
hæhæ sæti frændi minn. Hrikalega ertu duglegur að nota koppinn....mamma mín ætlar að fara að splæsa svona á mig....þú kannski kennir mér taktana :) Við þurfum endilega að fara að skipuleggja deit hjá Langa settinu.....hafðu það gott frændi minn. mamma biður að heilsa.
Hæ Goði,
gaman að skoða myndirnar og videóin af þér!
Ansi langt síðan við hittumst síðast, það verður örugglega
mikið action næst, hlakka til :)
Knús frá okkur
Hæ töffari, þú ert alveg rosalega duglegur á koppnum!! Emilíu finnst þú líka voða sætur að dansa...:)
Kv. frá noregi
Gaman að fá að skoða prinsinn, hann er algjör gullmoli, Við sjáumst vonandi fljótlega í gauraklúbbnum :)
Hann Goði er nú meiri bjútíbollan. Gaman að sjá hvað hann hefur stækkað og þroskast. Tíminn flýgur.
Hæhæ sæti
Mikið er gaman að skoða myndirnar af þér og sjá hvað það er kominn sterkur svipur af mömmu þinni á þig.
Kv. Krissa og Hilmar ingi
Hæ hæ sæti og duglegi strákur :) vildi bara kvitta fyrir innlitið.
b.kv.Jóa og Hilmar Daði.
Hæ fallega litla fjölskylda, alltaf gaman að skoða myndir og sjá hvað frændi er orðin stór sætur og duglegur strákur :)
Ég vil að þið talið við mig næst þegar þið kíkið í goðheimana svo ég fái að sjá ykkur sem fyrst :)
Kveðja Svava
Hæ hæ, verð nú að kvitta einu sinni. Við Emma kíkjum alltaf reglulega á myndböndin. Hún biður alltaf um að sjá Goða borða, Goða rífast um boltann o.s.frv. Svaka stuð.
En hvað segirðu, hittingur í kvöld eða annað kvöld? Sjáumst :)
hæ hó svo langt síðan við höfum kvittað fyrir innlitið, knús frá okkur Oddur Hrannar og Sigga.
hæ sæti gaur,
Gaman að hitta þig í spron-mömmuhittingnum um daginn.
Sjáumst vonandi fljótlega aftur.
kv. Sara og litla músin
Hæ vildi bara kvitta fyrir mig. Gaman að sjá nýjar myndir af Goða sæta :) bestu kveðjur, Jóa og Hilmar Daði.
Hæ hæ.
Við ætlum að koma í heimsókn til ykkar núna í febrúar. Verðum í bandi..knúss Ingunn Anna (sem var að skoða myndbönd og myndir af Goða) og við hin.
Hann er nú meiri rúsínana þessi drengur........
Bæ FJóla
Hæ hæ sæti :) Gaman að hitta ykkur í dag. Goði er rosa duglegur að standa upp við allt verður farinn að hlaupa áður en þið vitið af. b.kv.Jóa og Hilmar Daði.
Hæ hæ, hann Goði er náttúrlega ekkert smá bjútifúl barn og með góðan prakkarasvip :O) Köbenkveðjur, Dóra Axelsd. og stelpurnar
Hæhæ sæti og gleðilegt nýtt ár
Alltaf gaman að skoða myndir af þér og vá hvað þú ert orðinn duglegur að standa upp við allt
Hlökkum til að hitta þig á mánudaginn
Kv. Krissa og Hilmar Ingi
Sæti sæti, þessi litli spékoppi er náttúrulega bara æææðislegur. Hlakka til að hitta ykkur fljótlega við tækifæri þegar við mæðgurnar förum aftur á flakk.
Myndarpiltur hann Goði.
Hæ Goði, alltaf gaman að skoða myndir, ég er farinn að sakna þín, þarf að losna við hósta og hor svo kemst ég að hitta þig. Þinn vinur Oddur Hrannar
hæ sæti og gleðilegt nýtt ár.
Flottar allar nýju myndirnar af þér. Vona svo að við sjáumst fljótlega.
kv. Sara, Alfonso Birgir og litla bollustelpan
hæ hæ. Vorum að kíkja á myndir.
Knús frá okkur öllum
Jóhanna og co
Jiiiii hvað nýju myndirnar eru sætar! Er það rétt sem mér sýnist að Goði sé að verða blondína???? :D
ég sakna litla frænda.. hef ekki séð hann í tvær vikur!!
Mikið rosalega er hann sætur hann Goði litil og ótrúlega duglegur. Bara farinn að reisa sig upp ekki eldri en hann er. Gott að fá einn svona aktívan, það heldur manni við efnið. Rosa gaman að fá að fylgjast með ykkur og vonandi gengur leitin að dagmömmunni vel.
Hæ hæ sæti strákur og rosa gaman að hittast um daginn :) Flottar sundmyndirnar og duglegur að hífa þig upp. b.kv.Jófríður og Hilmar Daði
Sendum Goða góðar batakveðjur - vonandi hristir hann ælupestina af sér fljótt og Óli Trausti veirupestina sömuleiðis svo við getum farið að hittast!
Knús á þig, mömmu og pabba og Höllu K.
Gunna & co.
hæ hæ sæti sæti...
Allt of langt síðan ég tók barnasíðurúnt. Rosalega eigið þið myndarlegan strák. Hann er bara RÚSÍNA...
kv. Kolla
Flottar nýju myndirnar! Alltaf svo kátur og glaður hann Goði og gaman að sjá myndirnar úr sundinu. Bara flottur í bláu sundskýlunni!
Kveðja,
Íris