Sunneva Þorvaldsdóttir
 


Hæ verið velkomin á heimasíðuna mína

 Ég fæddist þann 10. september 2007.  Ég held að Guð hafi grátið af ánægju yfir að ég kom í heiminn því að það rigndi eld og brennistein daginn sem ég fæddist.  Mamma mín heitir Hrönn Eir Grétarsdóttir og pabbi Þorvaldur Guðjónsson.               Ég á tvo stóra bræður, Guðjón Andra 7 ára (2000) og Adrían Elí 6 ára (2001). 

 MUNIÐ EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA



Barn í meyju
Barn í meyjarmerkinu er vinnusamt svo að þú getur bókað að það er nóg að gera í kringum það. Þetta barn getur látið leik líta út fyrir að vera vinna og öfugt, svo að þú veist oft ekki alveg hvað er í gangi. Ekki hafa áhyggjur samt, meyjan sér um að klára sín verkefni, hvort sem það er að laga til í herberginu eða spila skák. Barn í meyjunni er vísindalegt að eðlisfari og er líklegra til að takast á við verkefni um stjörnur og tungl heldur en að planta grænmeti í garðinn. Þessi verkefni meyjunnar munu ganga vel, því að meyjan er haldin fullkomnunaráráttu og veit ekki hvað það er að mistakast. Þessari leit að fullkomnun fylgir oft smámunasemi svo að oft má misskilja þegar að meyjunni gengur gott eitt til. Barnið í meyjarmerki vill borða baunir, en það þurfa að vera bestu fáanlegar baunir (þessu barni getur þóst vera illt í maganum). Meyjan er þrifaleg og vill hafa fínt í kringum sig og ekki bara sitt herbergi heldur allt húsið og öllu raðað í röð og reglu. Ekki slæmt að hafa eina meyju á heimilinu? En þegar allt kemur til alls þá vill barn í meyjarmerkinu helst hafa hlutina einfalda ( ís í brauðformi án dýfu og alls), skipulag og fær ánægju út úr vel unnu verki.