Gunnar Dagur Bjarnason
 

Velkomin á heimasíðuna mína

Gunnar Dagur Bjarnason 

Nýjar myndir 25. ágúst í ágústalbúmi  

Ný færsla í dagbók 25.ágúst

Nýtt myndband 19. júlí



Ég er lítill prins sem fæddist 22.september 2008 á sjúkrahúsinu á Selfossi. Ég var 4235 gr eða 17 merkur og 53 cm.

Ég var skírður Gunnar Dagur þann 25.október í Þorlákskirkju.

Foreldrar mínir heita Helga Rúna og Bjarni og þau sjá ekki sólina fyrir mér og finnst ég algjörlega fullkominn. 

...ekki gleyma að kvitta í gestabókina því mér finnst svo gaman að sjá hverjir kíkja...





Mamma er konan

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn, fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. 
Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönf þegar á þarf að halda.
Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.
Mamma er besta kona í heimi!


Pabbi er maðurinn

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda að það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. 

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.

Samt veit hann allt !!

Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.

Pabbi er besti maður í heimi!