

Júlí 2011
Emilía Katrín við ömmu sína sem var að setja á sig maskara: "Ó mæ gat! Amma ertu að setja varalit á augun þín?!"
Desember 2011
Emilía Katrín: "Mamma! Ég vil ekki þennan, þessi er svo hvítur, hann er batteríslaus!" (Emilía Katrín að teikna með hvítum lit á hvítt blað...) ;-)
Sumarið 2012
Emilía Katrín: "Pabbi, mér langar í mjólk!"
Pabbi: "MIG langar í mjólk."
Emilía Katrín: "Enn ég er ekki með neina mjólk!"
Emilía Katrín að leika með tvo dótakalla í baði:
Dótakall 1: "Hjálp, hvar erum við?"
Dótakall 2: "Við erum í Frakklandi þar sem sniglar eru herramanns matur!"