

Velkomin á heimasíðuna okkar
Gunnar Dagur og Birkir 
Nýjar myndir 7. ágúst 2016
Ný færsla í dagbók 16. september
Nýtt myndband 10. mars 2016



Gunnar Dagur fæddist 22.september 2008 á sjúkrahúsinu á Selfossi. Hann var 4235 gr eða 17 merkur og 53 cm.
Gunnar Dagur var skírður þann 25.október í Þorlákskirkju.
Birkir fæddist 19.október 2011 í Hreiðrinu. Hann var 4360 gr eða rúmar 17 merkur og 54 cm.
Birkir var skírður þann 11.desember í Þorlákskirkju.
Foreldrar okkar heita Helga Rúna og Bjarni og þau sjá ekki sólina fyrir okkur og finnst við algjörlega fullkomnir :)
...ekki gleyma að kvitta í gestabókina því okkur finnst svo gaman að sjá hverjir kíkja...


Mamma er konan
Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn, fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.
Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.
Mamma er besta kona í heimi!
Pabbi er maðurinn
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda að það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.
Samt veit hann allt !!
Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.
Pabbi er besti maður í heimi!