi þér voða vel Anna mín. Þú verður nú örugglega búin að eiga þegar ég kem aftur frá Ítalíu.
Knús, Heiða
Jæja....þá er það bara lokaspretturinn! Gangi ykkur vel á lokametrunum. Hlakka til að sjá krílið ykkar.
hæ skvís... var bara að kíkka við og athuga hvort það væri nokkuð komnar fréttir af litlum gullmola.
knús til ykkar frá okkur Adam Erni
Snilld að fá myndir af íbúðinni, mjög flott og kósy og gaman að sjá þar sem maður er líka á leiðinni til ykkar. Vonandi fer að styttast í krílið, heyri nú í þér...Bestu kveðjur. Harpa
Sælar,
Var bara að athuga hvort það væru nokkuð komnar fréttir þar sem núna er svolítið liðið á 30.... hihi nei nei þetta er bara ágætis afsökun fyrir að kvitta ennnn einu sinni ;)
Sendi þér í leiðinni hríðarstrauma og gott gengi þegar kemur að þessu :)
Kv. Lilja
Sammála Helgu með myndirnar af íbúðinni, gott að fá svona útsýnistúr um heimilið, sem er voða flott og snyrtilegt. Væri til í að fá aftur svona myndir eftir nokkra mánuði og sjá hvernig heimilið breytist við að fá lítið kríli, híhí. Svo er ekki langt í að ég sendi þér myndir af íbúðinni okkar Jóa og dóttur okkar, henni Akiru ;).
Ég sendi kossa til Önnu og handaband til Abba.
Kveðja,
Tinna
Vííí fínar myndir af íbúðinni :)
ps. ég semsagt segi 3.júní
Hæhæ, vildi bara kvitta fyrir innlitið og óska ykkur góðs gengis:). Nú fer aldeilis að styttast í litla krílið, vona að þú þurfir ekki að bíða mikið lengur þó þú takir þig vel út með bumbuna:). Hlakka til að fylgjast með ykkur. Kveðja Hildur Ármanns
Hæ hó
Það er aldeilis að mín er orðin myndó, það fer þér líka svona ljómandi vel að vera svona ólétt. Gaman að sjá nýju myndirnar og alveg ótrúlega skemmtilegt að þú hafir náð myndunum þar sem það hefur verið að hreyfa sig og bora löppum og rassi hingað og þangað :)
Vona að allt gangi vel, maður er farin að bíða spenntur eftir krílinu...sem ég er svo viss um að sé lítil jah kannski stór dama. Kannski lítil Svala Hlín Rós Lilja.....jah eða Guðmunda...jæja það verður að koma í ljós.. ;)
Knús og kossar í Lund
Kv. úr Hafnó
Lilja og co
Hæ
Ætladi ad sniglast um og skoda myndir en vantar adgangsord, endilega skelltu einu sliku a mig svo eg fai ad fylgjast med thegar litla krilid kemur i heiminn. Gangi ykkur vodalega vel a lokasprettinum :o) GUGGAN
Flott síða og frábærar bumbur, gaman væri að sjá líka sónarmyndir úr Abbabumbu
bwwwahaha.. ég grenjaði úr hlátri yfir bumbumyndum Abba og félaga!!
Verð nú að viðurkenna (ekki segja Abba) að þú tekur þið dálítið betur út með bumbuna ;) Ekkert smá flott skvís..
Elsku Anna mín mátti til með að kvitta fyrir mig. Þú ert svo blómleg og falleg ,gangi ykkur sem allra best kveðja Ása.
Hæ hæ ótrúlega flott síða hjá ykkur, er búin að bíða lengi eftir henni hehe. En ég og steini höldum að þið fáið strák :)
Gangi ykkur bara rosalega vel og sjáumst vonandi sem fyrst.
Hæ og hó. Til hamingju með síðuna. Vorum að fatta að við höfum ekki skrifað í gestabókina hjá einum mesta aðdáenda síðunnar okkar. Sölva hlakkar mikið til að fá nýjann félaga en við giskum á stelpu, hann er líka í því að sjarma litlar dömur svo það er flott. Höfum það 4. júní, 16 merkur og 53cm. Hafið það gott þessa síðustu daga meðgöngunnar. Kv. Harpa og Sölvi
Hæ Anna bumban mín
Ég varð bara að kvitta aðeins því mig var eitthvað svo mikið að dreyma þig í nótt!! Ég var svo mikið að segja þér að þetta væri stelpa því bumban var svo hátt uppi og eitthvað blablabla...
Gaman að þessu...svo bíðum við spennt að sjá litlu dúlluna, hvort sem það er strákur eða stelpa.
Kv. Lilja
Hæ hó
Vildi bara kvitta fyrir mig. Gaman að sjá blómlegar bumbur og tímalausan kærleika. Laugarvatnsjarlaættin heldur velli!
Kv, Benni
Hæ Anna mín
Rosalega er gaman að sjá bumbumyndirnar. Þú lítur ekkert smá vel út eins og alltaf. Það er svo gott veður á myndunum, maður öfundar þig bara. Ég held að þetta verði stelpa, ég er alltaf að reyna að fá stelpur í hópinn það er allt of mikið af strákum.
Kveðja,
Íris
Ég verð nú að kvitta fyrir komuna. Gaman að skoða bumbumyndirnar, þú varst ca. eins og á 1. myndinni þegar við hittumst fyrst í Vildanden, ótrúlegt hvað tíminn líður!
Ég held að þetta sé stelpa. Fæðist 15,5 merkur og 51 cm. Hún mun mæta á svæðið 7. júní, einmitt meðan við verðum á Ítalíu, svo ég vona að mín spá rætist ekki ;o)