
Hæ Goði vinur minn, til hamingju með afmælið í dag, kútaknús þinn vinur Oddur Hrannar
Jiii dúllubossinn...svooo sætur :) hlakka til að sjá ykkur sem fyrst..knús
Hæhæ sæti strákur
Þú ert svo mikið æði:)
Hittumst vonandi sem fyrst
Kv. Krissa og Hilmar Ingi
Hæ
Það er nú meira hvað Goði er sætur strákur og alltaf brosandi og ánægður!!!
Gott að allt gekk vel upp á Barnaspítala Hringsins.
Sjáumst á fimmtudaginn.
Kveðja Guðný og Sindri
Hæ hæ alltaf jafn sætur :) Rosalega ertu duglegur að lesa og að sitja og þér finnst greinilega jafn gott að borða graut og Hilmari Daða. Hlökkum til að hittast í vikunni. kv.Jófríður og Hilmar Daði.
Hæ hæ og takk fyrir síðast :)
Alltaf gaman að skoða myndirnar af gæjanum, mjög fínt fyrir Ísak Sindra að hafa svona góða fyrirmynd í hvað hann eigi að læra næst ;)
Hlökkum til næsta hittings
Ísak Sindri og mamman
Hæ frændi....við fréttum frá langömmu að þú værir að byrja í sundi í Hafnafirðinu? Við erun nefnilega líka að fara.....kannski verðum við saman?! Við erum klukkan 10:30 á laugardagsmorgnum. En þið?
Óskaplega virðist nú vera gott í honum Goða :o), hann er brosandi á hverri mynd, algjört krútt. Var ekki notalegt á Tenerife? Umhverfið og hótelið mjög kunnuglegt. Bestu kveðjur. Matta
Minnsta mál að fá baðsætið lánað, þarf bara að biðja Andrés að kíkja upp á skáp til að vera 100% viss um að finna það (er ekki beint vaxin í mikið príl þessa dagana haha)
Hæ sæta fjjölskylda...ohhh æði að sjá myndirnar frá Tenerife...erum orðin svoooo spennt að fara og gaman að sjá hvað Goði hafði það gott þarna...þurfum endilega að fara plana dag til að hittast...kv.Begga og Hekla Dís
Hæ flotti strákur :) gaman að sjá nýjar myndir og sætar myndirnar af Spron krúttunum. b.kv.Jófríður og Hilmar Daði.
Flottar myndir frá Tenerife! Vá, hvað mann langar til sólarlanda þegar maður skoðar þetta..
sjáumst bráðum :)
Æðislegar Tene myndirnar!!!
kv. Jane
Æðislegar myndirnar frá Tenerife , ekkert smá sætir vinirnir í hitanum , greinilega notið þess í botn :)
Rosalega fínar myndirnar ykkar. Þetta var svo fín ferð :) Núna er maður óðum að komast aftur í rútínu, reynum að taka léttan göngutúr í næstu viku ef vel viðrar? Ps. erum búin að setja inn myndir líka :) Kv. Íris
flottar myndir!!
Ohhh hvað það hefur verið gaman hjá ykkur í hitanum og sólinni. Greinilegt að Goði er alveg að fíla sólarlífið eins og mamman sín :-D
Velkominn heim Goði ég hlakka til að hitta þig, kv Oddur Hrannar
Hæ Goði, þú ert frægasti vinur minn : ) eftir að ég sá þig í fréttablaðinu í morgun !! Góða skemmtun í útlandinu og sjáumst hressir þegar þú kemur heim, kær kveðja Oddur Hrannar
Halló Goði!
Þú stækkar bara og stækkar. Njóttu lífsins á Tenerife, þú átt eftir að heilla allar senjoríturnar þar!
Hæ sæta fjölskylda,
Mikið stækkar hann Goði hratt. Æðislegar sápukúlu myndir. Kannast eitthvað við þessar sápukúlu umbúðir ;) Verðum endilega að hittast bráðum. Bara alltaf eitthvað svo mikið að gera
Nína
hæ hæ sæti strákur!
Allt of langt síðan ég hef kíkt á síðuna og VÁ hvað þú ert búinn að stækka, algjör krúsilíus. Mér finnst þú nú ofsalega líkur múttu.
kv. Kolla og liðið í sveitinni...
bara ad kvitta fyrir mig, thu og Iris erud a daglega runtinum minum i gegnum barnalandid og fleiri islenskar sidur.
kvedja a klakann, skemmtid ykkur vel a Tenerife!
Hæ hæ sæti strákur vildum bara kvitta fyrir okkur :) Gaman í myndatökunni um daginn og hlökkum til að hittast í næsta mömmuklúbb :) kv.Jófríður og Hilmar Daði.
Kíkti á nýju myndirnar og ákvað að kvitta í þetta skiptið. Goði er alltaf jafn sætur og duglegur. Hvernig væri að við myndum nú fara að hittast með krílin?
Kveðja í kotið
Þórey og co.
Hæ Goði gaur takk fyrir heimsóknina, vona að við hittumst fljótt aftur, kannski ég fái að koma og prófa stóra púslteppið þitt !!
Hæ Ingigerður og fjölsk. Stal lykilorðinu af Siggu Báru ;). Rosa flottar myndir af ykkur fjölskyldunni, aldeilis er strákurinn myndarlegur. Svo fyndið líka, var að blaða í albúminu og allt í einu sé ég Þorra og Hildi. Vissi ekki að þið þekktust. Ég og Þorri erum systkinabörn...:)
Kannski sjáumst við þegar ég er næst á klakanum í nóvember.
Til hamingju með prinsinn
Kveðja Hulda og Emilía
Æðislegar myndirnar úr myndatökunni - þetta þykir mér sniðugt hjá ykkur! Verð að drífa mig með pjakkinn minn fljótlega!
Æðislegar myndirnar af þér, svo sætur strákur.
Hlakka til að sjá ykkur í næstu viku
Krissa og Lilli
Mikið er hann búinn að stækka hjá ykkur , svakalega sætur strákur og mér finnst vera sterkur mömmusvipur á honum :)
Vonandi fæ ég að máta hann fljótlega!
Kær kveðja
Erna