

3. ágúst 2011 - Gunnar Dagur að fylgjast með mömmunni klæða sig og spyr hvað þetta sé, þegar ég svara að þetta sé kjól þá lítur hann á mig og segir: Mamma, ert þú prinsessa? :) Greinilegt að það eru bara prinsessur sem klæðast kjólum.
17.september 2011 - Gunnar Dagur og pabbi fóru í göngutúr í Þorlákshöfn og enduðu á róló. Skemmtu sér ljómandi vel saman og þegar heim var komið fór Gunnar Dagur til pabba síns, réttir út hendina og segir: Takk fyrir að koma með mér á róló pabbi :)
19. september 2011 - Gunnar Dagur og mamma voru að gera sig klár í að fara á leikskólann þegar hann snýr sér að mömmunni og segir: Engar áhyggjur mamma mín! Höfum ekki hugmynd um hvar hann heyrði þetta en okkur fannst þetta ferlega krúttlegt.
2. október 2011 - Gunnar Dagur snýr sér að mömmu og pabba og segir: Hver á besta strák í heimi? og svarið var að sjálfsögðu: Mamma og pabbi :)
Nóvember 2011 - Gunnar Dagur var í baði og pabbinn var inni á baði að raka sig á meðan og allt í einu teygir Gunnar Dagur upp hendina og segir: Skari, hjálpaðu mér :) Einn búinn að vera að horfa á Lion King og var að leika eitt atriðið úr myndinni.
11.desember 2011 - mamman var að klæða litla bróðir á skírnardaginn og þá snýr Gunnar Dagur sér að okkur og segir: Ég elska hann :) Mamman bráðnaði alveg :)
12. desember 2011 - Gunnar Dagur er mikið búinn að ræða um tilfinningar undanfarið enda hafa þau verið að vinna með þær hjá krökkunum í leikskólanum og hann er ítrekað að segja að honum þyki vænt um mömmu, pabba og litla bróðir :) voða krúttlegt og gaman að heyra hann ræða þessi mál.
haustið 2011 - undanfarið hefur komið upp nokkrum sinnum atvik þar sem Gunnar Dagur snýr sér að viðkomandi og segir með yndislegum tón: Ég trúi þessu ekki
22. desember 2011 - Bjarni fór með Gunnar Dag inn að sofa og svo að nokkurri stundu liðinni fer ég að kanna hvort hann sé sofnaður og þá er enginn í rúminu heldur situr minn maður á dótakassanum sínum úti í horni, ég spyr hann hvort það sé ekki allt í lagi en þá vildi hann ekki fara að sofa, ég tek hann því í fangið og segi að hann megi alveg koma fram í smá stund. Þegar fram er komið labbar hann til pabba síns og segir: Pabbi, það er bannað að skilja útundan!
26.apríl 2012 - Gunnar Dagur var í svæfingu í morgun þar sem rör voru fjarlægð úr eyrunum og í leiðinni var klippt á tunguhaftið því það var að valda því að hann náði ekki að segja öll hljóð rétt og er voða lítill í sér í dag með svona sár í munninum og sagði svo áðan: Ég er með visinn ugga, af því að ég er með sár...einn búinn að vera að horfa á Nemo
20. maí 2012 - Gunnar Dagur nývaknaður og tilkynnti mömmunni að hann hefði dreymt hana. Þegar ég spurði hann nánar út í drauminn þá sagði hann: Mamma, þú varst að klófesta mig!
22. maí 2012 - Gunnar Dagur svaf lengur en aðrir fjölskyldumeðlimir en síðan heyrist allt í einu kallað fram úr herberginu: Hvaða læti eru þetta eiginlega! Þá var bróðir hans að leika sér með hávaðasamt dót.
3. júlí 2012 - Gunnar Dagur var eitthvað að óþekktast og ég sagði honum að hlýða mér. Þá snéri hann sér að mér og sagði: Mamma, maður segir ekki svona við stóra strákinn sinn, sem maður elskar!
18. júlí 2012 - Gunnar Dagur að ræða við afa Gunnar í sumarbústað í Húsafelli. Afi, þegar ég verð stór eins og þú, þá ætla ég að drekka svona bjór og mannakók!
20. júlí 2012 - Fjölskyldan á leið heim úr sumarbústað og pabbinn var að keyra þá heyrist í Gunnari Degi sem sat afturí: Pabbi, það á að stýra með báðum höndum! Aðstoðarbílstjórinn mættur :)
25. ágúst - Gunnar Dagur að spá í afmælinu sínu: Mamma, bráðum verð ég fjögurra ára og þá verð ég unglingur, eins og Þorsteinn Helgi :)
30. ágúst 2012 - Gunnar Dagur var að gera einhverjar æfingar á gólfinu í herberginu hans Birkis á meðan mamman var að skipta á honum. Til að fá Birki til að vera kyrran þá segi ég svona við Birki, sjáðu hvað brói er að gera án þess að horfa á Gunnar Dag. Þá heyrist í Gunnari Degi: Mamma, ert þú með augu í hárinu? Nei segi ég. Þá lítur hann á mömmuna og segir: Horfðu þá á mig með augunum í andlitinu!
30. ágúst 2012 - Gunnar Dagur vildi fá afgang af hakki og pasta í morgunmat en mamman sagði það ekki vera morgunmat. En amma Lovísa hafði gefið honum svoleiðis í morgunmat fyrir stuttu þegar hún var að passa hann. Þá lítur Gunnar Dagur á mömmuna og segir: Gerðu bara eins og mamma þín!
