Daðadætur
 
*** Velkomin á síðuna! ***
Nýjar myndir - Apríl 2013! :-)


Ég heiti Emilía Katrín Daðadóttir og kom í heiminn 17. september 2008 klukkan 07:26, ég vó 3.615 gr. (rúmar 14 merkur) og 51 cm. Ég fæddist á fæðingardeild Landspítalans í Reykjavík og það var hún Hrafnhildur Ólafsdóttir ljósmóðir sem tók á móti mér.
Foreldrar mínir heita Þóra Sif Svansdóttir og Daði Georgsson. Ég á eina stóra systur sem heitir Aníta Daðadóttir og er hún 10 ára.

Síðan er læst, en ef þú vilt aðgang ekki hika við að senda póst á mömmu: thorasif@gmail.com

Mundu eftir gestabókinni! Cool


Stjörnumerkið mitt er MEYJAN:

Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.