

Hæhæ
Þú ert nú meiri tískudrósin...alltaf í nýjum dressum.
Búin að setja myndina af Svölu í peysunni frá ömmu Svölu á desktoppinn.
Sjáumst fljót dúllan mín, Kv. Kristbjörg.
Elli biður að heilsa--- Áfram Liverpool---
Hæ hæ. Skemmtilegar nýju myndirnar, flott peysan frá ömmu Svölu. Sölva vantar svona duglega prjónaömmu.
Takk æðislega fyrir kortið, Sölvi var hinn ánægðasti með þetta..
Svo er það veislan á morgun...Heyrumst fljótt. Kv. úr vesturbænum
Var að renna í gegnum myndirnar, er á leiðinni niður að kíkja á ykkur í eigin persónu.
Kossaknús
Til lukku med litluna hun er alveg rosalega saet og flott. Aedislega gaman ad geta skodad myndir af henni.
Knus,
Linda hennar Helgu Valdisar
Hæ hæ ohh anna og abbi þið eigið svo mikla skvísu. Algjör prinsessa!!
Smjattið er algjör snilld :)
Takk fyrir að gefa mér lykilorðið. Enn og aftur til hamingju með stelpuna. Engin smá myndarstelpa hér á ferð :) Ég á einmitt von á stelpu í lok sept. Bara 13 dagar í settan dag, þannig að maður er farinn að telja niður dagana :)
Það væri gaman að rekast á ykkur einn daginn ef þið ættuð leið í gengum Köben eða við í gegnum Lund.
Kv.frá baunalandi
Til hamingju með nafnið
Kv Halla Björk
hæ hæ
Þú ert sko algjör krúttumúsína....
Vonandi hittumst við aftur allur krakkaskarinn með mömmum okkar
knús til ykkar
Tinna og krílin
Hæ hæ, erum farin að sakna ykkar strax..Vá hvað þú ert orðin stór og mannaleg á nýju myndunum, Svala og alltaf í nýjum og flottum dressum..Eigum eftir að sakna ykkar í afmælinu hér á brávó..Heyrumst vonandi fljótlega..Biðjum að heilsa. Kv. af brávó
Hæ hæ sæta skvísa!
Rosalega var gaman að hitta þig loksins þarna um daginn. Þú ert svo flott stelpa. Ég skil alveg svona Hello kitty æði...þú verður bara að vera dugleg að suða í mömmu og pabba :) Þau gefa eftir á endanum.
Hlökkum til að hitta þig aftur seinna.....
xxx
Berglind og Hrafnkell
Halló sæta prinsessa,
Æðislegt að fá þig í heimsókn til okkar,,, svo mikil dúlla.
Verðum að hittast alltaf þegar þið komið til landsins.
Knús frá okkur
Hæ sætust, rosalega er nú gaman að vera loksins búin að fá að hitta þig og knúsa....(þó þú hafir aðeins baulað á mig) þú ert nú meiri bjútíin, alveg gullfalleg dama. Hlakka til að hitta þig við fyrsta tækifæri.
Kv. Lilja og grallaraormarnir2
Abbi ordinn Pabbi:) Velkominn i heiminn prinsessa, bara still yfir skvisunni:) Vertu god vid mommu og pabba.
Kær kvedja
Brynja (fyrrv. skolasystir´/granni Alberts)
Endilega sendid mer password
Til hamingju með nafnið fallega Svala! :) Fer þér rosalega vel! Frábært að skoða myndirnar hún er alger gullmoli! Anna mín þú lítur líka rosalega vel út og þið eruð ofsalega flott fjölskylda!
Kærar kveðjur frá okkur til ykkar allra,
Elfa og Ottó (ekki hundurinn :) )
Hæ, Svala það var æðislegt að hitta þig og foreldrana. Þú ert ekkert smá flott stelpa, með mjög fallegt nafn :) Takk fyrir kökurnar.
Til hamingju með nafnið Svala! Það var nú gaman að fá að sjá þig um daginn og maður á nú örugglega eftir að sjá meira af þér úti í Lundinum :)
Kveðja,
Sunna
Halló svala. Til hamingju með þetta fallega nafn ;) berð það rosalega vel. Takk líka fyrir síðast, gaman að hitta þig í Svíþjóð þegar við vorum þar :) flott stelpa!
Hæ hæ æðislegar myndir hjá ykkur. Það var ekkert smá gaman að hafa ykkur hér fyrir vestan, það verður langt þanga til við hittumst næst en það verður rosalega mikið stuð hjá okkur með öll börnin ;)
Hæ.. varð að kvitta fyrir innlitið og óska dömunni til hamingju með fallega nafnið. Svo verð ég nú að taka fram hvað þú lítur vel út Anna mín :) Heyrumst fljótt. Kossar Erla og bumbubúinn
Til hamingju með fallega nafnið þitt ;) Amma Svala hlýtur að vera stolt af nöfnu sinni ;) Kisskiss
Brynja frænka
Hæ hæ
Þökkum skemmtilegar samverustundir á Ísó. Hlökkum til að sjá ykkur fimmtudaginn 16/8 kl 19 ca.
Kveðja, Kristbjörg og Elli
Líst vel á ykkur. Mjög fallegt nafn á skvísunni!!
Hlakka til að sjá ykkur!
til hamingju með skírnina. Svala Albertsdóttir, doldið mikið af "A" í nafninu þínu, þannig að þú verður þá örugglega A manneskja, en ekki B manneskja eins og frændi þinn og pabbi. ég var búinn að giska á Trítla Albertsdóttir, en´það varð víst ekki úr því. en annars, til hamingju.
Til hamingju með fallega nafnið. Hlökkum til að sjá ykkur hér í Lundi í lok mánaðarins. Bið að heilsa mömmu og pabba.
Til hamingju með fallega nafnið þitt Svala!
Hlökkum til að sjá þig 25. ágúst.
Til hamingju með nafnið Svala, og það var gaman að fá að sjá ykkur familíuna á ísó :)
kv. Ásrún
SVALA ALBERTSDÓTTIR...
Til hamingju með að eiga svona flott nafn
knus frá helgu og co
Til hamingju með fallega nafnið Svala. :o)
knús frá okkur öllum.
Til hamingju með skírnina og fallega nafnið þitt. Hlökkum til að sjá ykkur í lok ágúst.
Kærar kveðjur frá Lundi.