8. september 2012 - Gunnar Dagur í göngutúr með mömmu og fer að spá í dauðanum og hvar Guð sé og hvað fólk geri hjá Guði. Mamman ákvað að nota klassíska skýringu og sagði að Guð væri uppi í skýjunum en að ég vissi ekki hvað fólk gerði hjá Guði. Eftir smá umhugsun þá segir hann við mig: Mamma, þegar gamlir karlar deyja og fara til Guðs, þá fara þeir í nudd!
18. nóvember 2012 - Gunnar Dagur að ræða við ömmu Lovísu um beinagrindur og spyr hana síðan hvort hún viti hvernig þær séu á litinn. Nei svarar amman. Þá snýr Gunnar Dagur sér að ömmu sinni og segir: Hugsaðu!
Janúar 2013 - Á leið í leikskólann einn morguninn þá segir Gunnar Dagur við mömmu, mamma, veistu hvers ég óska mér? Nei segir mamman, hvers óskar þú þér? Að ég og Birkir verðum vinir að eilífu. Er hægt að vera meira krútt!
2. febrúar 2013 - Gunnar Dagur kom í fyrsta skipti með hugmynd af því hvað hann ætlar að vinna við í framtíðinni en fyrsta alvöru starfið sem hann hugsar sér að starfa við er að vera dýralæknir.
9. febrúar 2013 - Gunnar Dagur í Þorlákshöfn og spyr ömmu sína hvort hann eigi að hjálpa henni að elda, hann sé mjög góður kokkur. Amman þiggur það og réttir honum diska til að leggja á borð en þá heyrist í Gunnari Degi: Amma, ég er kokkur, ekki þjónn.
9. febrúar 2013 - Gunnar Dagur að ræða um reglurnar sem gilda í leikskólanum við ömmu sína og amman segir að þetta séu nú ekkert erfiðar reglur að læra, en þá segir Gunnar Dagur: Amma, það tekur mjög langan tíma að læra þær!
13. mars 2013 - Fjölskyldan við matarborðið og Gunnar Dagur spyr pabba sinn hvenær hann ætli að giftast mömmu. Við segjum honum að við séum ekki búin að ákveða það en spyrjum hann aðeins út í þessar pælingar og svörin voru að allir pabbar eiga að giftast mömmunum og síðan þegar við spurðum hann af hverju hann vildi að pabbi giftist mömmu þá var svarið af því að hún er svo sæt! Hann kann sko að hrósa þessi ungi maður og vangavelturnar eru æði misjafnar.
14. mars 2013 - Gunnar Dagur nývaknaður og var að klæða sig þegar heyrist í honum: Mamma, ég er pínu slæmur í bakinu. Nú segir mamman og af hverju er það, nú ég svaf eitthvað illa var svarið.
13. júní 2013 - Gunnar Dagur að ræða við pabba sinn. Pabbi, ert þú bráðum að fara að flytja? Nei sagði pabbinn. En ert þú fósturpabbi minn? Nei ég er pabbi þinn. Ert þú bráðum að fara að finna þér nýja konu? Nei á ég ekki bara að eiga mömmu. Nei þú átt að giftast Elínu (mamma einnar á leikskólanum), hún er svo sæt og með mikið hár!
4. ágúst 2013 - Foreldrarnir að ræða við Gunnar Dag um að hann hefði verið pínu óþekkur í dag. Já þá verðið þið líka pirruð. Já því við viljum ekki að þú sért svona óþekkur. Já en af hverju hlýðið þið þá ekki bara mér!
7. mars 2014 - Mamma, ég vill fara í Fjallastefnuskólann! Gunnar Dagur að tjá mömmu sinni að hann vilji fara í Hjallastefnuskólann :)
Desember 2014 - Amma Lovísa biður Birki um að fara inn í herbergi og segja Gunnari Degi að það sé kominn matur, þá snýr Birkir sér við og segir með mæðutón, amma, ertu ekki að grínast í mér! Var sko alls ekki að nenna að standa í þessu veseni!
Ársbyrjun 2015 - Birkir að kynna sig: Ég heiti Birki Bjarnason Skari og Birkir Bjarnason Herra Níels. Hann langar að heita þremur nöfnum eins og vinur hans í leikskólanum og reddaði því svona :)
17. janúar 2015 - Birkir að koma úr sturtu og pabbi hans var að þurrka honum, þá lyftir hann fótunum og segir: Pabbi, þú þarft líka að þurrka skeifurnar!
19.apríl 2015 - Mamman spurði hvort við ættum að fara í skrúðgöngu á sumardaginn fyrsta. Þá hugsaði Birkir sig aðeins um og svaraði svo: Mig langar frekar að fara til Spánar!
20. júlí 2015 - Í afmæli hjá Emmu frænku spurði mamman Birki hvort hann vildi fá sér köku. Þá horfir hann á mig með hneykslunarsvip og segir: Mamma ég borða ekki kökur, ég borða bara pönnukökur á jólunum!
22.nóvember 2015 - Heima hjá ömmu og afa í Þorlákshöfn var Birkir að leika sér með úlpu mömmu sinnar og dró hana eftir gólfinu, amma hans segir við hann að hann skuli hætta þessu því úlpan verði skítug af þessu. Þá snýr hann sér að ömmu sinni og segir: Þá þarft þú nú að þrífa hérna!
25. nóvember 2015 - Fjölskyldan heima að stússast eftir kvöldmat og Birkir er í fullu fjöri og hleypur um allt. Spyr hvort hann megi aðstoða mömmu við að baka þvíí hann sé svo fullur af orku :)