
Hæ hæ,
Flottar myndirnar af ykkur í myndatökunni og gaman að hitta ykkur um daginn.
kv. Sara
Vá þú ert orðin svo stór og flottur strákur !
Hlakka til að sjá ykkur á eftir hjá ömms :)
ohhh hvað maður er myndarlegur! Aldeilis búinn að stækka frá því ég sá þig síðast. Greinilegt að hann fær fínann rjóma :o) Rosalega skemmtilegar myndirnar úr myndatökunni
Vá æðislegar myndirnar úr myndatökunni.
Gaman að sjá þig í dag töffari
knús Jóhanna
Hæ frændi....við eigum allveg eins bók! Hún er svo spennandi! sérstaklega kaflinn með seprahestinum. Sjáumst svo hjá Langa settinu á Sunnudaginn :) hlakka til
Takk fyrir heimsóknina í gær! Gaman að sjá hvað Goði hafði stækkað og þroskast mikið og ekki lengra en 10 dagar síðan við sáumst síðast - Hann verður búinn að ná Óla Trausta áður en við vitum af!
Þú ert nú meira rassgatið :) Við þurfum svo að fara að hittast hjá Langa settinu sem fyrst :)
Halló halló Goði sæti.
Lítill fugl hvíslaði að mér lykilorðinu og það er ekkert smá gaman að skoða þennan flotta strák. Innilega til hamingju með hann. Hann er æðislegur og voða líkur mömmu sinni sýnist mér.
Sjáumst nú örugglega á röltinu hérna á Álftanesinu einhvern tímann þar sem við erum nú sveitungar.
Kveðja Þórey (móðursystir Höllu Karenar) og Katla 11 mánaða
hæ hæ Goði sæti
Rosalega var gaman að þú skildir koma við í gær. Ég á mjög flottar myndir af þér og Rökkva.
kv. Kolla
Hæ hæ vildi bara kvitta fyrir komuna. Gaman að sjá nýjar myndir af Goða rosa flottur :) b.kv.Jófríður og Hilmar Daði
Gaman að sjá hvað guttinn dafnar vel, hann hefur það greinilega mjög huggó hjá foreldrunum. Vonandi hittumst við fljótlega með gríslingana okkar.
Hæ hæ
Hjartanlega til hamingju með litla snáðan hann er bara sætur :)
vonadi var í lægi að Arndís sagði mér leniorðið :) kær kveðja frá eyjum :)
Hæ sæti frændi minn !
Þú stækkar svo hratt að ég þekkti þig ekki á nýjustu myndunum !
Gaman að þú skulir vera byrjaður að hlægja smá og áður en þú veist af að þá verðuru byrjaður að hlaupa um eins og vitleysingur ;)
Þú verður að bjóða okkur Ómari í heimsókn einhverntíman á milli lúra :)
Kossar og knús :*
Takk fyrir heimsóknina og pakkann Goði vinur minn, förum kannski saman í göngutúr við tækifæri. Bless í bili
Velkominn í heiminn kæri kútur og til hamingju með hann Halli og Ingigerður.
Kveðja úr Básbryggjunni
Vá hvað hann Goði stækkar! Og bara byrjaður í leikfimi með mömmu sinni. Ekki smá sætar myndir. Hlakka til að sjá ykkur sem fyrst
Knús, Nína
Mikið er Goði búinn að mannast mikið , orðin svo stór og pattaralegur , greinilega að fá nóg úr mjólkinni sinni :)
Finnst hann voðalega líkur þér Inga mín , allavega með augun frá þér. Sætur strákur!
kær kveðja,
Erna , Matthías Máni og Freyja skessa
Hæ sæta family
Hvernig væri að fara að hittast
Óli er í fríi næstu helgi. Eigum við ekki að plana hitting??
Hæ elsku Ingigerður og Halli minn. Til hamingju með þennann fallega prins sem þið eigið það gat ekki komið annað en svona drauma drengur hjá ykkur. ég óska ykkur bara als hins besta í framtíðini megi ykkur ganga allt í haginn í nýja húsinu ykkar. kveðja Eyvör
Hæ hæ,
flottar myndir! Hlakka til að sjá ykkur aftur :)
Kveðja, Ásta
Hæ, rosalega ert þú myndarlegur og svo flott nafn líka:) Hlakka til að rekast á þig og mömmu þína við tækifæri.
Hæ hæ töffari.
Var að stelast til að kíkja á þig og dást að þér, þú ert nú meira bjútíið. Og orðinn svona hraustlegur :-)
Til hamingju með fallega nafnið þitt, það passar svo vel á þig!
Hæ sæti töffari :) Vildum bara kvitta fyrir okkur og rosa gaman að hittast um daginn. b.kv.Jófríður og Hilmar Daði
Vá eru sumir orðnir pattaralegir : ) hlakka til að sjá þig aftur Goði grallari
knús frá Siggu
Mér sýnist þú geta farið bara sjálfur í bað Goði! :) Þarft bráðum ekkert að hafa þessa foreldra til að halda í þig....jú kanski gott að hafa einhvern til að rétta manni handklæðið hehe:)
Hlakka til að sjá þig á Laugardaginn í skírninni hjá Lubbu :)
Til lukku með nafnið á syninum elsku Inga og Halli.
Frábært nafn!
kysskyss, Jan og Júlli Gæ
Til hamingju med nafnid og yndislegan skirnardag!
Og Goði var það!! Æðislegt nafn, til hamingju með það og megi það veita drengnum hamingju og gæfu - þ.e.a.s. ef nöfn geta haft eitthvað með það að gera! Knús frá mæðgunum á Óðinsgötunni
Elsku vinur - innilega til hamingju með fallega nafnið þitt! Æðislegar myndirnar út skírninni, þetta hefur greinilega verið frábær dagur :)
Hæhæ,
Til hamingju með fallega nafnið þitt.
Þú ert alveg yndislega fallegur strákur
Kv. Krissa