Viktor Örn og Bylgja Stefanía
 

   VELKOMIN/N Á SÍÐUNA OKKAR !
Við erum systkinin Viktor Örn og Bylgja Stefanía

Erum búin að setja inn myndir úr myndatökunni í haust,jólin og janúar komið inn ásamt nýju myndbandi...verðið að afsaka sönginn hehe en mig langaði að ná honum að syngja lagið sem við höfum sungið á hverju einasta kvöldi frá því hann varð skírður. Viktor Örn vill alltaf að ég syngi vögguvísuna sem Jón Valur bróðir samdi handa honum og ég hef gert margar tilraunir til að ná því á vídjó en það náðist þó í þetta skiptið ;) eins og ég segi ekki min sterkasta hlið en vona  að þið hafið gaman af honum syngja ;)





 
Viktor Örn 13.08.08


Loksin eftir mikla bið og tilhlökkun kom þessi gullfallegi strákur í heiminn, lét mömmu sína og pabba bíða í 10 daga lengur. Litli kúturinn okkar fæddist á Landspítalanum í Reykjavík aðfaranótt miðvikudags þann 13.ágúst. Fæddist 4430 gr og 54 cm  eða 18 merkur, bara flottur í alla staði.

Ég var skírður þann 4.október 2008 

Gjöfin eftir Jón Val. Frumsamið lag sem hann bjó til fyrir Viktor og er hægt að hlusta á það hér:
http://www.myspace.com/jonvalur

  mamma og pabbi völdu nafnið Viktor Örn handa mér. Viktor er bara útí bláinn og þeim fannst það svo fallegt og Örn er í höfuðið á frænda því hann heiti Sigfús
Örn. Pabbi minn heitir Sigurður ( Hiddi ´84) hann býr ekki hjá okkur en á heima stutt frá og ég fæ að fara til hans og Klöru aðrahvora helgi ;)

 

Bylgja Stefanía 08.04´11


Loksin eftir mikla bið og tilhlökkun kom þessi gullfallega dama í heiminn, lét mömmu sína og pabba bíða í 14 daga lengur. Litla snúllan okkar fæddist á Landspítalanum í Reykjavík aðfaranótt föstudags þann 8.apríl 2011. Fæddist 3960gr og 51cm  eða 16 merkur, bara flott í alla staði.

Ég var skírð þann 1.maí 2011.

Mamma og pabbi völdu þetta fallega nafn handa mér og er ég skírð í höfuðið á Bylgju Dögg mágkonu mömmu og bestu vinkonu og svo langömmu heitinni og Stefaníu systir pabba ;)

Mamma okkar heitir Rúna Sirrý ´85 og pabbi okkar heitir Þorsteinn Haukur ´90 og búum við öll fjögur saman í lítilli og sætri íbúð í Seljahverfinu.

 Munið að kvitta í gestabókina,gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með;)

 

 



Heimsóknir í dag: 1
Heimsóknir frá upphafi: 15156